Fréttatíminn - 19.04.2013, Síða 49
Penélope Cruz er andlit sænska
tískurisans Lindex fyrir vorlínu
fyrirtækisins. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem leikkonan situr
fyrir hjá þekktum merkjum en
hún hefur áður verið andlit Ralph
Lauren, Mango og Ĺ Oreal.
„Ég hef haft ótrúlega gaman af
því að vera fyrirsæta fyrir stóra
alþjóðlega tískukeðju eins og Lin-
dex. Mér líkar sérstaklega við það
hve línan hæfir mínum stíl vel, „
segir Penélope Cruz.
Síðan hún sló í gegn árið 1997
hefur Penélope leikið í fjölda
þekktra kvikmynda eins og All
About My Mother ásamt mynd
Pedro Almodóvar, Volver árið
2006. Hún hlaut óskarsverðlaun
sem besta leikkona í aukahlut-
verki fyrir hlutverk sitt sem
María Elena í kvikmynd Woody
Allen, Vicky Cristina Barcelona.
Penélope hefur starfað sem
sjálfboðaliði í Úganda og Ind-
landi fyrir Stofnun Móður Teresu
og gaf hún launin sem hún fékk
fyrir fyrstu Hollywood-kvikmynd-
ina sína The Hi-Lo country, til
stofnunarinnar.
Herferðirnar þrjár hjá Lindex
byggja á sögu þar sem stjörnunni
er fylgt yfir helgi. Föstudags-
kvöldið er hin fullkomna veisla
með glæsileika, rauðum dregli
og ljósmyndurum. Á laugardeg-
inum sjáum við Penélope slaka á
í sínu nánasta umhverfi, klædd
sínum uppáhalds flíkum. Í loka-
herferðinni fylgjum við Penélope,
íklæddri aðalflíkum sumarsins, í
sérstakan sunnudagsmorgunmat
á heimili við Miðjarðarhafið.
tíska 49Helgin 19.-21. apríl 2013
er ódýrara! 15%
AFSLÁTT
UR
Gildir fyrir allar pakkningastærðir
og styrkleika af Nicotinell Fruit
facebook.com/cocacolalight
M
A
R
C
J
A
C
O
B
S
is
a
tr
ad
em
ar
k
ow
ne
d
by
M
ar
c
Ja
co
bs
T
ra
de
m
ar
ks
, L
LC
. C
oc
a-
C
ol
a
lig
ht
is
a
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
k
of
T
he
C
oc
a-
C
ol
a
C
om
pa
ny
. ©
2
01
3
Th
e
C
oc
a-
C
ol
a
C
om
pa
ny
.
Tíska spænsk leikkona og sænsk verslun
Cruz er nýtt andlit Lindex
Penélope Cruz situr fyrir í þremur nýjum auglýsingaherferðum
Lindex. Hún var fyrsta latneska leikkonan til að fá óskarsverðlaun.
Penélope Cruz segir að vorlína Lindex sé í takt við hennar eigin stíl.