Læknablaðið - 01.03.1961, Blaðsíða 58
28
LÆKNABLAÐIÐ
Auk þeirra, sem áður voru
taldir, voru nú komnir til fund-
ar eftirtaldir læknar: Ólafur
Björnsson, Jón Gunnlaugsson
(Selfossi), Bjarni . Guðmunds-
son, Guðjón Klemenzson og
Brynjúlfur Dagsson.
Eftir 'hléiS var fundi haldiS
áfram og rætt um sameiginlega
samninganefnd.
Ólafur Geirsson taldi, aS
sjúkrasamlög í núverandi mynd
væru víSa of lítil tryggingarein-
ing.
SigurSur SigurSsson upplýsti,
aS oft liefSu veriS gerðar til-
raunir til að sameina samlög,
en allar slíkar tilraunir hefðu
mistekizt algerlega og væri ann-
aðhvort um að kenna „indi-
vidualisma“ eða hreppapólitík.
Kristinn Stefánsson bar fram
eftirfarandi tillögu: „Fundurinn
félur samninganefnd praktiser-
andi lækna í samráði við stjórn
L. f. að athuga möguleika fyrir
sameiginlegri samninganefnd
eða nefndum til þess að annast
samninga fyrir alla praktiser-
andi lækna landsins.“
Þessi tillaga var samþykkt
með samhljóða atkvæðum og
sama nefnd endurkjörin, en í
lienni eiga sæti: Guðm. Karl
Pétursson, Páll Gíslason, Jón-
as Bjarnason, GuSjón Klemenz-
son og Björn Sigurðsson.
Fundarstjóri lýsti þeirri skoð-
un sinni, að fundurinn hefði
vald til að leysa málið nú, en
vildi ekki ræða það frekar, þar
eð tillagan liefSi verið sam-
þykkt.
Kristinn Stefánsson taldi, að
lillagan um sameiginlega nefnd
hefði komið svo seint fram, að
ekki hefði gefizt timi til að ræða
málið í L. R.
Arinbjörn Kolbeinsson benti
á, að ekki væri hægt að veita
sameiginlegri nefnd samnings-
umboð nema breyta lögum L.
R., og það yrði aðeins gert á
aðalfundi.
3. Næsta mál á dagskrá var
skýrsla samninganefndar hér-
aðslækna og gjaldskrárnefndar.
— Fyrst flutti Brynjúlfur Dags-
son erindi um gjaldskrá héraðs-
lækna. (Otdráttur úr þvi er í
fundargerð, en erindið er birt
síðar í þessu hefti.)
Næstur tók til máls |Ólafur
Björnsson og ræddi um starf
héraðslækna. Ilann taldi starf
héraðslækna tvíþætt: heilsu-
vernd og lækningar. Ilér á landi
starfa læknar einir síns liðs,
hafa ekki sér til hjálpar heilsu-
verndarhj úkrunarkonur eða
aðra lieilbrigSisstarfsmenn. Af
þessum sökum hafa lieilsuvarn-
ir þokað fyrir tímafrekum
læknisstörfum öðrum. Heilsu-
varnir eru þó, samkvæmt emb-
ættisbréfi, æðsta embættis-
skylda héraðslækna. Fyrir þau
störf fær hann fasta greiðslu
úr rikissjóði, en fyrir lækninga-
þjónustu er greitt úr trygginga-
sjóðum samkvæmt lögboðnum
taxta. Embættislaun og greiðsla