Læknablaðið - 01.03.1961, Blaðsíða 40
18
LÆKNABLAÐIÐ
lagfæringar á sjúkrahúsinu og
búnaði þess og verið aflað ým-
issa nýrra tækja og útbúnaðar.
Starfsemi sjúkrahússins.
Upprunalega mun bafa verið
gert ráð fyrir því, að ráðinn vrði
sérstakur sjúkra'liúslæknir, og
þá iielzt skurðlæknir að spítal-
anum í Stykkishólmi. Ur því
varð þó ekki, enda tæplega ver-
ið neinn fjárhagsgrundvöllur
undir slíka ráðningu. Sjúkra-
búsið befur aldrei notið neins
styrks af opinberu fé. Styrkasta
stoðin undir rekstri þess hefur
alla lið verið fórnfúst, óeigin-
gjarnt og kauplaust starf Fran-
ciskussystranna. Eftir því sem
ég bezt veit,liafa daggjöld sjúkl-
inga við Stykkisliólmsspítala
alla tíð verið mun lægri en við
nokkurt annað sjúkrabús á
landinu. Hefur þvi j)essi starf-
semi sparað sjúklingum, sveit-
arfélögum, sj úkrasamlögum,
ríki og Trvggingastofnun ríkis-
ins stórfé. Fyrst á síðastliðnu
ári var loksins veittur á fjárlög-
um styrkur til sjúkrabússins i
Stykkisbólmi,er nemurkr. 10.00
fyrir legudag, en þess styrks,
og hærri, hafa önnur sjúkrahús
á landinu notið um nokkurtára-
bil. Allir, sem nokkuð þekkja
til reksturs sjúkrabúsa, munu
geta ímvndað sér þá fjárbags-
örðugleika, er sjúkrahúsið hér
hefur átt við að búa, og kemur
þessi styrkur því í góðar þarfir.
Má segja, að ekki sé vonum
fyrr, að hið opinbera sjái sóma
sinn i því að leggja þessari starf-
semi nokkurt lið.
Héraðslæknar í Stykkishólms-
liéraði bafa frá upphafi séð um
alla læknisþjónustu við sjúkra-
liúsið og gert það kauplaust.
Ólafur Ólafsson starfaði við
sjúkrabúsið frá byrjun 1936 og
fram á árið 1917. Gegndi hann
þvi starfi af miklum dugnaði og
ósérhlífni. Það lenti því að
mestu i lilut hans að móta starf-
ið hin fyrstu og erfiðustu árin.
Óhætt er að fullyrða, að sjúkra-
húsið, og öll starfstilhögun þar,
hefur lengst af búið að þeim
frumdrögum, er hann lagði að
öllum starfsháttum.
Frá ársbyrjun 1947 og fram
á mitt árið 1948 starfa við
sjúkrahúsið nokkrir ungir og
efnilegir læknar, lengst þeirra
Eyþór Dalberg, þá Bergþór
Smári og síðast Guðmundur
Björnsson.
Síðan í júní 1948 liefur ólaf-
ur P. Jónsson héraðslæknir ann-
azt læknisþjónustu við sjúkra-
húsið. Hann er nú á förum úr
héraðinu, og er ekki enn vilað,
þegar þetta er rilað, hver við
tekur eða livaða háttur verður
á hafður um læknisþjónustu í
framtíðinni.
Það lætur að líkindum, að oft
hefur verið erfitt fvrir liéraðs-
lækni i jafnfjölmennu og erfiðu
héraði og Stykkishólmshérað er
að sinna sem skyldi daglegiun
störfum í sjúkrahúsinu, og hef-