Fréttatíminn - 21.12.2012, Side 6
SkipulagSmál kirkjugarðar borgarinnar að fyllaSt
Nýr kirkjugarður
bak við Bauhaus
Hefja þarf framkvæmdir við nýjan kirkjugarð nú þegar svo hann verði tilbúinn í tæka tíð því gera
má ráð fyrir að Gufuneskirkjugarður fyllist innan 8 ára. Svo langan tíma tekur að undirbúa nýjan
garð og telja Reykjavíkurprófastsdæmi að borgin þurfi að bregðast við hið snarasta.
Ú tlit er fyrir að á næstu árum verði allir kistugrafreitir í höf-uðborginni fullnýttir og verði
ekki brugðist við nú þegar horfir til
vandræða. Þórsteinn Ragnarsson, for-
stjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæma, segir að fyrir nokkrum árum
hafi borgin úthlutað svæði í hlíðum
Úlfarsfells undir nýjan kirkjugarð. Jarð-
vegsefni í hann átti að koma úr hverfinu
sunnan Úlfarsfells en að sögn Þórsteins
hefur lítið verið byggt í hverfinu eftir
hrun og áform um frekari byggingar
voru sett á bið.
„Við höfum gríðarlega þörf fyrir nýjan
kistukirkjugarð innan næstu átta ára en
það tekur þann tíma að útbúa kirkju-
garð. Svæðið þarf að drena, gróðursetja
þarf tré og koma upp gatnakerfi,“ segir
Þórsteinn. Svæðið er á hjalla í um 100
metra hæð fyrir ofan Bauhaus, utan
gatnakerfis.
Kirkjugarðar Reykjavíkurprófasts-
dæma sendu því í október inn erindi
til skipulagsráðs Reykjavíkurborgar
þar sem óskað er eftir úthlutun svæðis
í Geldinganesi þar sem hægt verði að
ganga að úthlutuðu landi sem þarfnast
minni undirbúnings en svæðið við Úlf-
arsfell, að sögn Þórsteins. Skipulagsráð
hefur ekki svarað erindinu.
Um fjórðungur er ónýttur af Gufunes-
kirkjugarði og er gert ráð fyrir að hann
muni fyllast á næstu átta árum. „Við
þurfum úrlausn okkar mála hið snarasta
því tíminn vinnur ekki með okkur í
þessu,“ segir Þórsteinn.
Svæðið í Úlfarsfelli er um 22 hektarar
að stærð, 220 þúsund fermetrar og gert
er ráð fyrir að þar megi koma fyrir rúm-
lega 26 þúsund leiðum. Dregið hefur úr
þörf á grafreitum því líkbrennsla hefur
aukist mjög á undanförnum árum og
er því gert ráð fyrir að grafreiturinn í
Úlfarsfelli muni duga í áratugi.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Við höfum
gríðarlega þörf
fyrir nýjan
kirkjugarð
innan næstu
átta ára en það
tekur þann
tíma að útbúa
kirkjugarð.
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, fyrir framan Bauhaus en borgin hefur úthlutað landi
undir kirkjugarð ofan við verslunina. Framkvæmdir við undirbúning hans taka um 8 ár sem er sá tími sem núverandi grafreitur
borgarbúa að Gufunesi mun fyllast. Ljósmynd/Hari
bílar um 20 rafbílar eru á íSlandi
Rafbílasamband Íslands stofnað
Rafbílasamband Íslands var
stofnað í vikunni og um leið var
vígður fyrsti alvöru hleðslu-
póstur fyrir rafbíla í Kringlunni,
á bílastæði á annarri hæð. Í til-
kynningu sambandsins kemur
fram að um 20 rafbílar séu nú
þegar á Íslandi og mættu 8 raf-
bílaeigendur í Kringluna til að
taka þátt í stofnun félagsins. Var
slegið Íslandsmet í leiðinni, því
aldrei hafa jafn margir rafbílar
verið samankomnir á einum stað
á Íslandi áður. Rafbílasamband
Íslands stefnir að því að verða
samtök eigenda og söluaðila á
rafbílum og vörum og þjónustu
þeim tengdum. Tilgangur sam-
bandsins er að vera í málsvari
fyrir sambandsaðila um málefni
rafbílgreinarinnar gagnvart öll-
um opinberum aðilum, samtök-
um, framleiðendum, öðrum við-
skiptamönnum og almenningi
og að efla og þróa rafbílgreinina
á Íslandi. Þegar rafbílarnir átta
lögðu af stað út í umferðina voru
þeir búnir að hlaða inn á sig yfir
nóttina rúmlega 1000 km með
tilsvarandi eldsneytissparnaði.
OPIÐ TIL KL. 20.00 Í KVÖLD!
SKOÐAÐU ÖLL TILBOÐIN Á RAFHA.IS
HELGAR
SPRENGJA
FIMMTUDAG TIL
SUNNUDAGS
00000
w w w. v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
Frábær jólagjöf!
ARD stærsta sjónvarpsstöð Þýskalands um Útkall - Goðafoss
Útkall – sonur þinn er á lí
Útkallsbókin allar um snjóóðin í Neskaupstað
fyrir jól 1974 – einn sögulegasta atburð síðustu aldar
Hraði, spenna og íslenskur raunveruleiki
Páll Baldvin Baldvinsson um
Útkallsbækurnar:
,,Hversdagshetjur sem sýna af sér
umhyggju, ást og virðingu“
Egill Helgason:
,,Feykivinsælar bækur“
Bækur fyrir bæði kyn á öllum aldri
Fræði og alm.efni 25.11-01.12
2. sæti
Óttar Sveinsson
6 fréttir Helgin 21.-23. desember 2012