Fréttatíminn - 21.12.2012, Blaðsíða 60
B íddu, bíddu aðeins, ég ætla að gefa þér svolítið, sagði hann, sleppti mér og fór upp úr rúminu. Ég fékk sting í hjart-
að því ég vorkenndi honum svo mikið og ég
hugsaði: Greyið, hann þekkir ekkert annað
en að kaupa konur og nú ætlar hann að kaupa
mig. Heldur hann virkilega að ég sé svona
hallærisleg eins og hinar? Skilur hann það
ekki að ég elskaði hann hans vegna en ekki
vegna peninganna? Hann kom aftur til mín,
kraup á rúminu við hliðina á mér og setti á
höfuðið á mér svarta silkihúfu.
– Komdu fram og sjáðu þig í speglinum,
hún klæðir þig alveg ofsalega vel, sagði hann.
Ég kyssti hann á kinnina og sagði:
– Takk, en nú er ég að fara. Þakka þér fyrir
allar yndislegu stundirnar og ég óska þér alls
hins besta.
– Nei, bíddu, bíddu, það er meira, sagði
hann og rauk aftur upp úr rúminu. Þá munaði
engu að ég færi að gráta, greyið litla, hann
þekkir ekkert annað en að kaupa konur og nú
heldur hann að hann geti keypt mig. Veslings
maðurinn, kannski trúir hann því ekki að ég
elski hann í alvörunni. Ég gat ekki stillt mig
og byrjaði að gráta inn í mér. Ég vorkenndi
honum svo mikið og fann hvað mér þótti
vænt um hann. Tárin fylltu augun mín og ég
varð að beita mig hörku til að fara frá honum,
en framhjáhald líð ég að sjálfsögðu ekki og
ætlaði að fara úr rúminu strax þegar hann
sneri baki í mig. En hann kom strax aftur upp
í rúm, tók utan um mig og sagði:
– Nei, ekki fara, gerðu það, ekki fara frá
mér! Sjáðu, hvað ég er með handa þér, ég
ætla að gefa þér þetta. Hann rétti mér litla
öskju og utan um hana var borði bundinn í
slaufu og sagði:
– Opnaðu, sjáðu hvað ég gef þér.
Ég opnaði öskjuna með tárin í augunum
og gat ekki talað því ég vildi ekki að hann
heyrði að ég var að gráta inni í mér. Í öskj-
unni var lítið sjal.
– Sjáðu, sjáðu! Sjáðu, þetta er Armani,
þetta er Armani!! Trúir þú því ekki!? Sérðu,
það stendur þarna á borðanum! Trúir þú því
ekki!? Trúir þú því ekki að þetta sé Armani!?
Sjáðu, það stendur þarna! Á ég að kveikja ljós
svo þú sjáir það!?
– Nei, varð ég að stynja upp með grátstaf-
inn í kverkunum. Ef hann hefði kveikt ljósið
hefði ég trúlega fengið höfuðverk strax því
höfuðið á mér var ennþá viðkvæmt eftir þær
vítiskvalir sem ég hafði þurft að þola.
– Komdu þá fram og sjáðu. Leyfðu mér að
setja þetta á þig. Sjáðu, hvað þetta er flott sjal,
sagði hann og setti sjalið á axlirnar á mér.
Ég vorkenndi honum bara ennþá meira og
barðist við grátinn. Hélt hann að mér þætti
það eitthvað merkilegt!? Hélt hann virkilega
að ég væri svona heimsk og hallærisleg!?
Svona hugsaði ég á meðan hann talaði stans-
laust áfram um þessa Armani-pjötlu. Hvað
þetta væri flott og færi mér vel.
Það var nánast algjört myrkur í herberg-
inu, en dyrnar voru opnar fram á ganginn og
þar var ljós. Veslings maðurinn þekkir greini-
lega bara svona heimskar, hallærislegar og
hégómlegar kerlingar, hugsaði ég. Hann
heldur að ég sé svona hallærisleg eins og
allar hinar og mannauminginn er svona hall-
ærislegur sjálfur, hugsaði ég. Þarna kraup ég
á rúminu hans, svo lítil og vanmáttug á þessu
augnabliki vegna sársaukans, en fannst þó
allt í einu ég vera stærri og sterkari en hann.
