Fréttatíminn - 21.12.2012, Page 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
V Vetrarsólstöður eru í dag, föstudag, og jólin fram undan. Daginn tekur að lengja á ný sem er gleðiefni þeirra sem búa á norðlæg-um slóðum. Skammdegið er mörgum þungt í skauti. Jólin brjóta það upp með ljósum
sínum og litadýrð. Því er mikilvægt að njóta
þeirra samvista fjölskyldu og vina sem hefð-
bundin eru um jól og styrkja þau bönd sem
mikilvægust eru.
Jólin nú eru löng og hag-
stæð vinnulúnum fjöl-
skyldum. Helgi fer fyrir og
margir njóta þess að hafa
ekki vinnuskyldu á aðfanga-
dag. Þeirra bíða því fimm
frídagar. Vinnudagur flestra
Íslendinga er langur. Reglan
er að báðir foreldrar vinna úti
og hjá ungu fólki gefst oftar
en ekki lítill tíma til samvista
við börn nema um helgar. Þau
eru daglangt í skóla eða leik-
skóla og allir lúnir að kvöldi. Jólin eru alltaf
tillhlökkunarefni, ekki síst barna. Nú gefst
foreldrum tiltölulega langur tími til að njóta
þeirra með börnum sínum.
Fjöldi manna hefur þó starfsskyldur um
jólin, meðal annarra starfsfólk sjúkrahúsa
og annarra heilbrigðis- og umönnunarstofn-
ana, slökkviliðs og lögreglu. Þá er hluti
sjómannastéttarinnar á hafi úti, þótt flest
útgerðarfyrirtæki stefni skipum sínum í
land fyrir jólin svo áhafnirnar fái notið sam-
vista við fjölskyldur sínar yfir hátíðirnar.
Ógleymdir eru sjúklingar sem dvelja fjarri
heimilum sínum um jólin þótt starfsfólk og
ættingjar leggi sig fram um að gera þá vist
sem léttbærasta.
Jól eru viðkvæmur tími fyrir þá sem
misst hafa sína nánustu. Allt er breytingum
háð en minningar leita á hugann. Jólin eru
tími hefða. Þá vilja flestir hafa sitt í föstum
skorðum. Hluti fólks býr við fjárhagslegar
þrengingar. Enn hefur ekki tekist að ráða
fram úr vanda margra þeirra sem fóru verst
út úr því efnahagsfárviðri sem hér varð í
kjölfar falls bankanna haustið 2008. Það
hlýtur að vera meðal meginefna í kosn-
ingabaráttunni sem fram undan er fyrir al-
þingiskosningarnar á nýju ári og úrlausnar-
efni að þeim loknum að koma þeim málum
endanlega í þann farveg að bærilegt sé.
Fjárhagslegar áhyggjur hafa áhrif á sam-
band fólks og börn verða óhjákvæmilega
fyrir áhrifum enda fara áhyggjur foreldra
ekki framhjá börnum þegar þau eru komin
til vits og ára.
Það er því í þágu fjölskyldnanna að
atvinnulífi sé búið hagstætt umhverfi. Það
er meginefni stjórnvalda hverju sinni að
treysta þá undirstöðu og um leið velmegun
fjölskyldnanna. Að því gefnu að heilsa sé
í lagi byggist annað á því, hvort heldur er
frístundastarf, menningarneysla, skólavist
við hæfi eða hvað annað. Sérhver einstak-
lingur þarf að finna tilgang með lífi sínu.
Fagna ber því að atvinnulausu fólki hefur
fækkað undanfarin misseri en betur má ef
duga skal.
Mörgum blöskra þau átakastjórnmál
sem einkennt hafa þetta kjörtímabil. Slík
átök eru að vísu ekki nýlunda hér á landi,
um það má rekja fjölmörg dæmi frá fyrri
áratugum. Þá er heldur ekki óeðlilegt að
átök fylgi í kjölfar mikils efnahagsáfalls
eins og hér varð. Það þing sem kosið verður
í vor hlýtur þó að gera sér grein fyrir því að
þreytu gætir í samfélaginu gagnvart óbil-
girni og ósætti. Stjórnmálaleiðtogar sem
leiða munu sitt lið inn í nýtt kjörtímabil,
hvort heldur þeir verða í stjórn eða stjórnar-
andstöðu, hljóta að taka tillit til krafna al-
mennings um að bökum verði snúið saman
í þjóðarþágu.
