Fréttatíminn - 21.12.2012, Qupperneq 100
100 bækur Helgin 21.-23. desember 2012
Óttar Norðfjörð Segir NíStaNdi draugaSögu
Þ að má segja að sagan hafi valið mig,“ segir Óttar. „Þetta er fyrsta sagan sem ég skrifaði eftir að ég
missti pabba minn fyrir fjórum og hálfu
ári. Þegar það gerðist breyttist heimurinn
minn í martröð sem stóð yfir í nokkrar
vikur. Ég borðaði lítið, skrifaði ekkert, og
gerði í raun ekkert nema að láta tímann
líða. Þegar ég byrjaði smám saman að
jafna mig var þetta sagan sem ég vildi
segja. Af manneskju sem týnir ástvini en
neitar að sleppa takinu. Þannig leið mér
með pabba. Að missa nákominn ástvin er
eins og að vakna upp í hrollvekju.“
Una fjallar um Unu Helgu sem týndi
fimm ára gömlum syni sínum í snjóbyl
tæpu ári áður. Allir telja hann látinn nema
hún sem heldur leit sinni áfram. Þegar röð
dularfullra vísbendinga tekur að berast
henni veit Una ekki lengur hvort hún er
komin á slóðir drengsins eða hvort hún er
að missa vitið. Leit hennar færir hana með-
al annars að eyðibýlinu Sjónarhóli á Vatns-
leysuströnd sem kemur mikið við sögu.
„Mér hefur alltaf fundist Vatnsleysu-
strönd alveg einstaklega draugalegur
staður. Það er eins og maður skynji að
eitthvað dularfullt og hræðilegt hafi gerst
þarna í gamla daga. Þegar ég sá eyðibýlið
Sjónarhól, sem er þarna, byrjaði sagan
mín að þróast yfir í það sem hún síðan
varð,“ segir Óttar sem að sjálfsögðu skoð-
aði eyðibýlið. „Ég kíkti einu sinni inn í
það. Það var mjög skrítin stemning inni í
því og ég forðaði mér þaðan sem fyrst. Ég
veit ekkert um fyrri íbúa þess og kynnti
mér það viljandi ekki til að skálda í eyð-
urnar sjálfur.“
Kvikmyndarétturinn að Unu hefur verið
seldur og Óttar kemur að handritsskrif-
unum. „Vinnan við handritið er nú þegar
hafin og ég og Marteinn Thorsson, leik-
stjóri hjá Tenderlee, sem keypti réttinn að
bókinni, munum skrifa þetta saman. Ég
skrifaði reyndar Unu fyrst sem kvik-
myndahandrit. Þetta var árið 2008. En svo
breytti ég henni í skáldsögu. Að breyta
henni aftur í kvikmyndahandrit verður því
líklegra auðveldara en venjulega.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Að missa ástvin er eins og
að vakna upp í hrollvekju
Sigrún Elsa Smáradóttir og tvítugur sonur hennar, Smári
Rúnar Róbertsson, hafa sent frá sér bókina Sagan af
huldufólkinu á Eldfjallaeyjunni. Ævintýrið á sér nokkuð
langa sköpunarsögu þar sem ákveðnir þræðir þess urðu til í
ritgerð sem Sigrún Elsa skrifaði í barnaskóla.
„Ég dustaði rykið af þessu, fléttaði saman fleiri þráðum,
og fékk son minn til þess að myndskreyta,“ segir Sigrún
Elsa. Smári Rúnar er nú á öðru ári í listnámi í Amsterdam
og Sigrún Elsa segir þau mæðgin hafa hugsað bókina
þannig að börn og foreldrar gætu haft gaman að því að lesa
hana saman.
Huldufólkinu á Eldfjallaeyjunni bregður í brún þegar
mannfólk strandar á eyjunni. Huldufólkið hefur heyrt ýmis-
legt misjafnt af mönnunum og ætlar sér að losna við menn-
ina af landi sínu en ljóst er að eyjan verður aldrei söm.
Bækur HuldufÓlk á eldfjallaeyju
Mæðgin segja sögu saman
„Mér hefur alltaf fundist Vatnsleysuströnd einstaklega draugalegur staður. Það er eins og maður skynji að eitthvað dular-
fullt og hræðilegt hafi gerst þarna,“ segir Óttar sem hefur fengið góð viðbrögð við draugasögu sinni sem einn gagnrýn-
andi sagðist ekki hafa „þorað að leggja frá sér“ fyrr en hún var búin.
Þegar ég
byrjaði
smám
saman að
jafna mig
var þetta
sagan sem
ég vildi
segja.
Rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð er þekktastur fyrir spennusögur á borð við Hníf Abrahams
og Lygarann. Spennan er heldur ekki langt undan í nýjustu bók hans sem nefnist Una en þar
kveður þó við nokkuð nýjan tón þar sem hann segir hrollvekjandi draugasögu. Una er fyrsta
sagan sem Óttar skrifaði eftir að hann missti föður sinn fyrir rúmum fjórum árum.
Sigrún Elsa og Smári Rúnar unnu að bókinni í eitt
og hálft ár og geta verið ánægð með árangurinn.
★★★★
„Vel unnið verk, skemmtilegt
og um leið fræðandi aflestrar.
Saga um líf og dauða, sorg
og gleði.“
ANNA LILJA ÞÓRISDÓTTIR, MORGUNBLAÐIÐ
TILNEFNING
LJÓSMÓÐIRIN
EFTIR EYRÚNU INGADÓTTUR
„Hrífandi bók. Mögnuð örlaga-
saga sem ég drakk í mig.“
SIRRÝ - RÁS 2
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Gleðileg jól