Fréttatíminn - 19.04.2013, Síða 8
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Saman getum við
tryggt arð af
auðlindum og haldið
þeim í þjóðareigu
Nýr fjórhjóladrifinn Mitsubishi Outlander er ríkulega búinn staðal- og þæginda búnaði sem
ásamt nýrri tækni eykur öryggi og veitir þér nýja aksturs upplifun. Má þar nefna hraðastilli með
fjarlægðarskynjara, akreinavara og árekstrarvörn sem allt er staðalbúnaður í grunngerðinni Intense.
HANNAÐUR FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUROutlander kostar frá
6.190.000 kr.
Intense 4x4, bensín, sjálfskiptur
Nýr Mitsubishi Outlander
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
mitsubishi.is
Kynntu þér f
rábært
verð á nýjum
Outlander
sem eyðir að
eins frá
5,5 l/100 km.
S amanlagt hlutfall kvenna á framboðslistum allra flokka, nema Dögunar, er lægra en
karla sé miðað við fimm efstu sætin.
Sé aðeins litið á oddvitasæti er stað-
an hjá Sjálfstæðisflokki, Samfylk-
ingu, Bjartri framtíð, Regnboganum,
Framsóknarflokki, Lýðræðisvakt-
inni og Flokki heimilanna nákvæm-
lega sú sama – tvö oddvitasæti af sex
eru skipuð konum. Hjá Vinstri Græn-
um og Dögun skipa fjórar konur odd-
vitasæti og tveir karlar. Hjá Pírötum
eru kynjahlutföll oddvitasæta jöfn en
hjá Hægri grænum leiðir ein kona
framboðslista.
Allir flokkarnir, að Dögun undan-
skilinni, eiga það sameiginlegt að
karlar eru í meirihluta þeirra sem
efstu fimm sætin skipa. Hjá Dög-
un eru kynjahlutföllin jöfn og segir
Gyða Margrét Pétursdóttir kynja-
fræðingur þá stöðu vera fagnaðar-
efni.
Gyða Margrét segir helst hægt
að skýra þennan mun á f jölda
kvenna og karla á framboðslistum
með ólíkri samfélagslegri mótun
kynjanna og ólíkum hugmyndum
fólks um hlutverk kynjanna. Ekki sé
víst að aukinn hlutur kvenna á þingi
muni sjálfkrafa stuðla að auknu
jafnrétti karla og kvenna. Til þess
að stuðla að jafnrétti þurfi femíníska
sýn sem bæði karlar og konur geta
tileinkað sér. Ekki er þó þar með
sagt að jöfn hlutföll skipti ekki máli
því samkvæmt rannsóknum séu
konur líklegri en karlar til að berj-
ast fyrir femínískum málefnum og
því skipti höfðatala og hugmynda-
fræði máli. „Konur sem fyrirmyndir
á þingi skipta máli fyrir aðrar kon-
ur sem áhuga hafa á að feta sömu
braut,“ segir Gyða Margrét.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
KoSningar Kynjahlutföll á framboðSliStum til alþingiSKoSninga 2013
Fleiri konur í oddvita-
sætum nú en 2009
Sam-
fylking
Sjálf-
stæðis-
flokku
Fram-
sókn
Vinstri
Grænir
Björt
Framtíð
Píratar Hægri
grænir
Flokkur
heimil-
anna
Lýðræð-
isvaktin
Sturla
Jónsson
Dögun Alþýðu-
fylkingin
Lands-
byggðar-
flokkurinn
Húman-
istaflokk-
urinn
Regn-
boginn
5
4
3
2
1
0
Skipting oddvitasæta framboða til alþingiskosninga 2013 eftir kynjum
Sam-
fylking
Sjálf-
stæðis-
flokku
Fram-
sókn
Vinstri
Grænir
Björt
Framtíð
Píratar Hægri
grænir
Flokkur
heimil-
anna
Lýðræð-
isvaktin
Sturla
Jónsson
Dögun Alþýðu-
fylkingin
Lands-
byggðar-
flokkurinn
Húman-
istaflokk-
urinn
Regn-
boginn
19
18
17
16
15
14
13
12
11
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
Skipting fimm efstu frambjóðenda framboða til alþingiskosninga 2013 eftir kynjum
Hlutfall kvenna í oddvitasætum á framboðslistum er nú 37% á móti 63% hlutfalli karla. Í síðustu
alþingiskosningum sátu konur í 30% oddvitasæta. Gyða Margrét Pétursdóttir kynjafræðingur telur
þetta vera framför sem beri að fagna en að mikilvægt sé að halda áfram að auka hlut kvenna.
26
Karlar Konur
Karlar Konur
Ölgerð Egils Skallagrímssonar
fagnaði í vikunni aldarafmæli sínu.
Tómas Tómasson stofnaði fyrir-
tækið í kjallara Þórshamars við
Templarasund, en tímamótanna
var einmitt minnst þar. Í upphafi var
fyrirtækið starfrækt í tveimur her-
bergjum í kjallara hússins, sem Al-
þingi á í dag. Í dag eru höfuðstöðvar
þess við Grjótháls í Reykjavík.
Á blaðamannafundi á miðvikudag
var kynntur nýr söguvefur Ölgerð-
arinnar þar sem farið er yfir hundr-
að ára sögu fyrirtækisins í máli og
myndum. Vefinn má finna á 100ara.
olgerdin.is.
Þá tilkynntu Októ Einarsson,
stjórnarformaður Ölgerðarinnar,
og Andri Þór Guðmundsson for-
stjóri að fyrirtækið ætlaði að beita
sér sérstaklega í ýmsum sam-
félagsverkefnum á afmælisárinu.
„Við störfum af ábyrgð og það er
hluti af okkar starfi að sinna sam-
félaginu og þakka fyrir okkur með
því að gefa til baka. Á afmælisárinu
munum við vinna að 100 verkefnum
sem snúa að ábyrgð okkar gagnvart
samfélaginu og veitum 100 milljón-
um króna í margvísleg verkefni,“
segir Andri Þór Guðmundsson í til-
kynningu.
atvinnulíf StórfyrirtæKi á tímamótum
Ölgerðin hundrað ára
Starfsfólk Ölgerðarinnar endurskapaði andrúmsloftið frá því fyrirtækið var stofnað
fyrir hundrað árum á blaðamannafundi í vikunni. Ljósmynd/Hari
8 fréttir Helgin 19.-21. apríl 2013