Læknablaðið - 01.03.1961, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ
27
Við umræður tók Guðm. Karl
Pétursson fyrst til máls. Iiann
skýrði frá því, að Læknafélag
Akureyrar liefði lialdið fund um
launamál og gerðardóminn.
Taldi hann, að ekki væri góðs
að vænta af dómnum, því að rik-
isvaldið liefði þar ætið tögl og
hagldir. Hann taldi, að áður
hefðu sjúkrasamlög haft víð-
tækara vald til samninga. Nú
væri þvi lokið. T. R. hefði tek-
ið þetta meir og meir í sínar
liendur. Hann áleit eðlilegast,
að sami aðili semdi' fyrir alla
lækna við T. R. í einu lagi. —
Læknafélag Akureyrar leggur
til, að sameiginleg nefnd eða
nefndir, sem kosnar séu af L.
I., semji fyrir alla lækna á land-
inu.
Kristinn Stefánsson tók til
máls. Kvaðst hann liafa lagt
málið fyrir stjórn L. R. Hann
lagði til, að skipuð yrði nefnd,
sem athugaði málið og legði
grundvöll að því til frambúðar.
Arinbjörn Kolbeinsson taldi,
að fulltrúar L. R. liefðu samkv.
lögum félagsins ekki heimild til
að samþykkja slika sameigin-
lega samninganefnd.
Jónas Rjarnason áleit, að of
þungt vrði í vöfum að kjósa
nefnd til athugunar málsins. —
Hvað á að gera 1. okt. í haust,
þegar samningar renna út?
spurði Jónas. Á að hafa sama
liátt og áður að ganga að því,
sem að okkur er rétt? Hann
ræddi um hlutfallið 60%/40%
milli launa og kostnaðar og taldi
það algerlega lilbúið og oft
óraunverulegt.
Gunnlaugur Snædal ræddi um
sérfræðilega aðstoð bagf ræðinga
og lögfræðinga í samningum;
taldi, að hagfræðilegur fram-
kvæmdastjóri læknafélaganna
væri framtíðarlausnin.
Ólafur Geirsson taldi ekki í
ljós leitt, liver ávinningur yrði af
sameiginlegri nefnd. Áhugamál-
in væru mjög mismunandi.
Páll Sigurðsson taldi ekki að-
aðalatriði, livaða form væri á
samninganefnd, heldur yrðu
læknar að gera sér ljóst, livaða
kröfur þeir ættu og þyrftu að
gera, en á þessu hefði verið mik-
ill misbrestur, er samninga-
nefndir settust að samninga-
borði.
Páll Gíslason kvað skýrslu-
söfnun og athugun mála vera
góðra gjalda verða, en ekki ein-
lilíta. Það, sem skipti máli, þeg-
ar til kastanna kæmi, væri sam-
takamáttur. Sameiginleg nefnd
mundi án efa bæta hag utanbæj-
arlækna verulega.
Sigurður Sigurðsson ræddi
um samninga sjúkrasamlaga og
taldi hafa verið misbrest á því,
að samninganefndir lækna
liefðu fullkomið samningsum-
boð tii að ljúka samningum.
Kristinn Stefánsson áleit ekki
unnt að gefa nefnd lækna fullt
samningsumboð, meðan nefnd
mótaðila hefði ekki slíkt umboð.
Hér var gert kaffihlé.