Fréttatíminn - 21.12.2012, Page 74
74 jól Helgin 21.-23. desember 2012
Jólahald hvers vegna höldum við Jól?
Korta-hulstur úr hágæða áli.
Ver kort fyrir rafsegulgeislun og kemur í veg fyrir
að þjófar geti skannað kortaupplýsingar.
Níðsterkur og léttur kostagripur í mörgum litum.
Kortaveski 21. aldarinnar
frá Þýskalandi
RAZOR
12-14 kort og
nafnspjöld
Stærð: 10x6x2
Kr. 6.900
OYSTER
6 kort, nafnspjöld
seðlar og mynt
Stærð: 10x6x2,5
Kr. 7.700
SHELL
Símahulstur fyrir
iPhone4 og 4s.
Létt og þunnt úr áli.
Stærð: 12x6,1x11,8
Kr. 6.900
Tilva
lin jó
lagjö
f
SMÁRALIND / sími 528 8800 / drangey.is / drangey/napoli
Fæst einnig
í Mössubúð
Akureyri.
Á jólunum fögnum við fæð-ingu frelsarans. Við skreyt-um hýbýli okkar, dönsum
í kringum jólatré og gefum hvort
öðru gjafir. En af hverju gerum við
þetta, hvaða þýðingu hafa jólin fyrir
okkur og hvað þýðir orðið jól ef út í
það er farið? Árni Björnsson, dokt-
or í menningarsögu, er margfróður
um sögu jólanna og hefðirnar sem
þeim tengjast. Hann fræddi okkur
um þessa hátíð sem er okkur svo
kær og raunar nauðsynleg, að mati
Árna.
Það er ljóst að margir hafa notað
tímann þegar skammdegið er sem
mest til að halda hátíðir. Skrifaðar
heimildir um slíkt eru þó af skorn-
um skammti. „Þessi kristilegu jól
sem við þekkjum eru mjög ung
í sögu mannkynsins, ekki nema
1500-1600 ára gömul. Þegar Evr-
ópumenn fóru að leggja undir sig
heiminn rákust þeir á frumbyggja
sem héldu hátíðir á þessum tíma, í
skammdeginu. Hvort sem það var
hjá indjánum í Ameríku eða austur
í Himalajafjöllum. Ekki voru þeir
kristnir. Það virðist því vera sálræn
nauðsyn fyrir fólk að lyfta sér upp í
skammdeginu. Að halda hátíð með
gleðskap, dansi, mat og drykk.
Skammdegishátíðir virðast hafa
verið til víða og það ráku Evrópu-
menn sig á í ferðalögum sínum.“
Skammdegishátíðir algengar
áður fyrr
Til að þrengja sviðið færum við
okkur til Miðjarðarhafsins þar sem
skriflegum heimildum fjölgar. Þar
var haldin skammdegishátíð sem
hét Saturnalia og var kennd við frjó-
semisguðinn Satúrnus. „Þá voru
þetta tvær hátíðir, Saturnalia sem
var um miðjan desember og svo Kal-
endae sem var nýárshátíð og haldin
í kringum áramót eða í byrjun janú-
ar. Það var því hátíð þegar skamm-
degið var sem mest og síðan önnur
þegar sólin er greinilega farin að
hækka á lofti og birta fer á ný. Ég
held að þetta sé blátt áfram nauð-
synlegt fyrir fólk að lyfta sér upp
í skammdeginu og úr því sé þetta
sprottið. Hin forna trú Rómverja var
fjölgyðistrú og það gekk ekki nógu
vel saman við keisaraveldið eftir
daga Sesars. Þess vegna gerðu þeir
sólina að æðsta valdi og hátíð henn-
ar var sólhvörfin sem þeir reiknuðu
út að væru 25. desember, sem var
reyndar ekki alveg rétt. Sólin var
þarna æðsta valdið og alveg sama
fyrirbæri þekkist í Japan, keisarinn
þar hét sonur sólarinnar og í Kína
var keisarinn kallaður sonur him-
insins.“
„If you can't beat them join
them“
Svo verða til lágstéttartrúarbrögð
við austanvert Miðjarðarhaf sem
við köllum kristna trú. Upphaflega
kom hún fram meðal lágstéttanna.
