Fréttatíminn - 19.04.2013, Page 52
52 skák og bridge Helgin 19.-21. apríl 2013
Skákakademían ÆSiSpennandi keppni RimaSkóla og álfhólSSkóla
Strákarnir úr Kópavogi Íslandsmeistarar!
S káksveit Álfhólsskóla úr Kópavogi vann sigur á gríðarlega spennandi Íslandsmóti barnaskóla-sveita sem fram fór í Rimaskóla um helgina.
Skáksveit Rimaskóla varð í öðru sæti og skáksveit
Hraunvallaskóla úr Hafnarfirði tók þriðja sætið.
Sveitir Álfhólsskóla og Rimaskóla höfðu allmikla
yfirburði. Eftir fyrri dag mótsins voru sveitirnar
jafnar og efstar með 16 vinninga í 20 skákum. Í sjöttu
umferð unnu þær báðar 3-1 og í sjöundu og áttundu
umferð lögðu þær báðar andstæðinga sína 4-0. Þær
voru því hnífjafnar fyrir lokaumferðina, en þá sigraði
Álfhólsskóli sveit Ölduselsskóla 4-0 en Rimaskóli
vann Melaskóla 3-1. Þar með var ljóst að Álfhólsskóli
hafði varið titilinn.
Álfhólsskóli hlaut 31 vinning í 36 skákum, Rima-
skóli 30, og svo voru sjö vinningar í næstu sveitir sem
voru Hraunvallaskóli úr Hafnarfirði og Hörðuvalla-
skóli með 23 vinninga. Hraunvallaskóli hlaut þriðja
sætið. Geysigóður árangur hjá þessari sveit sem
hefur aldrei áður tekið þátt á mótinu.
Rimaskóli varð efst b-sveita en Salaskóli varð efst
c-, d-, e- og f-sveita sem segir margt um þá miklu
breidd sem kennarinn og skákifrömuðurinn Tómas
Rasmus hefur byggt upp í skólanum.
Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, afhenti
verðlaunin á mótinu, en keppendur voru alls um
200. Sigursveit Álfhólsskóla skipuðu Dawid Kolka,
Felix Steinþórsson, Guðmundur Agnar Bragason og
Oddur Þór Unnsteinsson. Þjálfari og liðstjóri Íslands-
meistaranna er Lenka Ptacnikova stórmeistari, sem
náð hefur frábærum árangri sem skákkennari barna.
Skemmtilegt skákmót í Stykkishólmi
Á morgun laugardag verður mikil skákhátíð í
grunnskólanum í Stykkishólmi, en þá fer Árnamessa
fram í fjórða sinn. Skákdeild Fjölnis stendur að
þessu skemmtilega krakkaskákmóti, sem haldið er
til minningar um Árna Helgason, heiðursborgara í
Stykkishólmi, sem lést árið 2008.
Veglega er staðið að Árnamessu. Boðið er upp á
rútuferð frá BSÍ klukkan 9.30 á laugardagsmorgun
og aftur frá Stykkishólmi seinni partinn. Öllum þátt-
takendum verður boðið upp á pylsuveislu fyrir mót og
einnig ókeypis veitingar í skákhléi. Í skákhléi verður
einnig spurningakeppni skákfélaga þar sem keppt er
um veglegan verðlaunagrip.
Tefldar verða sex umferðir á skákmótinu og í lok
mótsins hefst mikil verðlaunahátíð því að rúmlega
30 verðlaun og happadrættisvinningar verða í boði
fyrir sigurvegara og heppna þátttakendur. Keppt er í
þremur flokkum, eldri og yngri flokk og flokki Snæ-
fellinga. Sigurvegari hvers flokks fær eignarbikar að
launum.
Verð fyrir þá sem koma með rútunni er 2000 kr.
Aðrir greiða 500 kr. Boðsgestir eru skákmeistarar
Álfhólsskóla, Rimaskóla og Hraunvallaskóla sem
urðu í 1.-3. sæti á Íslandsmóti barnaskólasveita. Til-
valið að demba sér í skák- og skemmtiferð í Hólminn!
Skákþrautin
Svartur leikur
og vinnur.
Allt er á tjá og tundri á
taflborðinu, en hér lumar
svartur á óvæntum og
lúmskum leik. Hvað gerði
Adianto gegn Van den
Doel?
U m síðustu helgi fór fram Íslands-mótið í tvímenningi. Þátttaka var í dræmari kantinum, en flest sterk-
ustu pörin mættu á svæðið. Mótið var mjög
jafnt og 8 pör sátu á einhverjum tímapunkti í
efsta sæti. Eftir harða baráttu röðuðu lands-
liðspörin sér í efstu sætin. Röð efstu para:
1. Bjarni Einarsson – Aðalsteinn Jörgensen 2232
2. Jón Baldursson – Þorlákur Jónsson 2172
3. Ómar Olgeirsson – Ragnar Magnússon 2096
4. Ásgeir Ásbjörnsson – Hrólfur Hjaltason 2071
5. Valgarð Blöndal – Valur Sigurðsson 2059
6. Gunnlaugur Karlsson – Magnús E. Magnússon 2014
7. Páll Valdimarsson – Kristján Blöndal 2005
8. Guðjón Sigurjónsson – Vignir Hauksson 1982
Alls tóku 32 pör þátt í mótinu og tókst það í
alla staði vel.
