Læknablaðið - 01.03.1961, Blaðsíða 26
6
LÆKNABLAÐIÐ
pilta og 10.920 stúlkna, á aldr-
inum 14—17 ára.
Niðurstaðan var sú, að meðal
pilta reyktu að staðaldri 14,5%
14 ára, 25,2% 15 ára, 31,1% 16
ára og 35,4% 17 ára og hjá
stúlkum á sama aldursskeiði,
4,6%, 10,6%, 16,2% og 26,2%.
Aukningin þessi 4 skólaár hjá
þeim, sem reykja reglulega um
10 sigarettur á dag, er úr 13,8%
hjá 14 ára drengjum í 38,5%
hjá 17 ára og frá 7% hjá 14 ára
stúlkum í 15,4% hjá 17 ára.
Þar höfðu reykingar foreldra
mikil álnif á reykingar ungl-
inga.
Meðfvlgjandi töflur sýna, að
hér i Reykjavík reyktu sjaldan
28,2% 13 ára pilta, en 16,1%
17 ára, 13,3% 13 ára stúlkna og
7,3% 17 ára. Oft reyktu 3,9%
13 ára pilta og 12,9% 17 ára,
0,8% 13 ára stúlkna og 2,4%
17 ára. Daglega reyktu 2,7% 13
ára pilta og 25,8% 17 ára, 3,2%
13 ára stúlkna og 9,8% 17 ára.
Alls voru farin að reykja, meira
eða minna, 37,8% piltanna og
18,3% stúlknanna.
Séu fyrrnefndar tölur Itornar
saman við tölur frá þeim lönd-
um, sem hér er getið til saman-
hurðar, sést, að í Reykjavík eru
minni hrögð að daglegum reyk-
ingum skólaharna, en fjöldi
þeirra, sem reykja við og við,
er svipaður hér og annars stað-
ar. Þess ber þó að gæta, að mik-
ils ósamræmis gætir um fram-
kvæmd og tilhögun kannana,
þótt tilgangurinn sé hinn sami
og helztu útkomur fengnar á
svipaðan hátt.
Æskilegt væri að samræma
slíkar kannanir, að minnsta
kosti á Norðurlöndum, með til-
liti til aldursflokka, tegunda
skóla, umhverfis barnanna og
þétthýlis og strjálbýlis. Með því
fengist áreiðanlega samanhurð-
ur, sem mun auðveldara væri
að athuga.
Slíkar kannanir þyrfti helzt að
gera á nokkurra ára fresti. Á
þann Iiátt væri unnt að fylgjast
með, hvort um aukningu eða
minnkun á tóbaksnotkun væri
að ræða frá ári til árs meðal
ákveðinna aldursflokka. Þannig
mætti um leið fylgjast með ár-
angri þess áróðurs, sem beitt
væri með og móti tóbaki. Auk
þess mætti fá upplýsingar um
það, bvers konar áróður eða að-
gerðir gegn reykingum gæfi
bezta raun.
Menn eru ekki á eitt sáttir
um það, hvaða aðferðum beri
að beita, þótt allir séu sammála
um, að eitthvað þurfi að gera
til að stemma stigu við tóbaks-
notkun barna og unglinga.
Nauðsynlegt væri að kanna
reykingavenjur vngri barna, þar
sem hundraðstölur 13 ára barna,
sem farin eru að reykja, eru
svo háar.
SUMMARY
A survey of smoking habits
among 13—17 years old students of
secondary schools was conducted in