Ef rétt er á spilum haldið á íslensk þjóð
að lifa í velmegun. Auðlindir og mannauð
eigum við. Þegar allt kemur til alls er það
fleira sem sameinar þessa fámennu þjóð en
sundrar. Það sést best þegar raunverulega
bjátar á. Þá stendur þjóðin sem einn maður
til styrktar þeim sem á stuðningi þurfa að
halda.
Fréttatíminn óskar landsmönnum öllum
gleðilegra jóla.
Jólahátíð og hækkandi sól
Fleira sameinar en sundrar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Maður vikunnar að þessu sinni er Stefán
Pálsson. Hann er annálaður friðarsinni og gaf
nýverið út bókina ð–ævisaga.
Íslenskir friðarsinnar hafa um árabil efnt
til friðargöngu niður Laugaveginn á Þorláks-
messu eða í rúmlega þrjá áratugi. Krafan
er einföld, beðið er um frið og afvopnun
í heiminum. „Þessi ganga er orðin fastur,
ómissandi liður í jólahaldi margra. Það er líka
svo gott að taka frí frá neyslunni um stund og
huga að þessum málum. Gangan fer oftar en
ekki fram í skugga átaka, sem við erum jafn-
vel partur af,“ segir Stefán. Í ár, líkt
og áður, safnast göngumenn saman
við Hlemm og ganga niður Laugaveg
og staðnæmast við Ingólfstorg þar sem
tekur við friðarræða borgarstjórans,
Jóns Gnarr. „Að þessu sinni verðum við
dreifð um jólaþorpið en við því eru
þó ýmis ráð. Ræðumaðurinn,
Jón Gnarr, fær pláss á svölum
á Hótel Vík og okkur er sagt
að torgið taki vel allan þann
fjölda sem saman kemur.“
MaðuR vikunnaR
Friðarganga í 30 ár
ASKJA NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · Sími 590 2160 · notadir.is Opið frá kl.10-18
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
2-
09
13
Gæða-
bíll
Kia Sorento EX Luxury
Árgerð 2012, 197 hestafla dísilvél, 2199 cc,
ekinn 20.000 km, 6 ár eftir af ábyrgð.
Ásett verð: 6.990.000 kr.
Tilboðsverð: 6.690.000 kr.
Mánaðarleg afborgun: 54.900 kr.**
Bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar, íslenskt leiðsögukort,
heilsársdekk, 17” álfelgur, Bluetooth, hleðslujafnari að aftan,
hraðastillir, rafdrifnir speglar, leðurákæði og margt fleira.
Eyðir frá aðeins 7,4 l/100 km í blönduðum akstri.*
*Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
**Miðað við 3.500.000 kr. útborgun í peningum eða með uppítökubíl ásamt láni frá ERGO
til 84 mánaða. Árleg hlutfallstala kostnaðar: 11,64%. Vextir: 9,70%.
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Gleðileg jól
Með því að kaupa gjafabréf frá Sól í Tógó og gefa þeim sem
þér þykir vænt um ertu sannarlega að gefa gjöf sem gefur.
Andvirði gjafabréfssins rennur til heimilis munaðarlausra
barna í Tógó í Afríku sem er eitt fátækasta ríki heims.
Gefðu gjöf sem gefur
Gjafabréfin eru að verðmæti 1.500 kr. og 3000 kr. Þau fást í Heilsubúðinni, Njálsgötu 1
og Bókabúðinni, Bergstaðastræti 7. Farðu á www.solitogo.org og fáðu nánari
upplýsingar. Þú getur líka sent póst á solitogo@solitogo.org eða hringt í síma
659 7515 og við sendum þér gjafabréf.
Jaques í Aneho.
Nóvember 2012
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt
14 viðhorf Helgin 21.-23. desember 2012