Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.1961, Page 46

Læknablaðið - 01.03.1961, Page 46
24 LÆKNABLAÐIÐ lækningastofur með tilheyrandi. Gert er ráð fyrir, að þessi álma verði 3 hæðir og verði 1. hæð verzlunarhúsnæði. Gunnar Iíansson arldtekt gerði upphafsdrög að húsinu, og lief- ur nefndin eftir nákvæma yfir- vegun samþykkt að fela honum áframhaldandi starf við bygg- inguna ásamt Halldóri Jónssyni arkitekt. Nefndin liefur athugað fjár- öflunarleiðir. Rætt hefur verið við bankastjóra Búnaðarbank- ans og forstjóra Trygginga- stofnunar ríkisins, og hafa háð- ir gefið vilyrði fyrir láni .... Þessi lán eru þó bundin skilyrð- um, lán Búnaðarbankans því, að læknar leggi sjálfir fram a. m. k. jafnháa upphæð, og liið síðara fæst eklci, fyrr en bygg- ingin er veðhæf. Tryggingar- sjóður lækna hefur gefið fvrir- heit um lán, en það er bundið sömu skilyrðum og lán T. R. Loks hefur nefndin atliugað, iivort til greina komi, að læknar fái styrk úr fé’lagslieimilasj óði, og munu þeir eiga rétt á því samkv. breytingum, sem gerð- ar voru á lögum lians i maí 1957. Nefndin telur óhjákvæmilegt að fara fram á framlög lækna til byggingarinnar, 10—15 þús. kr., sem yrðu gjöf eða vaxta- laust lán. Augljóst er, að ef ekki yrði liægt að afla fjár hjá lækn- um allt að 2 milljónum króna. nnmdi niálið fara i strand um ófyrirsjáanlega framtíðog lækn- ar sennilega missa af þeirri lóð, er þeim hefur verið útlilutað við Miklatorg. Eftir skýrslu Bjarna urðu nokkrar umræður. Til máls tóku: Kristinn Stefánsson, Pál'l V. G. Kolka, Páll Sigurðsson, Arinbjörn Kolbeinsson, Öfeigur Ófeigsson, Eggert Einarsson og Guðm. Karl Pétursson. Ræðumenn voru á sama máli og frummælandi nema Arin- björn, sem taldi máliðalltdauða- dæmt frá bvrjun. Sjálfseignar- fyrirkomu'lagið væri óbæft, — betra væri að hafa sjálfseignar- form á byggingar- og rekstrar- félagi liússins, en hlutafélags- form á fjáröflunarfélagi til framkvæmda. Hann taldi flest- um læknum ofviða fjárhagslega að leggja fram fé til hússins. Páll V. G. Kolka taldi ekki sanngjarnt að binda framlag við eina greiðslu, réttlátara væri t. d. að læknar greiddu framveg- is ákveðinn hundraðshluta af brúttótekjum til bússins. Með því næðist meiri sanngirni milli eldri og yngri lækna. Tillaga kom fram í málinu frá Ólafi Geirssyni, þess efnis að fela stjórn Domus Medica að kanna vilja félagsmanna til fjárframlaga. Ákveðið var að kjósa nefnd í málið, er skvldi semja tillögu fvrir fundinn, byggða á um- ræðum og framkominni tillögu. í nefndina voru kosnir: Kristinn

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.