Bændablaðið - 31.10.2013, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013
hlj@bondi.is
Vélabásinn
Hjörtur L. Jónsson
Sendibíla þurfa allir einhvern
tímann að nota og eru til ótal
gerðir af þeim. Kraftvélar eru
með umboð fyrir Iveco-sendibíla,
sem eru töluvert öðruvísi en
flestir sendibílar af svipaðri
stærð. Þeir eru byggðir á grind
og með loftpúðafjöðrun að
aftan, sem hentar vel íslenskum
aðstæðum þar sem enn er
töluvert af malarvegum í íslenska
vegakerfinu. Vegna þessara
eiginleika eru þessir sendibílar
töluvert vinsælir meðal smærri
verktaka, sem oft á tíðum nota
sendibíla undir megnið af þeim
verkfærum sem nota þarf í
daglegum rekstri.
Beygjuradíus bílsins gerir hann
skemmtilegan við þröngar
aðstæður
Fyrir skemmstu ók ég nýlegum
Iveco-þjónustubíl sem Kraftvélar
eru með í þjónustu sinni sem
viðgerðar- og þjónustubíl. Iveco
New Daily sem ég keyrði var
ágætlega kraftmikill með sex
þrepa sjálfskiptingu. Iveco Daily
er byggður á grind og hentar því
vel undir starfsemi eins og að vera
þjónustubíll sem er að öllu jöfnu með
töluvert magn verkfæra sem vega
mikið og fylgja viðgerðarmönnum
á vélum og tækjum.
Í stað hefðbundinna dempara og
fjaðrablaða er fjöðrunin að aftan
loftpúðafjöðrun, ekki ósvipað og í
mörgum vörubílum. Það fyrsta sem
ég tók eftir þegar ég ók bílnum var
hversu mikið er hægt að leggja á
bílinn og beygja honum, sem hentar
vel þegar þarf að snúa við og leggja
í stæði (bíllinn beygir svo vel að
halda mætti að það væru beygjur á
afturhjólunum líka).
Mjúk sex þrepa skipting
Innréttingin er full af litlum hólfum
og geymslum fyrir smærri hluti,
sem kemur sér vel fyrir þá sem nota
bíl sem skrifstofu og vinnustað. Að
keyra bílinn er þægilegt, útsýni
fram fyrir bílinn gott, speglar á
hliðum góðir og sæti þægileg. Sex
þrepa sjálfskipting gerir bílnum
auðveldara að halda ferð þegar
kemur að brekkum og einnig þegar
verið er að draga kerrur reynir ekki
eins mikið á skiptinguna. Fyrir
vikið ætti að vera lítið mál að vera
með allt að þriggja tonna kerru í
eftirdragi án þess að misbjóða
bílnum. Sex þrepa skiptingin er
svo mjúk í skiptingum á milli þrepa
að maður verður varla var við það
þegar bíllinn skiptir sér, sama hvort
skipt er upp eða niður.
Hægt að panta bíl með níu
mismunandi vélarstærðum
Góðar bremsur eru á bílnum, en
hann kemur með diskabremsur
framan og aftan. Bíllinn hjá
Kraftvélum er að öllu jöfnu með
þau algengustu verkfæri sem
viðgerðarmennirnir á verkstæðinu
þurfa að nota við sín störf, sem
vega töluvert. Einnig hefur oft verið
aftan í honum kerra með töluverðan
þunga. Þegar ég ók bílnum var búið
að keyra hann yfir 16.000 km og
samkvæmt aksturstölvu bílsins er
meðaleyðsla á honum 10,9 lítrar
af dísil á hundraðið. Þessi eyðsla
finnst mér ekki mikil þar sem ég hef
séð þennan bíl á ferðinni með mjög
þunga byrði í eftirdragi.
Fæst í mörgum útfærslum
Kraftvélar eru ekki með Iveco
Daily til á lager, en hvern og einn
bíl verður að sérpanta, sama hvort
er sendibíll eða bíll sem meiningin
er að setja pall eða kassa á.
Útfærslurnar eru margar og er hægt
að velja um níu vélarstærðir frá 106
hestöflum upp í 205 hestöfl. Þessir
bílar fást einnig með metanvélar.
Verðið er breytilegt eftir hvernig og
hvað er í bílnum og er frá 4.400.000
fyrir utan skatt.
Iveco New Daily sendibíll:
Með loftpúðafjöðrun að aftan sem
hentar vel íslenskum aðstæðum
Iveco New Daily. Myndir / HLJ
Grindin sem bíllinn er byggður á nær alla leið aftur í stuðara.
Í mælaborðinu er mikið magn upplýsinga.
Stutt er fyrir bílstjóra í öll stjórntæki og mörg hólf, bæði stór og lítil.
Hægt er að leggja mjög mikið á bílinn
í beygju.
Í þjónustubílnum sem ég prófaði er verkfærunum haganlega komið fyrir í
góðri innréttingu.