Læknablaðið - 01.03.1961, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ
43
hverfi, sem eigi nær lengra en
0,1 mílu frá heimili hans, ber
honum fyrir hverja vitjun
sjúkra þar á staðnum 35 aurar,
nema öðruvísi hafi verið um
samið, t. d. viss þóknun á ári.
Fyrir ferð læknis fram á haf-
skip, sem liggur á höfn, skal
greiða 4 kr.“
Til samanburðar um verðlag,
að svo miklu leyti sem saman-
burður er mögulegur, skal þess
getið, að kýrverð er þá sam-
kvæmt verðlagsskrám 70—80
kr. og annað þar eftir. Hefur
það því u. þ. b. fertug- til fimm-
tugfaldazt.
Árið 1899 eru enn sett ný lög
um skipun læknishéraða á Is-
landi og fleira nr. 24, 13. okt.5)
Landinu er nú skipt í 42 lækn-
ishéruð, sem skiptast í 5 launa-
flokka. Launin eru frá 1500 kr.
í stærstu héruðum og upp að
1900 kr. í hinum minnstu og fá-
mennustu héruðum. Einnig er
sett ný allýtarleg og hækkuð
gjaldskrá (4 gr.). Viðtalsgjald
er frá 1 krónu, eins þótt um
stutta vitjun sé að ræða, ekki
yfir 0,1 mílu, fyrir skoðun og
minnstu aðgerðir eða ráðlegg-
ingar og allt að 8 kr. fyrir að
taka af stóran lim eða gera ann-
an þvílíkan meiri háttar líkams-
skurð. Fyrir að hjálpa sængur-
konu 4 kr. Fyrir störf í þarfir
heilbrigðis- og réttargæzlu (5.
gr.) greiðist t. d. 2 kr. fyrir lík-
skoðun og 16 kr. fyrir uppskurð
á líki. Fyrir rannsóknir ásamt
greinargerð 3—4 kr. o. s. frv.
Fyrir ferðir (6. gr.), enda sé
honum séð fyrir ókeypis flutn-
ingi, „kr. 3 fyrir hverjar 12
stundir og að því skapi fyrir
kafla úr 12 stundum“. Til sam-
anburðar skal þess getið, að dag-
kaup verkamanna á Eyrarbakka
er á árunum 1890—1900 kr. 2,
en tímakaup 20 aurar.0)
Árið 1907 eru sett ný lög um
skipan læknishéraða og fleira,
no. 34, 16. nóv.5) Læknishéruð-
in eru nú 43. Árslaun héraðs-
lækna allra jafnt 1500 kr. á ári.
4. grein þessara laga er svo-
hljóðandi:
,,Um borgun fyrir störf hjer-
aðslækna fer eptir gjaldskrá,
er ráðherrann semur, með ráði
landlæknis [Guðm. Björnsson
1906—1931]. Gjaldskrá þessi
skal yfirleitt eigi mæla fyrir um
hærri borgun en þá, sem ákveð-
in er fyrir læknisverk í 4. og 5.
grein laga 13. okt. 1899 nr. 24.“
En í 5. gr. segir um ferðir
héraðslækna:
„Skal sjá honum fyrir flutn-
ingi ókeypis og svo beina leið
sem hægt er, og greiða honum
enn fremur, auk borgunar fyrir
læknisverkið, 30 aura fyrir
hverja klukkustund að deginum
til. milli niðmorguns og nátt-
mála, en 50 aura fyrir stundina
á öðrum tíma sólarhringsins.“
Helgidaga er að engu getið.
— Fyrir ferðir í þarfir heil-
brigðis- og réttargæzlu skyldi
greiða 40 aura fyrir hverja