Ég var alla vega gapandi yfir því hvað mér
fannst hann heimskur, hégómlegur og barna-
legur. Ég var að byrja að átta mig á því þarna
hvernig maður Jón var; svo ægilega hégóm-
legur og fleira hallærislegt sem sýnir mikla
heimsku. Já, vitið var bara ekki meira.
Dansinn hans Gudda
Þessi stutti tími sem ég átti með Gudda var
að mörgu leyti spennandi og skemmtilegur.
Guddi var mjög sjarmerandi á sinn hátt – ein-
hvern
sérstakan hátt. Hann dansaði eins og
dansmeistari, algjör snillingur, og alltaf
þegar Guddi sá mig dansaði hann fugladans-
inn. Ég kallaði
það fugladansinn; það er eins og karlfugl-
inn sem þenur brjóst og sperrir stél þegar
hann er að stíga í vænginn við kvenfuglinn.
Það heillaði mig alveg sérstaklega, gerði
Gudda svo ótrúlega heillandi og það hvernig
hann nálgaðist mig á svo hæglátan og
undraverðan hátt. Það var einhver töfrandi
fegurð í því, það gerði dansinn, þessi fallegi
fugladans. Það minnti mig svo fallega á nátt-
úrulögmálið og náttúruna, fallega fuglalífið.
Guddi reyndi ekki við mig á ógeðslegan hátt
eins og maður sér alls staðar á skemmtistöð-
um.
Nei, Guddi gerði það eins og sannkallaður
herramaður á svo fallegan hátt. Um leið og
hann sá mig byrjaði hann að dansa þennan
fugladans, en aldrei annars – bara þegar
hann sá mig. Þá fór Guddi alltaf í gang og
dansaði fyrir mig í eina
eða tvær mínútur – eins og ég ýtti á ein-
hvern töfratakka á honum. Það var svo mikil
fegurð fólgin í þessum hreyfingum og virð-
ing sem hann sýndi mér. Þetta hafði ég aldrei
séð fyrr.
Ég ætlaði aldrei að hitta Gudda aftur eftir
að ég var með honum fyrst af því að ég vissi
að þetta var bara bull, en hitti hann alltaf
óvart af tilviljun á sama stað. Það kom mér
alltaf jafnmikið á óvart að sjá Gudda, því í öll
skiptin hélt ég að Guddi væri farinn út, þar
sem hann bjó erlendis og mér hafði skilist
á Gudda strax fyrsta skiptið að hann væri á
förum.
Þennan skemmtistað sækja vinir mínir
og þess vegna hitti ég Gudda alltaf þar. Það
var eins og eitthvert ómótstæðilegt afl drægi
mig að honum þegar Guddi byrjaði að dansa,
í byrjun vandræðalega og feiminn eins og
hann vissi ekkert hvernig hann ætti að vera
gagnvart mér og kunni því engin önnur ráð
en þetta. Þetta var tjáning hans og nálgun við
mig. Stundum var líkt og við værum í stríði
en það var þögult stríð, fugladansinn skapaði
vopnahlé. Kannski var stríðið eins konar til-
finningastríð.
Majónesdrottningin Kleopatra Kristbjörg lætur
sér ekki nægja að stjórna Gunnars Majonesi þar
sem hún er einnig afkastamikill rithöfundur.
Hún hefur sent frá sér bækurnar Daggardropar,
Hermikrákuheimur, Þá var gott að deyja, skáld-
söguna Biðukollur útum allt og barnabókina
Vetrarnótt. Og þótt hún hafi hingað til ekki viljað
ræða einkalíf sitt opinberlega nú er komið að ævi-
sögu hennar sem hún segir í hinni nýútkomnu
Kleopatra – villt af vegi.
„Ég segi náttúrlega aðeins frá mér. Hvaðan
ég kem og svona en ég er náttúrlega frá flottasta
stað í heimi. Vopnafirði sem mér þykir ákaflega
vænt um,“ segir Kleopatra.
Eins og við er að búast segir Kleopatra hispurs-
laust frá en æskuminningarnar eru bæði ljúfar og
sárar en þar ber hæst sáran móðurmissi og alvar-
lega misnotkun sem hún varð fyrir í æsku. „Er ég
ekki þekkt fyrir að tala hreint út?“ Spyr Kleo-
patra ákveðin. „Ég hneyksla fólk alveg rosalega
með þessari bók. Af því að hún er sönn saga mín.