Reynt er að bæla hana niður og
upphafsmaðurinn krossfestur, eins
og við vitum. Þetta berst samt um
Miðjarðarhafssvæðið og til Róma-
borgar og þeim tókst aldrei að bæla
þetta alveg niður. Þá virðist koma
fram einhver klókur maður við keis-
arahirðina sem segir svipað og við
þekkjum núna úr ensku „if you can't
beat them join them.“
Rómverjar gerðu í framhaldi
kristna trú að ríkistrú. Þeir löguðu
hana svolítið til svo hún skerti ekk-
ert völd yfirstéttarinnar. Þá verður
til einn keisari, einn guð og einn
páfi. En þegar kristnin er orðin
ríkjandi passar ekki lengur að hafa
Sálræn nauðsyn að lyfta
sér upp í skammdeginu
Árni Björnsson, doktor í menningarsögu, segir okkur sögu jólanna. Skammdegishátíðir virðast
hafa verið til víða og það ráku Evrópumenn sig á í ferðalögum sínum.
sólina sem æðsta vald. Þá koma
lærðir menn til sögunnar og sanna
það að Kristur hafi fæðst einmitt
þennan dag. Það stendur reyndar
ekkert um það í Biblíunni hvenær
hann er fæddur. Það eina sem við
vitum er að hann fæðist um það leyti
sem manntal er tekið svo það er trú-
legt að það hafi verið í upphafi árs.
Annars vitum við ekkert um það.
Eftir að kristnin var orðin rík-
istrú í Rómaveldi fór hún að breið-
ast norður eftir Evrópu. Það gengur
þó mjög hægt. Um 800 stofnaði Karl
mikli hið heilaga rómverska ríki
þýskrar þjóðar sem stóð í um þús-
und ár. Í framhaldinu kemur þessi
trú til Skandinavíu og þar rekast
klerkarnir á að fyrir er gömul há-
tíð sem heitir þessu skrýtna nafni,
Jól. Það sem gerist þá er að kirkjan
yfirtekur gömlu hátíðina en nafnið
Jól helst í staðinn fyrir að hún heiti
Kristsmessa eins og við þekkjum
úr enskunni. Nú eða heilagar nætur
eða Weihnachten eins og hún heit-
ir í þýskumælandi löndum. Það er
athyglisvert að þessar hátíðir hafa
alltaf staðið í nokkra daga. Þess
vegna eru þær oft í fleirtölu eins og
við þekkjum með jólin þó við vit-
um kannski ekki hvað orðið sjálft
merkir. Á þessum tíma fór fólk ekki
eftir neinu almanaki heldur notað-
ist við sólina og tunglið. Jólin voru
ekki haldin á ákveðnum degi heldur
sem næst fullu tungli í námunda við
sólstöður.“
Kynsvall um jólin?
Í Heimskringlu segir að Hákon Að-
alsteinsfóstri hafi um miðja 10. öld
látið færa jólahaldið til þess tíma
sem kristnir menn héldu þau. Það
er frekar lítið vitað um það hvað var
gert á þessum heiðnu jólum. Það
er þó ljóst að það hefur verið mikil
veisla því samkvæmt fornum lögum
áttu menn að eiga mikið magn af öli.
