Fréttatíminn - 21.12.2012, Blaðsíða 25
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Virðing
Réttlæti
Færð þú umsaminn hvíldartíma í desember?
Hvíldartíminn
verður fylgt fast eftir,“ segir hann.
Össur segir jafnframt ómögu-
legt á þessu stigi að segja til um
hvernig samningaviðræður muni
þróast í þessum málum sem
öðrum. „Það eru líka breytt við-
horf í Evrópu gagnvart sjálfbærri
nýtingu auðlinda, við tökum eftir
því til dæmis varðandi langvarandi
deilur gagnvart selveiðum Græn-
lendinga, að komið er annað hljóð í
hinn evrópska strokk,“ segir hann.
Össur vill þó ekki ganga svo langt
að segja að umburðarlyndi gagn-
vart hvalveiðum Íslendinga hafi
aukist eða muni aukast. „Ég er ekki
að spá því. Íslendingar munu verða
fastir fyrir en það verður Evrópu-
sambandið líka. Nokkur ríki, þar á
meðal Þýskaland, eru gríðarlega á
móti hvalveiðum,“ segir hann.
Jákvæðni í garð Íslendinga
Christian Dan Preda, sendifulltrúi
ESB vegna aðildarumsóknar Ís-
lands og þingmaður á Evrópuþing-
inu, sagði á fundi með íslenskum
blaðamönnum í Brussel síðast-
liðinn þriðjudag að viðhorf fólks
í löndum Evrópusambandsins
væri almennt neikvætt varðandi
stækkun sambandsins, enda telja
margir að sambandið hafi stækkað
nægilega til austurs en undanfarin
5 ár hafa 12 lönd í Austur-Evrópu
gengið í Evrópusambandið. „Við-
horfið til Íslendinga er hins vegar
jákvætt. Það yrði sorglegt ef Ís-
lendingar ákvæðu að slíta aðildar-
viðræðum,“ segir hann.
Að sögn Preda hefur makríldeila
Íslendinga og nokkurra Evrópu-
þjóða þau áhrif að samningavið-
ræður um kaflann um fiskveiði-
mál gætu tafist af þeim sökum að
deiluþjóðirnar vegna makrílsins
taki fyrir það að Evrópusambandið
bjóði Íslendingum að hefja viðræð-
ur um sjávarútveg fyrr en makríl-
deilurnar hafa verið leystar. Þó svo
að makríllinn hafi ekki bein áhrif
á viðræður Íslendinga um aðild
að ESB gerir hann það því óbeint.
„Íslendingar og Evrópusambandið
eru meðal mestu sérfræðinga í
sjávarútvegsmálum í heiminum.
Ef við ættum ekki að geta samið
um sjávarútveg – þá ætti engin
þjóð að geta það,“ segir hann.
Önnur ástæða fyrir því að
sjávarútvegskaflinn hefur ekki
verið opnaður er sú að sjávarút-
vegsstefna Evrópusambandsins
er í endurskoðun. Meðal annars
er til athugunar að taka upp við-
líka kvótakerfi og Íslendingar
hafa notast við í áratugi. Nokkur
mótmæli voru fyrir utan skrif-
stofur ráðherraráðsins í Brussel í
vikunni þar sem hagsmunaaðilar
og umhverfisverndarsinnar á borð
við Greenpeace mótmæltu kvóta-
úthlutun ESB fyrir árið 2013 sem
fram fór á dögunum.
Breytingar sem fyrirhugaðar
eru á fiskveiðilöggjöf Evrópusam-
bandsins gætu orðið til þess að
kerfið sem stuðst er við í stjórn
fiskveiða færist í átt til þess sem Ís-
lendingar þekkja. Af þeim sökum
yrði um færri undantekningar
fyrir Íslendinga að semja.
Að sögn þeirra sem Fréttatím-
inn ræddi við í Brussel er almennt
talið að landbúnaður og sjávarút-
vegsmálin verði síður en svo þau
svið sem munu reynast samninga-
mönnunum erfiðust. Mörg for-
dæmi séu fyrir því í samningum
annarra landa að undantekningar
séu gerðar á borð við þær sem
líklegt er að Íslendingar telji sig
þurfa á að halda. Ef ekki á sviði
fiskveiða eða landbúnaðar, þá á
öðrum sviðum sem yfirfæra má
yfir á íslenskar aðstæður.
Össur tók undir þetta og
áréttaði að hann efaðist ekki um
að hagsmunir Íslendinga nytu
skilnings í þessum málaflokkum.
„Landbúnaður og sjávarútvegur
mun ekki reynast eins erfiðir
og ýmsir kaflar sem eru undir,“
segir hann. „Samningsmarkmið
Íslenska hagkerfið er háð
nýtingu Íslands á náttúru-
auðlindum sínum og sjálfbærni
lifandi auðlinda hafsins er
forsenda hagsældar landsins til
langs tíma litið. Af þessu leiðir
að Ísland leggur mikla áherslu
á verndun og sjálfbæra nýtingu
á lifandi auðlindum hafsins og
nauðsynlegt er að taka tillit til
alls vistkerfisins. Þar með talin er
sjálfbær nýting á sjávarspendýr-
um, þ.e. á hvölum og selum, sem
löng hefð er fyrir á Íslandi.
Íslands í fiskveiðimálum byggja
á sérhæfðum lausnum byggðum
á sérstöðu Íslands. Vel er hægt
að benda á fyrirmynd að þessu á
öðrum sviðum í öðrum samning-
um,“ segir hann.
Umræðan ekki málefnaleg
Engar almennilegar rökræður
eða málefnalegar umræður eiga
sér stað um Evrópusambandið, að
mati Preda. Neikvæðar fréttir um
ESB sjáist víða en ekki rökræður
þar sem bæði sjónarhorn komi
fram. Hann segir stjórnmál á Ís-
landi ekki frábrugðin stjórnmál-
um í öðrum Evrópulöndum. Í til-
lögum Preda um aðildarumsókn
Íslands lýsir Dan Preda áhyggjum
sínum yfir skiptum skoðunum
ríkisstjórnar á aðild Íslands í ESB.
Aðspurður um hvort þingmenn
á Evrópuþingi geti skilið að-
stæður á Íslandi og hvers vegna
neikvæðar raddir séu háværar
sagðist hann gera það. Hins vegar
segist hann ekki hafa heyrt nógu
góða ástæðu til þess að hætta
við aðildarumsókn. Dan Preda
segir það vera undir Íslendingum
komið hvort þeir dragi aðildarum-
sókn sína til baka en hann segir
skilning annara landa ekki vera
mikinn.
„Það mun hafa neikvæð áhrif
á trúverðugleika landsins ef þið
ákveðið að draga umsóknina til
baka. Öllum þjóðum er annt um
orðspor landsins síns enda skiptir
það máli,“ segir Preda.
Ákvæði um sjávarspendýr í
samningsmarkmiðum Íslands
úttekt 25 Helgin 21.-23. desember 2012