Læknablaðið - 01.03.1961, Blaðsíða 36
16
LÆKNABLAÐIf)
Sjúkrahúsið í Stykkishólmi.
fullkomna sjúkrahúss var sá
vandi ‘leystur að verulegu leyti,
og fá íbúar Stykkis'hólmshéraðs
og nærliggjandi héraða vart
þakkað sem skyldi það mikla
framtak og þann dugnað, er
systur Franciskusreglunnar
sýndu með stofnun og starf-
rækslu sjúkrahússins.
Til byggingarinnar voru og
veittar kr. 6000.00 úr sýslu-
sjóði Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýslu. Enn fremur lagði
Stykkishó'lmshreppur til lóð, er
metin var á kr. 4000.00, undir
bygginguna, á einhverjum feg-
ursta stað kauptúnsins. Að öðru
leyti stóð Franciskusreglan und-
ir öllum kostnaði við sjúkra-
húsbygginguna og aflaði einnig
allra tækja og alls búnaðar til
sjúkra'liússins.
Sjúkrahúsið stendur á liöfða
rétt austanvert við höfnina, og
er þaðan hið fegursta útsýni til
fjalla og yfir hinn undurfagra
Breiðafjörð, með ö'llum sínum
'hólmum og eyjum, þar sem er
eitt hið fjölskrúðugasta og
skemmtilegasta fuglalíf á Is-
landi. Til norðvesturs og norð-
urs sér til Barðastrandar, og
sést í björtu veðri allt frá Látra-
bjargi og inn til Bevkjaness í
Reykhólasveit. Til norðausturs
b'lasir við Ivlofningur handan
fjarðarins. Til austurs sér inn
til Dala og Skógastrandar, en í
suðri og til vesturs sést Snæ-
fellsnesfjallgarðurinn, með öll-
um sínum fögru og tignarlegu
fjöllum. Óvíða á Islandi mun
vera til fegurra og tilkomumeira
útsýni.