Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.1961, Page 42

Læknablaðið - 01.03.1961, Page 42
20 LÆKNABLAÐIÐ Aðalfiindiir Læknafélags íslaml§ 1960 Fundurinn var haldinn að Laugarvatni 19.—21. ágúst 1960 í liúsi Menntaskólans. Formað- ur, Kristinn Stefánsson, sctti fundinn kl. 21.00; bauð síðan fulltrúa og aðra fundarmenn velkomna, sérstaklega land- lækni, Sigurð Sigurðsson. For- maður gaf svo landlækni orðið, og ávarpaði hann fundinn. Landlæknir þakkaði hoð stjórnar L. 1. á fundinn og minnti á, að nú mundu vera nær 30 ár, síðan landlæknir sat aðalfund L. 1. Hann lýsti þeirri skoðun sinni, að mjög væri æskilegt, að góð samvinna væri milli L. I. og stjórnar lieilbrigð- ismálanna, og lét í ljós þá von sína, að seta sín á fundinum gæti að því stuðlað. Hins vegar benti hann á, að fulltrúar gætu ekki vænzt þess, að hann Icgði til dagskrármála annað en fyllrí útskýringar og upplýsing- ar, ef með þyrfti. Þá var gengið til dagskrár. 1. Kjörbréfanefnd. Kosnir voru Guðmundur Karl Péturs- son, Eggert Einarsson og Bjarni Bjarnason. Nefndin athugaði þegar kjörhréf, og formaður hennar, Guðm. Karl Pétursson, lýsti kjörhréf allra fulltrúa gild, en þeir voru: Frá Lækna- félagi Reykjavikur: Kristinn Stefánsson, ölafur Geirsson, Gunnlaugur Snædal, Bjarni ekki skýrslur um það atriði, hafa verið teknar um 1300 rönt- genmyndir, og á sama tíma hafa verið gerðar um 1850 röntgen- skyggningar. Ég læt þá þessu stulta og ágripskenda yfirliti um starf- semi sjúkrahússins í Stykkis- hólmi lokið. — Ég vildi hins vegar ekki lála hjá líða, á þessum tímamótum, að minnast þess, sem hér hefur verið unnið til heilla landi og lýð. Og um leið vil ég bera fram þakkir til St. Franciskussvstr- anna í Stykkishólmi fyrir hið óeigingjarna og göfuga starf þeirra; þakkir mínar, þakkir íbúa Stykkishólmsliéraðs og allra þeirra sjúku og þjáðu, sem notið hafa hjúkrunar þeirra og kærleiksrikrar umönnunar á liðnum árum. Stykkishólmi, í febrúar 1961. -------•--------

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.