Fréttatíminn - 19.04.2013, Page 44
44 heilsa Helgin 19.-21. apríl 2013
Heilsa Nokkur góð ráð fyrir þá sem Hafa tekið fram HlaupaskóNa
NORÐURKRILL
Fæst flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Betri einbeiting og betri líðan
Þegar maður rekur sitt eigið fyrirtæki, er í fullu fjarnámi og á auk þess tvö ung börn,
þá skiptir öllu máli að heilinn virki rétt og vel. Ég byrjaði að nota Norðurkrill fyrir
fjórum mánuðum og fann nánast strax mun á mér. Einbeitingin varð betri auk þess
sem ég varð vör við mjög jákvæð áhrif á lesblinduna hjá mér. Fyrir utan skarpari
einbeitingu líður mér allri betur líkamlega og andlega.
Það skiptir mig miklu máli að Omega 3 í Norðurkrill sé hreint og ómengað og eftir að
hafa prufað þó nokkuð margar tegundir af Omega 3 olíum get ég fullyrt að Norðurkrill
er besta Omgea 3 olía sem ég hef notað.
Ég hvet alla þá sem vilja skerpa á minni og einbeitingu að taka inn Norðurkrill.
Heilinn í okkur verðskuldar aðeins það besta.
Jóhanna S. Hannesdóttir,
þjóðfræðinemi og eigandi Sunnlenska.is
NORÐURKRILL er eitt hreinasta og öflugasta form af OMEGA 3-fitusýrum.
Unnið úr botnsjávardýrinu krill sem er veitt við ómengað Suðurskautið.
Aðeins þarf 1-2 hylki á dag til að mæta
dagsþörfinni og það er ekkert eftirbragð,
uppþemba eða magaólga sem oft fylgir
inntöku á fiski- og jurtaolíum.
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Góðir skór eru nauðsyn
Mikilvægt er að hlaupa í góðum skóm til
að draga úr líkum á meiðslum. Munum
að skór slitna og þá þarf að endurnýja,
alveg eins og dekkin undir bílnum.
Setjum okkur raunhæf markmið
Setjum okkur raunhæf markmið og
njótum þess að ná árangri sem er besta
hvatningin til að halda áfram. Munum
að margt smátt gerir eitt stórt. Fyrir
byrjendur er gott er að æfa að lágmarki
þrisvar sinnum í viku í tuttugu til þrjátíu
mínútur í senn.
Upphitun er mikilvæg
Gott er að hita líkamann upp áður en
haldið er af stað. Léttar æfingar í fimm
mínútur koma blóðflæðinu af stað. Til
dæmis er hægt að gera nokkrar hné-
beygjur og sveifla höndum með, sveifla
fótum fram og aftur eða til hliðar. Einnig
er gott að lyfta sér nokkrum sinnum
upp á tær.
Þolinmæði þrautir vinnur allar
Mikilvægt er að sýna þolinmæði því
líkaminn þarf að venjast álaginu.
Of mikið álag kemur okkur aðeins í
vandræði og eymsli og þreyta gera
vart við sig. Fyrir byrjendur er gott að
hafa í huga að miða við spjallhraða,
það er að segja að geta með góðu móti
spjallað á meðan hlaupið er. Gott er að
skokka og ganga til skiptis og hlaupa
til dæmis á milli tveggja ljósastaura og
ganga á milli næstu þriggja. Þetta er
gott að endurtaka í fimmtán til tuttugu
mínútur eftir upphitun. Smátt og smátt
er svo hægt að auka vegalengdina sem
hlaupin er.
Slökun eftir hlaup mikilvæg
Í lok hlaups er gott að kæla sig niður
með rólegu skokki eða göngu í þrjár til
fimm mínútur og teygja síðan vel á.
Hlaupaveðrið á Íslandi
er alltaf gott
Það er nánast alltaf gott hlaupaveður á
Íslandi en mikilvægt að klæða sig rétt.
Það er fátt betra en að ljúka hlaupi í
hressilegu roki og rigningu. Þá finnst
okkur við alveg ótrúlega dugleg og það
ýtir undir góða andlega liðan.
Æfingafélagi hjálpar
Góður æfingafélagi getur veitt hvatningu
en treystum fyrst og fremst á okkur sjálf.
Fjölbreytni gerir gæfumuninn
Líkaminn þarf á fjölbreytni að halda
til að eflast og dafna. Gott er að hafa
hlaupaæfingar fjölbreyttar, til dæmis
geta brekkuhlaup og hraðaaukningar
hrist vel upp í æfingaáætluninni.
Styrktarþjálfun er
góð með hlaupum
Stundum styrktarþjálfun samhliða
hlaupum. Styrktarþjálfun með eigin
líkamsþyngd er hægt að framkvæma
hvar sem er án nokkurs búnaðar.
Borðum hollan mat
Til að ná árangri er mikilvægt að borða
næringarríka fæðu og drekka vel af
vatni. Kolvetni eins og ávextir, grænmeti
og kornvörur eru vinir hlauparans. Öll
orkuefnin prótein, kolvetni og fita eru
okkur jafn mikilvæg.
Allt er hægt ef viljinn
er fyrir hendi
Munum að við stjórnum eigin lífi. Ef
okkur langar til að geta hlaupið, þá
getum við það. Það er allt hægt ef viljinn
er fyrir hendi.
Hlaupum í sumar
Nú þegar daginn fer að lengja
eru margir sem dusta rykið
af hlaupaskónum og spretta
úr spori eftir dimma vetrar-
mánuði. Fréttatíminn fékk
Kristjönu Hildi Gunnarsdóttur
íþróttafræðing til að gefa
nokkur góð ráð fyrir þá sem
vilja koma hlaupum inn í sína
daglegu rútínu í sumar.
Kristjana Hildur Gunnarsdóttir íþróttafræðingur segir nánast alltaf gott hlaupa-
veður á Íslandi og að fátt sé betra en að ljúka hlaupi í hressilegu roki og rigningu.
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 7.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð frá 40.000
Höfðagaflar frá 5.000
Sjónvarpsskápar frá 25.000
Rúm 153cm frá 157.000
Speglar frá 5.000
Fjarstýringavasar frá 2.500
Hægindastólar frá 99.000
Tungusófar frá 75.400
Hornsófar frá 139.900
Sófasett frá 99.900
AquaClean áklæði
kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
Hornsófar - Tungusófar - Sófasett
Sófasett - Hornsófar - Tungusófar
Tungusófar - Sófasett - Hornsófar
Tungusófar - Sófasett - Hornsófar
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl.9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Patti verslun I Dugguvogi 2 I Sími: 557 9510 I vefsíða www.patti.is
Nýtt
Torino
Mósel
Milano
Basel
Paris
Láttu hjartað ráða
Sheila Kitzinger
Fyrirlesturinn er öllum opinn og kostar 18.900.-
en 15.500 ef greitt er fyrir 20. apríl. Innifalið í verði er
kaffi í hléum auk hádegisverðar. Miða má nálgast hjá
Soffíu Bæringsdóttur. soffia@hondihond.is
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri
á Hótel Natura 4. maí kl. 9-16
Sheila Kitzinger heldur
erindi um kynhormóna
og orku og um erfiða
fæðingarreynslu og
streituröskun.