Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.1961, Page 70

Læknablaðið - 01.03.1961, Page 70
38 LÆKNABLAÐIÐ y^ja^núi Ota^sson: NÝ LIFSÖHJSKRÁ Fyrir skömmu var gefin út ný lyfsöluskrá um sérlyf, Lyf- söluskrá II, sem gekk í gildi 1. febrúar s.l. Jafnframt féll úr gildi Lyfsöluskrá II frá 10. des- ember 1958, ásamt fjölmörgum breytingum, sem á henni höfðu verið gerðar. Hin nýja lyfsöluskrá er 67 fjölritaðar síður, en auk þess eru jafnmargar auðar síður, sem skrá má á væntanlegar breytingar og viðauka. Frá- gangur er prýðilegur. Lyfsöluskráin er læknum hin gagnlegasta handbók, og þeim, sem skrifa lyfseðla, er nauðsyn- legt að kynna sér efni hennar vel. I skránni eru talin svo til öll sérlyf, sem nú eru notuð hér á landi. Þar fást upplýsingar um verð lyfjanna og hvort og að hve miklu leyti þau eru greidd af sjúkrasamlögum. Þá má þarna sjá, hvaða sérlyf fást afgreidd án lyfseðils eða hvort þau fást afgreidd aðeins einu sinni eða aftur og aftur gegn sama lyfseðli. Einnig eru leið- beiningar um útreikning á lyfjaverði, skrá yfir lyfjafram- leiðendur og skrá yfir lyf, sem greidd eru að fullu af sjúkra- samlögum, ef notuð eru gegn ákveðnum sjúkdómum. Flest sérlyf hafa hækkað verulega í verði, síðan fyrri lyf- söluskrá var gefin út, sem kunnugt er, eða um nálægt 50% að jafnaði. Allmörg hafa þó hækkað miklu minna, og veldur því lækkað verð frá verksmiðju. I skránni má víða sjá mikinn verðmun á sérlyfjum sömu teg- undar. Þannig kosta t. d. 12 hylki af Chloromycetin, sem hvert inniheldur 250 mg, kr. 165.00, en sama magn af öðr- um chloramphenicol-sérlyfjum (Enteromycetin, Kemicetine, Novomycetin, Scanmycetin) frá kr. 41.00 upp í kr. 68.50. Annað dæmi: 20 g af 1% hydrocortisonsmyrsli kosta frá Leo kr. 59.50 og frá FCL kr. 67.00, en sama magn frá 5 öðr- um verksmiðjum kostar allt frá kr. 109.00 og upp í kr. 312.00. Hvergi nemur þó verðmun- urinn hærri upphæðum en í prednisonlyfjum í töfluformi. Hver 5 mg tafla af prednisoni kostar sem hér segir: Deltacor- tone kr. 11.73, Di-Adreson kr. 8.90, Meticorten kr. 8.67, Ultra- corten kr. 8.10, Delcortin kr. 7.10 og Hicorton kr. 2.90. Sjúkl- ingur, sem notar 2 töflur af Deltacortone á dag, greiðir kr. 704.00 á mánuði (sjúkrasamlag e. t. v. helminginn), en sama magn af Hicorton kostar kr.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.