Ég segi líka frá því hvað ég er skelfileg og öllu
sem ég hef gert af mér enda sést það nú á titlinum
að ég tolli ekki einu sinni á veginum.“
Eftir fertugt hefur Kleopatra búið í Reykjavík
og hún segir einlægt og opinskátt átakanlega
ástarsögu sína frá Reykjavíkurárunum. „Ég segi
þarna frá ástarsambandi mínu og er mjög bersö-
gul. Fólk þorir ekki einu sinni að segja frá svona,“
segir Kleopatra sem að eigin sögn gefur ekkert
eftir í kynlífslýsingum.
„Svo kem ég líka út úr skápnum og viðurkenni
að ég sé engill. Það héldu allir að ég væri norn og
svo er ég bara engill,“ segir Kleopatra sem sækir
framtíðarvitneskju í drauma sína sem hún hefur
því miður ekki alltaf haft vit á að fara eftir. Hún
hefur komist að því að á jörðinni eru englar sem
eiga sér hlutverk, sem hún kallar jarðarengla.
Sjálf segist hún vera engill auk þess sem „ég kem
upp um nokkra engla í bókinni sem eru góðir
vinir mínir.“
toti@frettatiminn.is
Kleo patra Krist björg seg ir sögu sína blátt áfram og hisp urs laust. Nafn ið seg ir mik ið um inni hald ið. Sag an er ber orð og Kleo patra seg ir m.a. frá því allra nán asta í einka lífi sér hvers manns – og er það mjög ólíkt henni – sem aldr ei hef ur vilj að ræða einka mál sín op in ber lega. ÁST IR OG ÖR LÖG KLEO PÖTRUKleo patra lít ur í þess ari bók yf ir far inn veg og rek ur ör laga þætti úr ævi sinni. Í upp hafi rifj ar hún upp æsku minn ing ar, ljúf ar sem sár ar, og seg ir frá upp vaxt ar ár un um heima á Vopna firði og nán ustu fjöl skyldu sinni. Hún fjall ar um sár an móð ur missi, um graf al var lega mis notk un í æsku o.fl. Kleo patra er mjög ber dreym in og fær oft leið bein ing ar og við var an ir í gegn um drauma. Hún seg ir frá nokkr um draum um sín um og því hvern ig þeir komu fram, en því mið ur fór hún ekki allt af eft ir leið beining un um. Eft ir fer tugt hef ur hún ver ið bú sett í Reykja vík og hún seg ir átak an lega ást ar sögu sína sem gerð ist á þeim ár um á mjög ein læg an og op in ská an hátt.Kleo patra hef ur lengi spáð í hluti sem fólk spá ir al mennt lít ið sem ekk ert í, m.a. til gang lífs ins og draum ana sem vísa veg inn og seg ir okk ur þar með að innri vit und okk ar býr yf ir fram tíð ar vitn eskju. Hún hef ur kom ist að því að á jörð inni eru engl ar sem eiga sér hlut verk, sem hún kall ar jarð ar engla. Í bók inni eru mynd ir af sum um þeirra sem eru góð ir vin ir henn ar. Alls eru 70 lit mynd ir í bók inni.
SÖNN LÍFS REYNSLU SAGA
Ævisaga villt af vegi
Kleopatra hneykslar
ris bjö g Kleopatra spáir mik-
ið í tilgang lífsins og drauma
sem hún segir vísa veginn og
staðfe t a innri vitund okkar
býr yfir f amtíðarvitneskju.
Kleopatra varð ekki
keypt með Armani Hélt hann virkilega að
ég væri svona heimsk
og hallærisleg!?
Reykjavíkurástarsaga Kleopötru Kristbjargar tók á og var síður en svo bara dans á rósum. Hér
er gripið niður í bókina Kleopatra – villt af vegi þar sem hún yfirgefur ástmann sinn eftir að hann
hélt fram hjá henni. Aumkunarverðar tilraunir hans til þess að halda í hana með gjöfum færðu
Kleopötru heim sanninn um að hún væri stærri og sterkari en hann. Þrátt fyrir sársaukann.
Verum, verslum og njótum
— þar sem jólahjartað slær.
www.midborgin.is
Jólaopnun miðborgar
Opið til kl. 22:00 öll kvöld til jóla
og til 23:00 á Þorláksmessu.
60 fréttir Helgin 21.-23. desember 2012