Fréttatíminn - 19.04.2013, Qupperneq 16
RENAULT KANGOO DÍSIL
EYÐSLA 4,9 L / 100 KM*
VINSÆLIR
ENDA SPARNEYTNIR ATVINNUBÍLAR
RENAULT TRAFIC DÍSIL
EYÐSLA 6,9 L / 100 KM*
RENAULT MASTER DÍSIL
EYÐSLA 8,0 L / 100 KM*
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
5
6
4
*
E
yð
s
la
á
1
0
0
k
m
m
ið
a
ð
v
ið
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
k
s
tu
r.
BL ehf. Sævarhöfða 2 / 525 8000
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622
Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – Bílasala Akureyrar / 461 2533
www.renault.is
RENAULT – Í LIÐI MEÐ ATVINNUREKENDUM Í 100 ÁR.
Það er ekki að undra að Renault sé stærstur á sviði sendibíla í Evrópu.
Eftir meira en 100 ár í bransanum vita þeir hjá Renault hvað skiptir máli
þegar bíllinn er vinnustaðurinn þinn: áreiðanleiki, sveigjanleiki og ekki
síst þægindi.
TRAFIC STUTTUR
VERÐ FRÁ: 3.418.327 KR. ÁN VSK.
2,0 DÍSIL - 115 HÖ VERÐ: 4.290.000 KR. M. VSK.
MASTER MILLILANGUR
VERÐ FRÁ: 4.292.821 KR. ÁN VSK.
2,3 DÍSIL - 125 HÖ VERÐ: 5.390.000 KR. M. VSK.
KANGOO II EXPRESS
VERÐ: 2.541.833 KR. ÁN VSK.
1,5 DÍSIL - 90 HÖ VERÐ: 3.190.000 KR. M. VSK.
Fullyrt: Unnt er að
leggja „hvalrekaskatt“ á
hagnað bankanna.
Hver: Dögun, Lýðræð-
isvaktin o.fl.
Staðreynd: Stjórnar-
skrá lýðveldisins bannar
afturvirka skattlagn-
ingu. Þar með er úti-
lokað að skattleggja
frekar en orðið er þann
hagnað sem þegar hefur
myndast í
bönkunum.
En ýmsir
viðbótar-
skattar voru
lagðir á
banka á kjör-
tímabilinu.
Fyrir utan
venjulegan
tekjuskatt
hlutafélaga
(nú 20%
af hagn-
aði) greiða
bankar og
fjármála-
fyrirtæki
fjársýsluskatt (6,75% af
launagreiðslum), sér-
stakan fjársýsluskatt
(6% á hagnað umfram
1.000 milljónir á ári),
og sérstakan skatt (um
0,13% af heildarskuldum
á efnahagsreikningi).
Fleiri skatta mætti vita-
skuld leggja á, en þeir
yrðu aðeins framvirkir,
ekki afturvirkir.
Fullyrt: Unnt er að
skattleggja hagnað
kröfuhafa af verslun
með kröfur í hina föllnu
banka.
Hver: Framsóknar-
flokkurinn, Flokkur
heimilanna o.fl.
Staðreynd: Ef kröfu-
hafinn er erlendur
greiðir hann ekki skatta
á Íslandi heldur í því
landi þar sem hann
skilar skatt-
framtali. Ef
kröfuhafinn
er innlendur
greiðir hann
tekjuskatt af
hagnaði af
verslun með
kröfur. Ekki
er unnt að
skattleggja
slíkan hagn-
að afturvirkt
umfram
það sem
orðið er, enda bannar
stjórnarskráin aftur-
virka skattlagningu.
Hins vegar er að öllum
líkindum gerlegt að taka
útgönguskatt af krónum
sem erlendir kröfuhafar
eignast en vilja skipta
yfir í gjaldeyri og fara
með úr landi. Slíkan
skatt þarf þá að setja á
með lögum áður en létt
verður á höftunum og
útgreiðslur heimilaðar.
Fullyrt: Hagvöxtur
frá 2009 hefur verið
neikvæður.
Hver: Flokkur heimil-
anna.
Staðreynd: Verg
landsframleiðsla dróst
saman frá 2009-2010 um
4,1%. Síðan hefur verið
jákvæður
hagvöxtur,
um 2,9%
2010-2011
og 1,6%
2011-2012,
samkvæmt nýjustu áætl-
un Hagstofunnar. Verg
landsframleiðsla var
lítillega meiri 2012 en
2009, á föstu verðlagi.
