Læknablaðið - 01.03.1961, Blaðsíða 78
16
LÆKNABLAÐIÐ
„Hsestu laun, sem full verð-
lagsuppbót greiðist á, skulu
vera 650 kr. á mánuði.“
Gjaldskrá héraðslækna var
látin vera óbreytt, en til að bæta
þeim upp afkomurýrnun vegna
sívaxandi dýrtíðar varð það að
samkomulagi milli landlæknis
og viðkomandi ráðuneytis að
greiða héraðslæknum verðlags-
uppbót svarandi til 650 kr. mán-
aðarlauna, án tillits til þess,
hver laun þeirra voru í raun og
veru. Samanber eftirfarandi
bréf dóms. og kirkjumálaráðu-
neytisins til landlæknis, dags. 6.
maí 1942.
„Þetta ráðuneyti hefur í sam-
ráði við f jármálaráðuneytið
fallizt á að reikna skuli héraðs-
læknum verðlagsuppbót af 650
kr. mánaðarlaunum, án tillits til
þess, hver laun þeirra eru.“
Einhver tregða virðist þó
hafa verið á því frá ráðuneytis-
ins hálfu að standa við þetta
samkomulag til langframa, enda
engin heimild fyrir því í lögum
eða reglugerðum, því að 2. okt.
1942 skrifar landlæknir dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu eftir-
farandi bréf:
„Ég leyfi mér hér með að
beina því til ráðuneytisins, að
það hlutist til um, að héraðs-
læknum verði reiknuð fyrirhug-
uð uppbót á laun þeirra, sam-
kvæmt þingsályktunartillögu
síðasta alþingis í samræmi við
þá reglu, sem upp hefur verið
tekin um ákvörðun verðlagsupp-
bótar til þeirra, að hvorutveggja
uppbótin verði reiknuð af 650
kr. á mánuði, án tillits til þess,
hver laun þeirra eru í raun og
veru. Verði þetta ekki gert,
verður ekki réttlætt, að gjald-
skrá héraðslækna verði látin
áfram með öllu óbreytt.“°)
Þótt þessi háa uppbót væri til
nokkurra bóta, voru læknar al-
mennt óánægðir. T. d. skrifa
læknar í Suður-Þingeyjarsýslu
landlækni bréf 27. sept. 1942;
þakka þar að vísu þá bót, sem
hin háa verðlagsuppbót (á 650
kr. mánaðarlaun) sé, en telja
það allsendis ónóg og fara fram
á að gjaldskráin verði hækkuð
um 300%.°)
Árið 1943 kom ný stjórn til
valda, utanþingsstjórn Björns
Þórðarsonar, sem kunnugt er.
F j ármálaráðherra þeirrar
stjórnar, Björn Ólafsson, taldi
öllum fjárhag landsins stefnt í
voða vegna sívaxandi dýrtíðar
og óhófseyðslu. Taldi hann með
öllu ófært að greiða héraðslækn-
um þessa háu uppbót í heimild-
arleysi. og féll það því niður, en
þess í stað var gjaldskráin
hækkuð 1. marz 1943 um 100%.
Árið 1945 eru sett ný lög um
laun starfsmanna ríkisins, nr.
16, 12. marz. Læknishéruðin eru
þá 50 og laun héraðslækna
ákveðin þannig:
Héraðsl. í Rvík og Akureyri kr.
11.100 (árslaun).
— i 3. fl. hér. kr. 10.200