„Það segir líka í kvæði um Harald
Hárfagra að hann vilji drekka jól
úti og heyja Freysleik. Hvað er nú
Freysleikur? Það veit maður auðvi-
tað ekki. Freyr var frjósemisguð svo
maður getur ímyndað sér að þetta
sé einhvers konar dans eða jafnvel
kynsvall. Þetta gæti því hafa verið
tími þar sem fólk hefur sleppt sér
lausu. Það á líka við um gamlar há-
tíðir á borð við hina rómversku Sat-
urnaliu. Við vitum hins vegar lítið
um þetta og þetta eru því í rauninni
bara tilgátur.“
Jólatréð, andsvar við jólajöt-
unni
Hið sígræna tré hefur alltaf þótt
merkilegt. Tengsl þess við jólin
eru órjúfanleg í okkur huga. Það
er vitað að fólk skreytti hús sín
með grænum greinum á þessum
skammdegishátíðum. Þessi dýrkun
á hinu sígræna tré er því mjög forn.
Við siðaskiptin verða harðvítugar
deilur milli kaþólskra og mótmæl-
enda. „Mótmælendur vildu útrýma
öllu sem þeir kölluðu pápísku eða
kaþólsku. Eitt af því sem var og er
jafnvel enn mikið atriði meðal kaþ-
ólskra er jólaskreyting sem nefn-
ist jólajatan. Þar er hin heilaga fjöl-
skylda, stundum eru vitringarnir
frá Austurlöndum með en auðvitað
mismunandi hvað fólk leggur mikið
í þetta. Eftir siðaskiptin vilja mót-
mælendur ekki hafa þennan pápíska
andskota en börnin vildu hafa eitt-
hvað. Þá finna þeir upp þetta ljós-
um skreytta jólatré, það byrjar því
ekki fyrr en eftir siðaskiptin suður
í Þýskalandi. Jólatréð þekkist ekki
á Norðurlöndum fyrr en eftir 1800.
Hingað til Íslands kemur það lík-
lega með dönskum kaupmönnum
eða danskmenntuðu fólki. Vandinn
var auðvitað sá að hér uxu engin
grenitré. Það þurfti því að flytja
þetta inn. Skipin voru jafnvel einn
mánuð á leiðinni á 19. öld og því lítill
tilgangur með því að flytja inn tré á
þeim tíma. Þá fóru menn að smíða
jólatré. Það tíðkaðist fram yfir miðja
20. öld. Í minni bernsku vestur í
Dölum man ég vel eftir slíku.“
Hver gefur gjafirnar?
Upphaflega voru ekki jólagjafir
nema kannski meðal einstaka
höfðingja eða kóngafólks. Á Ís-
landi þekktu menn eiginlega ekki
jólagjafir en hér á landi gaf fólk
gjarnan sumargjafir. „Við virð-
umst hafa litið svo á, áður en við
fengum rómverska tímatalið, að
byrjun sumars væri áramót. Aldur
fólks og húsdýra var alltaf talinn í
vetrum. Í Evrópu tíðkaðist að gefa
gjafir og sérstakur gjafadagur var
6. desember, dagur Nikulásar bisk-
ups. Það voru því ekki gefnar gjafir
á jólunum. Nikulás er eins konar
forfaðir hins alþjóðlega jólasveins,
Santa Klaus.
Með siðaskiptunum kemur síðan
trúarpólitíkin aftur. Mótmælendur
þoldu ekki að kaþólskur dýrlingur
væri að gefa börnum gjafir. Þeir
leggja því til að gjafirnar verði
gefnar á jólunum sjálfum, 25. des-
ember. En hver átti þá að koma
með gjafirnar? Ekki mátti það vera
þessi Nikulás, í það minnsta ekki
þá. Menn stungu upp á jólaengli
eða jafnvel jesúbarninu sjálfu en
sumum fannst það ekki ganga upp.
