Fréttatíminn - 21.12.2012, Page 80
80 miðbærinn Helgin 21.-23. desember 2012
Brauð Bjórar Borgar fá nýtt hlutverk
Bjórbrauð í Sandholt
bakaríi í miðborginni
BIRNA Concept Shop
Skólavörðustígur 2
S: 4452020
Kjóll
19.900 kr.
Skór
21.500 kr.
Peysa
38.900 kr.
Jakki
59.900 kr.
www.birna.net
Gleðileg jól
Opið til kl 22:00
fram að jólum
Ásgeir Sandholt bakari á milli þeirra Stulla og Valla,
bruggmeistara Borgar. Þeir hafa þróað nýtt bjórbrauð
sem er nú selt í Sandholti á Laugavegi. Ljósmynd/Hari
e lska ekki allir bjór? Það er ekki verra að fá bæði að drekka hann og borða,“ segir Ásgeir Sandholt bakari. Ásgeir hefur þróað nýtt brauð í samstarfi við Borg Brugghús
og Ölgerðina og selur það nú í bakaríi sínu á Laugavegi. Það sem gerir
brauðið sérstakt að það er meðal annars unnið úr hratinu af hinum
vinsæla bjór Giljagaur nr. 14 og
bróður hans, Myrkva nr. 13.
„Stulli bruggmeistari í Borg hafði
samband og við ákváðum að gera
eitthvað saman og við höfum verið
að þróa þetta brauð að undanförnu,“
segir Ásgeir. Hann segir að þeim
hafi tekist að snúa saman bjórgerðar-
ferlinu og brauðgerðarferlinu. „Og
út úr því kemur þetta fína brauð sem
minnir svolítið á Borg, það er með
spes bragði og humlaríkt.“
Ásgeir segir að Sandholt bakarí
og Borg Brugghús eigi margt sam-
eiginlegt. Bjórar Borgar eru flestir
framleiddir í takmörkuðu upplagi
og eru þar af leiðandi oft uppseldir.
Það á til dæmis við um Giljagaur sem
seldist upp á fimm dögum. „Við erum
bara með eitt lítið bakarí á Laugavegi
og bökum allt í eldgömlum ofni. Við
getum bara bakað svo og svo mörg
brauð á hverjum degi,“ segir Ásgeir
en nýja bjórbrauðið fór í sölu um
síðustu helgi og hefur selst upp á
hverjum degi síðan þá.
Brauðið verður til sölu fram að jól-
um. „Svo höldum við áfram og ætlum
að gera eitthvað annað í janúar. Við leyfum þessu að vera fljótandi eins
og er hjá þeim Borgarstrákum. Þeir eru hressir og hugmyndaríkir.“
-hdm