Fullyrt: Erlendar
skuldir ríkissjóðs eru
vandamál.
Hver: Framsóknar-
flokkurinn
Staðreynd: Skuldir
ríkissjóðs eru vissulega
miklar, og áhyggjuefni,
en bróðurpartur þeirra
er í krónum. Erlendu
skuldirnar eru einkum
vegna
gjaldeyris-
forða og
ríkið á
eignir í
gjaldeyri á
móti þeim.
Skuldir
ríkissjóðs
eru að stærstum hluta
til komnar vegna gjald-
þrots Seðlabankans,
vegna endurreisnar
bankanna og vegna upp-
safnaðs halla á ríkissjóði
í kjölfar tekjusamdráttar
í hruninu.
Fullyrt: Bankar hafa
ótakmarkaðar heimildir
til að búa til peninga.
Hver: Dögun
Staðreynd: Bankar
starfa innan ramma
reglna sem Seðlabanki
og Fjármálaeftirlitið
setja. Með-
al annars
er kveðið á
um svokall-
aða bindi-
skyldu, þar
sem bönk-
um ber
að leggja
tiltekið
hlutfall innlána inn á
reikning hjá Seðlabank-
anunm, lausafjárhlut-
föll og eiginfjárhlutföll.
Þessar reglur takmarka
hversu mikið bankar
geta „gírað“ eigið fé
sitt í útlánastarfsemi.
Bankar hafa því ekki
ótakmarkaðar heimildir
til að lána út („búa til“)
peninga.
Fullyrt: Í Evrópu
borgarðu íbúðina rúm-
lega einu sinni, á Íslandi
rúmlega tvisvar.
Hver: Samfylkingin
Staðreynd: Það
hversu oft við borgum
íbúðina okkar ræðst af
raunvöxtum, þ.e. vöxt-
um umfram verðbólgu.
Verðbólgan sjálf kemur
á endanum ekki inn í
jöfnuna enda er
hún bæði fyrir
ofan strik
(í íbúða-
verðinu)
og neðan
(í greiðslum
af láninu). Ef
miðað er við 40
ára íbúðalán með jafn-
greiðslum (eins og hér
tíðkast) þá greiðum við
1,46 íbúðir ef raunvextir
eru 2% en 2,24 íbúðir ef
raunvextir eru 4,7% eins
og nú bjóðast hjá Íbú-
ðalánasjóði. Munurinn
er nær því að vera 50%
en 100% eins og gefið er
í skyn.
Fullyrt: Lækka má
skatta svo sem tekju-
skatt, virðisaukaskatt,
veita má skattaaf-
slátt sem nota má til
að greiða inn á hús-
næðislán, og lækka má
bensínverð og þar að
auki að leggja af eða
a.m.k. lækka veiðigjald-
ið verulega.
Hver: Sjálfstæðiaflokk-
urinn
Staðreynd: Sjálf-
stæðisflokkurinn heldur
þessu fram en segir
hins vegar lítið sem
ekkert um hvernig á að
skera nið-
ur á móti;
ef eitthvað
vill hann
fremur
auka út-
gjöld en
minnka
þau. Dæmið gengur því
alls ekki upp, jafnvel
þótt menn héldu að ein-
hver hagvaxtaraukning
fylgdi skattalækkunum,
sem er umdeilanlegt.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Stjórnmál Fullyrðingar og Staðreyndir í koSningabaráttunni
Fullyrðingar sem
standast ekki skoðun
Flokkarnir sem bjóða fram til Alþingis keppast um að ná athygli kjósenda. Margir nota til þess
upphrópanir og fullyrðingar sem við nánari skoðun ýmist standast einfaldlega ekki, eru byggðar
á rangfærslum eða jafnvel vanþekkingu á málefninu. Fréttatíminn tók saman nokkrar af þessum
fullyrðingum og leitaði til ýmissa sérfræðinga til að leggja á þær mat. Samkvæmt því erum við
ekki að borga íbúðina okkar tvisvar, ekki er hægt að leggja svokallaðan „hvalrekaskatt“ á hagnað
bankanna, erlendar skuldir eru ekki vandamál og skattalækkanir borga sig ekki sjálfar.
16 fréttaskýring Helgin 19.-21. apríl 2013