Læknablaðið - 01.03.1961, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI ÍSLANDS OG
LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR BJARNASON. Meðritstjórar: JÚLÍUS
SIGURJÓNSSON (L. f.) og ÓLAFUR GEIRSSON (L. R.)
45. árg. Reykjavík 1961 1. hefti. ..
revkingavenium
í gagnfræða-
Beykj avíkur.
Köiiiiuit á
tiiigliiiga
skúliiin
Könnun á reykingavenjum
unglinga i gagnfræða- og ungl-
ingaskólum í Reykjavík fór
fram hinn 10. apríl 1959 að til-
hlutan horgarlæknis og fræðslu-
stjóra. Þetta var gert til að fá
upplýsingar um reykingar ungl-
inga og eins til þess að kom-
ast að raun um, að hve miklu
leyti þörf sé fyrir að skipuleggja
baráttu gegn reykingum. Náið
samstarf var liaft við skóla-
stjóra g'agnfræða- og unglinga-
skólanna.
Unglingarnir, sem þátt tóku í
könnun þessari, voru úr 10 ungl-
inga- og gagnfræÖaskólum í
Reykjavík og á aldrinum 13—
17 ára, 1296 piltar og 1435 stúlk-
ur eða alls 2731.
Könnunin fór fram í öllum
skólum sama dag og á sama
tíma, að morgni og eftir hádegi,
þar sem tvísett er í flestum skól-
um. Þess var og gætt, að ungl-
ingarnir vissu ekkert um könn-
unina fyrir fram.
Sú aðferð var höfð, að börnin
voru sjálf látin útfylla þar til
gerða spurningaseðla, sem
kennarar eða skólastjórar
dreifðu meðal þeirra, eftir að
hófa rækilega kvnnt þeim til-
gang og eðli könnunarinnar.
Einnig var þeim gert ljóst, að
þau þvrftu alls ekki að óttast,
að það vitnaðist um hvern ein-
stakan, hvort hann reykti eða
ekki, þar sem seðlarnir voru
ómerktir og spurningum Iiagað