Fréttatíminn - 21.12.2012, Síða 78
78 matur Helgin 21.-23. desember 2012
Hrefna Sætran UppSkrift að góðUm jólUm
Purusteik með
eplasalati fyrir 4
800 g svínasíða (endilega
biðja kjötiðnaðarmennina að
skera í hana fyrir ykkur)
6 msk gróft salt
6 stk lárviðarlauf
12 stk negulnaglar
Aðferð: Raðið lárviðar-
laufunum og negulnöglunum
ofan í fituskurðina á kjötinu.
Nuddið grófa saltinu vel á
kjötið báðum megin. Setjið
kjötið í ísskápinn og leyfið því
að marinerast í 2 klst. Setjið
vatn í ofnskúffu og setjið
kjötið ofan í (fituhliðin niður
og vatnsmagnið á að ná alveg
yfir kjötið). Það er mjög þægi-
legt að sjóða kjötið í ofninum
því þá er ekkert að sjóða upp
úr eða neitt svoleiðis. Eldið
kjötið við 120 gráður í 120
mínútur. Takið kjötið upp úr
vatninu og setjið á ofngrind
(fituhliðin upp). Hitið ofninn
upp í 220 gráður. Setjið kjötið
aftur inn í ofninn og poppið
fituna í 20 mínútur eða
lengur. Mikilvægt að fylgjast
mjög vel með kjötinu á síðara
stiginu þar sem það brennur
auðveldlega.
Púðursykurs kanilgljái
4 msk balsamik-edik
2 msk hindberjaedik
1 stk kanilstöng
6 msk púðursykur
Aðferð: Setjið allt hráefnið
í pott og sjóðið örlítið niður.
Kælið gljáann. Þegar kjötið er
tilbúið, penslið það þá með
gljáanum rétt áður en þið
setjist að snæðingi.
Eplasalat:
2 stk epli
2 lúkur þurrkuð trönuber
4 msk mæjónes
4 msk f lórsykur
4 msk léttþeyttur rjómi
Aðferð: Blandið mæjónesinu
og flórsykrinum saman í skál.
Skrælið eplin og skerið þau í
litla bita. Bætið eplabitunum
og trönuberjunum út í skálina
og blandið léttþeytta rjóm-
anum saman við í lokin.
Purusteik með kanil
gljáa og eplasalati
Jólakryddsíld, tilvalin yfir hátíðirnar.
H refna Rósa Sætran, mat-reiðslumaður
á Grillmarkaðnum og
Fiskmarkaðnum,
ætlar að hafa það
náðugt um jólin.
Hrefna ætlar að
deila með okkur
uppskriftum sem eiga vel við um jól og áramót. Hún
segist þó ekki ætla að hafa þetta í jólamatinn hjá sér
enda sé hún svo heppin að vera boðið í mat. „Ég er
ekki að elda sjálf á aðfangadag því ég er svo heppin
að vera boðið í mat hjá tengdafjölskyldu minni. Ég
reyni samt að gera síld til að eiga í ísskápnum heima
á aðventunni og yfir hátíðirnar. Þá geri ég kannski
tvær útfærslur til að eiga og það er hægt að laumast í
þetta yfir jólin.“
Jólakryddsíld
600-800 g marineruð síld
4 msk sýrður rjómi (24 %)
1 msk chili sambal (maukað chili)
1 stk skalotlaukur, skorinn smátt
½ stk gul paprika, skorin smátt
½ stk rauð paprika, skorin smátt
Smá saxað dill
Smá söxuð steinselja
Aðferð: Sigtið síldina og þerrið
hana. Blandið saman sýrða rjóm-
anum, chili-inu, lauknum, paprikunni
og kryddjurtunum. Skerið síldina
gróft niður og blandið henni út í
sýrða rjómann. Bætið loks krydd-
jurtunum út í. Með síldinni er gott að
bera fram soðið og djúpsteikt egg
með smá bleikju tartar, steiktum
lauk og dill mæjónesi. Svo má auð-
vitað ekki gleyma rúgbrauðinu.
