Bændablaðið - 31.10.2013, Qupperneq 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013
Norrænt verkefni um fjarnámslausnir
í búfræði fyrir starfandi bændur
Nú um miðjan september fór fram
fyrsti verkefnastjórnarfundur í
Nordplus Horisontal-verkefni
er nefnist Naturbruksutdanning
for voksne – í þessu samhengi
landbúnaðar fræðsla t i l
fullorðinna. Landbúnaðarháskóli
Íslands er aðili að því verkefni
en það er Mo og Jølster
vidaregåande skule í Noregi sem
leiðir verkefnið. Aðrir aðilar að
verkefninu eru Rural Institute
of Central Ostrobothnia og
Yrkesakademin i Österbotten frá
Finnlandi, Ösby Vestmannalands
Naturbruksgymnasie í Svíþjóð og
Sogn Jord- og Hagebruksskule,
einnig frá Noregi.
Verkefnið gengur út á að kynna
framboð landbúnaðarfræðslu í
hverju landi fyrir sig og að átta
sig á þróun starfsumhverfisins.
Hvernig skólarnir eru uppbyggðir og
fjármagnaðir, hvaða fjarnáms lausnir
eru í boði og hvernig samstarfi aðila
er háttað með það í huga að þeir njóti
reynslu hvers annars. Skólinn sem
leiðir verkefnið hefur þróað og boðið
fram fjarnámslausn í tengslum við
búfræði sem hefur notið vinsælda
þar í landi. Góður tími fór því í að
kynna þá námsleið sem og fjarnám
búfræðinnar sem boðin hefur verið
fram hér á landi í gegnum LbhÍ allt
frá árinu 1999.
Aðrir samstarfsaðilar hafa ekki
boðið upp á sambærilegt nám og
því áhugavert að innleiða slíkar
lausnir þar sem aðsókn í staðarnám
í búfræði í Svíþjóð og Finnlandi
hefur farið minnkandi. Krafa um
menntun í búfræði fyrir þá sem eru
í búskap, eru að taka við búskap eða
vilja kaupa landbúnaðarland er mikil
sem kallar á menntun fyrir fólk á
öllum aldri. Oftar en ekki er þetta
hópur einstaklinga yfir 25 ára aldur
sem vill taka námið með starfi ef
það er í boði. Verkefnið hefur því
það markmið að miðla af reynslu
og reyna að koma til móts við þessa
þörf þar sem það er hægt og vilji
er fyrir.
Hér á landi miðast fjarnámið við
fólk sem er við búskap, er a.m.k.
25 ára að aldri og með umtalsverða
búskaparreynslu. Fjarnámið er
byggt upp á svipaðan hátt og hefð-
bundið búfræðinám. Nemendur
innritast á sama hátt í skólann og
stunda námið á u.þ.b. hálfum hraða.
Starfandi bændur geta því lokið
búfræðiprófi í fjarnámi á 3-4 árum
með búskap, hafi þeir a.m.k. 5 ára
reynslu af búskap. Aðrir sem eru
starfandi í landbúnaði þurfa að taka
hluta námsins á sama hátt og staðar-
nemar. Samskipti nemenda og skóla
eru í megindráttum um internetið.
Verklegir hlutar búfræðinámsins eru
kenndir á námskeiðum, sem haldin
eru eftir þörfum.
Norðmenn bjóða námið fram
á svipaðan hátt nema hvað þar er
námið skilgreint sem full vinna.
Nemendurnir taka námið því á sama
hraða og staðarnemar, á tveimur
árum. Verkleg kennsla og fyrirlestrar
eru í níu skipti yfir veturinn. Þannig
mæta þeir 18 sinnum í tveggja daga
lotur í skólann.
Verkefnastjórnin fékk að fylgjast
með verklegum tímum og spjalla
við fjarnemana. Niðurstaðan var að
það væri mikill kostur að hafa þetta
í boði, frábærir kennarar og skipulag
en væri heldur mikil vinna, þar sem
flestir voru í vinnu með náminu.
Það voru því heldur sælir íslend-
ingar sem héldu heim á leið. Sáttir
með það sem LbhÍ hefur þróað og
boðið fram undanfarin ár og hefur
fengið góðan hljómgrunn meðal
nemenda. Ýmislegt er þó hægt að
læra og miðla af svona samstarfi
sem er rétt að byrja. Þannig mun
ýmsu verða velt upp, rætt, og skoð-
að. Næsti verkefnastjórnarfundur
verður haldinn á Íslandi vorið 2014.
/Ásdís Helga Bjarnadóttir
Íslensku þátttakendurnir voru Ásdís Helga Bjarnadóttir og Jón Gíslason, bæði frá LbhÍ.
Mikil umræða hefur verið undan-
farið um framtíð háskóla í landinu
og margir haft orð á því að hér á
landi væru allt of margir háskólar
og þar af leiðandi margir þeirra
of veikburða. Ef nota á alþjóðlega
mælikvarða á umfang og fjölda
eininga hér á landi þá má segja að
ekki sé þörf fyrir nema eina einingu
af hverju tagi.
Það er þó ekki hægt að nota slíka
mælikvarða til þess að setja upp okkar
sviðsmynd. Við verðum að vera viljug
til þess að viðurkenna þá sérstöðu að
við erum fámenn þjóð í víðfeðmu landi
og auðlindir okkar verða einungis
nýttar til fulls ef við sköpum okkur
umgjörð sem hæfir þessum veruleika.
