Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.12.2012, Side 26

Fréttatíminn - 21.12.2012, Side 26
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 55 92 4 frá kr. 79.900 3.-9. júlí 79.900 kr. Beint flug til Ljubljana Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. 188.900 kr. Ljubljana og Portoroz 209.900 kr. Sérferð – Perlur Slóveníu Slóvenía Sjá nánar um fjölbreytta möguleika í þessari ferð á www.heimsferdir.is  IngIbjörg reynIsdóttIr ÁhugI Á að kvIkmynda ævIsöguna Gísli Örn gæti orðið Gísli á Uppsölum Leikkonan og rithöfundurinn Ingi- björg Reynisdóttir hefur heldur betur slegið í gegn með bók sinni um einbúann Gísla á Uppsölum. Bókin hefur rokselst og nú eru uppi hugmyndir um að gera bíómynd byggða á henni. Allt er þetta enn á frumstigi en mikill áhugi er á að fá hinn fima Vesturportsleikara Gísla Örn Garðarsson til þess að leika nafna sinn á Uppsölum. Þ etta er allt á frum- stigi en menn eru búnir að setja sig í samband við mig og eru mjög áhuga- samir og lukkulegir með þessa sögu hans Gísla,“ segir Ingi- björg Reynisdóttir, höfundur ævisögu Gísla á Uppsölum um hugsanlega kvikmynd byggða á bókinni. „Fólk hefur greinilega enda- lausan áhuga á Gísla en þetta eru bara þreifingar ennþá. Ég er búin að vera svo rosalega upp- tekin í upplestrum og hef ekki getað sett mig almennilega inn í málið,“ segir Ingibjörg sem hefur á síðustu vikum lesið upp úr bókinni fyrir fólk á 35 stöð- um. „Við ætlum að tala betur saman þegar hægist á eftir jólin en það eru þegar komnar upp vangaveltur um að fá Gísla Örn Garðarsson í hlutverk Gísla.“ Ingibjörg er ekki alveg blaut bak við eyrum þegar kemur að kvikmyndagerð en hún skrifaði handrit unglingamyndarinnar Óróa ásamt leikstjóranum Baldvin Z og fór auk þess með hlutverk í myndinni. Hún segist vel geta hugsað sér að skrifa kvikmynda- handrit upp úr bók sinni. „Ég kann alveg til verka og það kemur alveg til greina að ég skrifi handritið enda er ég orðin svo kunnug þessum einstaklingi. En ég myndi nú samt örugglega fá einhvern sterkan reynslubolta til þess að gera þetta með mér. Ég held að það hljóti alltaf að vera betra.“ Miklar vinsældir ævisögu Gísla á Uppsölum komu Ingibjörgu á óvart og hún segist engan veginn hafa getað séð þetta fyrir. „Þetta er bara búið að vera rosa- lega skemmtilegt og maður átti nú ekki von á að henni yrði svona svakalega vel tekið. Mér finnst líka alþýðan og almenn- ingur svo þakklát fyrir þessa bók og áhuginn er mikill hjá hinum venjulega Íslendingi. Ég er búin að fá ótrúlega mikið af símtölum og bréfum, bæði í tölvupósti og handskrifuðum, alls staðar að á landinu. Og þá sérstaklega frá Vestfjörðum. Fólk er eitthvað svo þakklátt og það yljar mér um hjartaræturnar. Ég gat alveg eins átt von á að fólk yrði bara grautfúlt og leiðinlegt og þætti ég vera að taka eitthvað rosalega stórt upp í mig með því að vera að skrifa þessa bók.“ Ingibjörg telur sögu Gísla geta kennt fólki margt þannig að hún eigi vel erindi á fimu. „Mér finnst líka gaman að sagan um Gísla fái að lifa aðeins lengur með komandi kynslóðum. Hún vekur okkur til umhugsunar um svo ótrúlega margt. Ég tek mér einstaka skáldaleyfi í sögunni en ég byggi hana alger- lega í meginatriðum á heimildum sem ég hef fengið frá fólki að vestan og rosalega mikið úr hans eigin skrif- um þannig að þessar pælingar og vangaveltur í sögunni koma svo mikið frá honum.“ Þórarinn Þórarinsson toti@ frettatiminn.is Gísli Örn Garðarsson þykir ákjósanlegur kostur í hlutverk Gísla á Uppsölum þótt allar vangaveltur um kvikmynd eftir ævisögu hans séu á algeru frumstigi. Ljósmynd/Hari Ingibjörg Reynisdóttir hefur rokselt bók sína um Gísla á Uppsölum og er nú í við- ræðum um að gerð verði kvikmynd eftir bókinni. 26 menning Helgin 21.-23. desember 2012
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.