Hrefna Rósa
Sætran, eigandi
Grillmarkaðað-
arins og Fisk-
markaðarins.
Jólasíldin með
öllu tilheyrandi.
Purusteik
með epla-
salati.
Fyllingin
Bræðið smjörið í stórum potti og látið
sveppina og grænmetið ásamt steinseljunni,
kalkúnakryddinu og skinkunni krauma í því
í 10 mínútur eða þar til grænmetið er orðið
mjúkt. Bætið þá heslihnetum og brauðtening-
um í pottinn og látið fyllinguna kólna lítillega.
Hrærið þá eggjunum og rjómanum saman við
og kryddið með salti og pipar.
Steiking kalkúnsins
Skerið sítrónuna í helminga og stingið öðrum
í hálsopið svo það lokist vel. Setjið fyllinguna í
kalkúninn og bindið leggina saman til að loka
opinu. Pressið safann úr sítrónunni og blandið
smjöri, kryddi og sojasósu út í og penslið
kalkúninn með blöndunni. Steikið kalkúninn
í ofni við 225°C þar til hann er orðinn brúnn.
Hellið vatni yfir og minnkið hitann í 175°C.
Steikið kalkúninn síðan með hrygginn upp og
síðar hliðarnar. Ausið yfir hann annað slagið.
Snúið bringunni upp síðasta hálftímann.
Þegar kjöthitamælir sýnir 72°C þegar honum
er stungið á þykkasta stað kalkúnsins án
þess að stinga í bein er hann tilbúinn. Hellið
soðinu af og færið kalkúninn upp á eldfast fat
og breiðið álfilmu yfir. Takið hana af og leyfið
kalkúninum að kólna örlítið, penslið með
smjöri og setjið í ofn og stillið á grill. Eldið
upp soðið fyrir sósuna og þykkið með hveiti.
Látið sjóða í nokkrar mínútur. Kryddið með
salti og pipar og smakkið sósuna til og bætið
púrtvíninu út í. Berið fram með bökuðum
kartöflum, sósu, rauðkáli og rósakáli.
Ilmur af jólum
Kalkúnakryddið frá Pottagöldrum er ómissandi
á Jólakalkúnann. Uppskrift á pottagaldrar.is
Heilsteiktur kalkúnn með
heslihnetu- og sveppafyllingu
1 kalkúnn, u.þ.b. 5 kg
1 sítróna
1/2 dl bráðið smjör
Salt og pipar
Nokkrir dropar af
sojasósu
Í steikingarpottinn
Laukur
Gulrætur
5 þurrkuð einiber
Vatn
fylling
* 150 g smjör
* 350 g nýir sveppir, niður-
sneiddir
* 200 g laukur, smátt
saxaður
* 1 stilkur sellerí, smátt
saxaður
* 1/2 búnt steinselja, smátt
söxuð eða 2 msk. þurrkuð
* 1-2 msk. kalkúnakrydd
frá Pottagöldrum
* 300 g skinka, smátt
söxuð
* 100 g heslihnetur, rist-
aðar og sneiddar
* 150 g (u.þ.b. 3 bollar)
brauðteningar
* 2 stór egg
* 2 dl rjómi
* 1/2 tsk. salt
* 1 tsk. ferskmalaður
pipar
Sósa
* soð
* hveiti
* rjómi
* ávaxtamauk
* púrtvín
Opnunartími yr hátíðarnar
21. desember Föstudagur 10 - 19
22. desember Laugardagur 10 - 18
23. desember Sunnudagur 10 - 20
24. desember Mánudagur 10 - 12
27. desember Fimmtudagur 10 - 19
28. desember Föstudagur 10 - 19
29. desember Laugardagur 10 - 18
30. desember Sunnudagur 10 - 20
31. desember Mánudagur 10 - 14
Gleðileg jól
þökkum viðskiptin á árinu
Grensásvegi 48 - Sími 571 5511