Svo fundu menn upp förumann sem
var kallaður Afi Frosti eða eitthvað
álíka. Hann líktist Nikulási, var
klæddur síðri kápu og hann verður
þessi jólasveinn. Þetta var mikið
á þýska svæðinu og tíðkast ennþá
austur í Rússlandi, þar er Afi Frosti
ennþá til.“
13 dagar jóla
Jólahátíðin okkar varir í þrettán
daga. Árni segir að það hafi komið
til vegna vangaveltna um fæðingar-
dag Krists. „Upphaflega hugsuðu
kristnir menn ekkert um fæðing-
ardaga. Jarðlífið var bara undir-
búningur að hinu eilífa lífi. Menn
vissu nákvæmlega hvenær menn
dóu því þá tók hið eilífa líf við, jarð-
vistin var frekar ómerkileg. Þegar
kristninni vex fiskur um hrygg fara
menn að velta fyrir sér hvenær Jes-
ús var fæddur. Sá dagur sem náði
fyrst mestri útbreiðslu var 6. janú-
ar. Ennþá er ein kirkjudeild til, Ar-
menska kirkjan, sem hefur 6. janúar
sem fæðingardag Jesú. Á kirkju-
þingum verður töluverð togstreita
um hvenær fæðingardagur frelsar-
ans er. Menn koma þá með sáttatil-
lögu, 25 desember verður fæðing-
ardagurinn en skírnardagurinn og
tilbeiðsla Austurvegskonunga sé 6.
janúar. Því heitir þrettándinn sum-
staðar þriggjakóngadagur. Í þessu
er mikil trúarpólitík en þaðan höf-
um við fengið þessa þrettán daga
jólahátíð.“
Uppruni jólasveinanna
Við Íslendingar höfum skapað okk-
ur töluverða sérstöðu með jólasvein-
unum okkar. Útlendingar eru farnir
að sækja hingað til að verða vitni að
komu þessara jólasveina til byggða.
Árni segir erfitt að rekja nákvæm-
an uppruna þeirra því sögurnar séu
nokkuð mismunandi. „Það voru til
hópar af jólasveinum í ýmsum hér-
uðum á landinu. Stundum voru þeir
fimm eða sjö eða jafnvel tuttugu.
Þeir fyrstu sem komust á bók voru
hinsvegar þessir þrettán. Það er
árið 1862 þegar Jón Árnason gefur
út þjóðsögurnar. Þá koma til þessir
þrettán sveinar, hver með sitt nafn.
Jólasveinar koma fyrst fyrir í
skrifuðu máli á 17. öld í kvæði eftir
séra Stefán Ólafsson í Vallanesi. Þar
eru þeir barnafælur. Þar voru hins
vegar engin nöfn eða neitt slíkt.
Grýla er svo töluvert eldri. Hún er
nefnd í vísu í Sturlungu og þar er
hún mikil ófreskja og hefur á sér
hala fimmtán eins og sagt er. Jóla-
sveinarnir eru ekki nefndir fyrr en
gætu þó auðvitað verið mun eldri.
Sá sem lætur Jón hafa þessi nöfn
á 13 jólasveinum er séra Páll Jóns-
son. Það er því líklegast að þetta
sé vestan úr Dölum því þar er Páll
uppalinn. Seinna var hann prestur í
Eyjafirði og Skagafirði.
Málamiðlun verður þegar ríkis-
útvarpið tekur til starfa árið 1930.
Jólasveinn átti að koma fram í út-
varpinu og það skapaðist töluverð
togstreita um það hvernig þeir ættu
að vera. Hvort þeir ættu að vera
góðir eða vondir eða hvernig þeir
ættu að haga sér. Það er ekki fyrr en
eftir þetta sem jólasveinar fóru að
koma fram á jólatrésskemmtunum.
Fyrir þann tíma voru þeir ekki hús-
um hæfir. Sá sem síðan yrkir hinar
frægu jólasveinavísur, Jóhannes úr
Kötlum, er einnig vestan úr Dölum.
Það er eins og Jóhannes hafi ekki
tekið þetta beint úr þjóðsögunum
því það eru tvö nöfn í rununni sem
ekki eru eins. Það er því allt eins
líklegt að hann hafi lært þetta í
bernsku sinni, eins og séra Páll.“
Bjarni Pétur Jónsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Árni Björnsson, doktor í menningarsögu: Það virðist vera sálræn nauðsyn fyrir fólk
að lyfta sér upp í skammdeginu. Ljósmynd/Hari