Í spili dagsins sjáum við handbragð Íslands-
meistaranna í AV en Kjartan Ásmundsson
og Stefán Jóhannsson eru í andstöðunni.
Vestur gefur, enginn á hættu
♠10
♥G976
♦ÁKDG5
♣G109
♠ÁD8762
♥--
♦7643
♣K86
♠ K5
♥ AD853
♦ 9
♣ ÁD753
♠ G943
♥ K1042
♦ 1082
♣ 42
n
S
V a
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta 2 tíglar 3 hjörtu 3 spaðar
4 hjörtu dobl pass ///
Harka í sögnum skilaði sigurvegurunum
mörgum stigum, en hér fóru þeir í þunnt
geim sem norður doblaði. Samningur-
inn virðist við fyrstu sýn fara niður vegna
slæmrar tromplegu, en spilið má vinna með
vandaðri spilamennsku. Útspilið var ♠A,
sem fylgt var eftir með ♦K sem sagnhafi
trompaði. Sagnhafi lagði næst niður ♥A og
sá hina slæmu tromplegu. Í kjölfarið spil-
aði hann hjarta á tíuna og svínaði laufi. Tók
næst ♣A og trompaði laufið frítt. Næst var
spaða spilað að kóngnum sem suður tók á
♠A. Suður reyndi að stytta sagnhafa með
því að spila tígli, en það dugði ekki til. Sagn-
hafi spilaði einfaldlega laufum og norður
fékk aðeins einn slag á tromp. Spilið gaf
sigurvegurunum 29 stig af 30 mögulegum.
Síðasta þriðjudagskvöld hófst fjögurra
kvölda tvímenningskeppni Sushi Samba í
BR. Gunnlaugur Karlsson og Kjartan Ingv-
arsson fóru geyst af stað og voru með rúm-
lega 75% skor þegar ein umferð var eftir. Þá
rákust þeir á vegg og þurftu að láta efsta
sætið af hendi eftir annars ótrúlega frammi-
stöðu framan af. En mótið er rétt að byrja og
ljóst að hart verður barist næstu þriðjudags-
kvöld.
Staðan eftir eitt kvöld af fjórum í Sushi
Samba tvímenningnum:
1. Jón Baldursson – Þorlákur Jónsson 322,4 (64 %)
2. Gunnlaugur Karlsson – Kjartan Ingvarsson 319,1
3. Vignir Hauksson – Guðjón Sigurjónsson 290,2
4. Bergur Reynisson – Stefán Stefánsson 279,9
5. Valgarð Jakobsson – Björgvin Sigurðsson 278,2
Búið er að velja landsliðin sem keppa fyrir
Íslands hönd á norðurlandamótinu í Bridge
sem fer fram á Íslandi í lok maí. Í opnum
flokki; Jón Baldursson – Þorlákur Jónsson,
Bjarni Einarsson – Aðalsteinn Jörgensen
og Guðmundur Snorrason – Ragnar Her-
mannsson.
Í kvennaflokki; Anna Ívarsdóttir – Guð-
rún Óskarsdóttir, Bryndís Þorsteinsdóttir –
María Haraldsdóttir og Ólöf Þorsteinsdóttir
– Svala Pálsdóttir.
íslandsmótið í sveitakeppni hefst fimmtu-
daginn 25. apríl og verður spilað í Perlunni.
Í næstu viku verður umfjöllun um hverjir eru
líklegir til að láta að sér kveða.
BRidge íSlandSmótið í tvímenningi
Landsliðspörin röðuðu sér í efstu sætin
Lausn: 1.... Bd1! 2.Dxd1
Dxf2 skák og mát!
Landmark leiðir þig heim!
* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum!
100% þjónusta = árangur*
Sími 512 4900
landmark.is
Magnús
Einarsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 897 8266
Sigurður
Samúelsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 896 2312
Sveinn
Eyland
Löggiltur
fasteignasali
Sími 690 0820
Íris Hall
Löggiltur
fasteignasali
Þórarinn
Thorarensen
Sölustjóri
Sími 770 0309
Kristberg
Snjólfsson
Sölufulltrúi
Sími 892 1931
Eggert
Maríuson
Sölufulltrúi
Sími 690 1472
Haraldur
Ómarsson
sölufulltrúi
sími 845 8286
Sigurður Fannar
Guðmundsson
Sölufulltrúi
Sími 897 5930
Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni Einarsson ásamt Jafet Ólafssyni, formanni BSÍ.
Dawid
Kolka
leiddi
Álfhóls-
skóla til
sigurs,
annað
árið í
röð.
Lenka Ptacnikova hefur náð frábærum árangri sem skákkenn-
ari barna.