Því er ég að vekja máls á þessu að nú
að undanförnu hafa komið fram mjög
ólík viðhorf forsvarsmanna Háskólans
á Bifröst og Landbúnaðarháskóla
Íslands við hugmyndum og umræðu
um fækkun og sameiningu háskóla.
Á meðan að á Bifröst eru menn
einhuga um að efla þá stofnun
sem sjálfstæða einingu í héraði eru
forsvarsmenn Landbúnaðarháskólans
á þeirri skoðun að farsælast væri að
sameina alla háskóla í eina stofnun
og þar með afsala sér þeim möguleika
að reka Landbúnaðarháskóla Íslands
sem sjálfstæða atvinnvegatengda
menntastofnun.
Nú er það svo að Landbúnaðar-
háskóli Íslands býður upp á nám á
tveim skólastigum og er þar af leiðandi
bæði fagstofnun landbúnaðarins og
fræðastofnun. Í heimi þar sem vaxandi
eftirspurn er eftir mat getum við orðið
meiri þátttakendur í að miðla en hingað
til og það ætti því að skapa skólanum
mikil tækifæri og möguleika til þess að
eflast undir eigin merkjum. Mikilvægi
fæðuöryggis hverrar þjóðar verður
aldrei ofmetið og nauðsyn þess að
tryggja öfluga matvælaframleiðslu
verður sífellt meiri. Í þessu ljósi er
það illskiljanlegt að ekki skuli vera
metnaður fyrir því að reka öfluga fag-
og fræðastofnun á sviði landbúnaðar,
sem er ein undirstaða þess að
ofangreinum markmiðum verði náð.
Framtíð fagmenntunar og fræða-
menntunar í landbúnaði er betur komið
í sjálfstæðri einingu í nánum tengslum
við atvinnuveginn en innlimuð í aðrar
stofnanir með langtum umfangsmeiri
rekstur og ólíka starfsemi. Nú hefur
því verið haldið fram að ekki þyrfti að
koma til þess að skólar missi sérstöðu
og sjálfstæði í menntunarframboði
með því að sameinast. Reynslan hefur
þó verið öndverð og hætt er við að
þegar þrengir að verði hjáleigan lögð
af fyrr en höfuðbólið. Auk þess að vera
fag- og fræðastofnun landbúnaðarins
hefur skólinn haslað sér völl á nýjum
fræðavettvangi með námsframboði á
sviði landslagsarkitekturs, skipulags-
fræða, skógræktar og landgræðslu, sem
þegar hafa skilað íslensku samfélagi
öflugu fagfólki og aflað nýrrar
þekkingar á þessum fræðasviðum.
Víst er Landbúnaðháskóli Íslands
rekinn með halla, sem bæði stafar af
því að stofnunin er undirfjármögnuð
og einnig að hún býr við þá sérstöðu
að vera dreifð um marga staði. Það er
þó að mínu viti ekki óleysanleg þraut
að breyta. Það fyrsta sem þyrfti að
gera til hagræðingar er að flytja alla
starfsemina af höfuðborgarsvæðinu
að Hvanneyri og þær miklu byggingar
staðarins sem verður að halda við
og nýta, fái viðeigandi hlutverk í
framtíðarstarfi skólans.
Ég hvet því forsvarmenn Land-
búnaðar háskólans að endurskoða
þessa afstöðu og taka upp öfluga
baráttu fyrir því að skólinn haldi
áfram sem sjálfstæð mennta- og
rannsóknarstofnun. Ég er þess fullviss
að íslenskir bændur og samtök þeirra
munu koma með virkum hætti að því
að tryggja skólanum starfsgrundvöll og
þar með efla íslenskan landbúnað og
gegna lykilhlutverki í auðlindanýtingu
og umhverfisvísindum framtíðarinnar.
Magnús B. Jónsson
Hvanneyri
Ólík viðhorf
Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 480 0400
Ve
rð
e
ru
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
in
ns
lá
tt
ar
vi
llu
r.
TÍMAMÓTATILBOÐ Á
VERÐTILBOÐ:
Yfirburðir McHale Fusion rúllu samstæðnanna eru í dag vel þekktir en
áreiðan leiki, ending og vinnslu hraði vélanna er ein stakur. Það kemur því
ekki á óvart að langflestir land búnaðarverktakar velji McHale Fusion.
Verðlistaverð 2014 árgerðarinnar er kr: 11,390,000,- + vsk. m.v. EUR 158.
Til næstkomandi áramóta bjóðum við viðskiptavinum sem staðfesta
kaup á nýrri McHale Fusion 3 eftirfarandi afslætti frá verðlistaverði:
Greiðsla og afhending vélanna er næsta vor eða samkvæmt nánara samkomulagi.
TIL AÐ MÆTA MIKILLI EFTIRSPURN EFTIR MCHALE RÚLLUSAMSTÆÐUM HAFA JÖTUNN VÉLAR
GERT SAMNING UM KAUP Á FUSION 3 RÚLLUSAMSTÆÐUM AF ÁRGERÐ 2014 OG BJÓÐA ÞEIM
VIÐSKIPTAVINUM SEM ERU TILBÚNIR AÐ STAÐFESTA KAUP STRAX MJÖG HAGSTÆTT TILBOÐ
Fyrir lok nóvember 6% afsláttur kr: 683,400+vsk
Fyrir lok desember 5% afsláttur kr: 569,500+vsk
Kr: 14,294,450,- með vsk.
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri www.jotunn.is
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404 2610