Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.1961, Qupperneq 76

Læknablaðið - 01.03.1961, Qupperneq 76
44 LÆKNABLAÐIÐ stund, jafnt á nótt sem degi, þó aldrei meira en 6 kr. fyrir sólar- hringinn. „Á slíkum ferðum ber lækni engin borgun fyrir skoð- un á sjúklingum í þarfir sótt- varna.“ Samkvæmt lögunum (nr. 34, 16. nóv. 1907) er samin gjald- skrá fyrir héraðslækna árið eft- ir, og gekk hún í gíldi 1. maí 1908. Þetta er mjög ýtarleg gjaldskrá, sem enginn kostur er að taka upp í heild. Þess skal aðeins getið, að lægsta gjald er óbreytt 1 kr. fyrir stutta vitj- un, ekki yfir 0,1 mílu, viðtal, minnstu athuganir og aðgerðir. Hæsta gjald er 20 kr., t. d. fyrir keisaraskurð á lifandi konu, fyrir að taka legið allt, fyrir holskurði og steinskurði. Al- gengasta gjald er 1—3 kr. fyrir rannsóknir, 1—5 kr. fyrir minni háttar aðgerðir og 5—15 kr. fyrir meiri háttar aðgerðir. Verðlag er nokkru hærra en áður (1899), kýrverð um 100 kr. til uppjafnaðar. Enn frem- ur má geta þess til samanburð- ar, að Dagsbrúnarkaup er á tímabilinu 1907—1913 30 aurar á tímann (Dagsbrún var stofn- uð 1906). Hefur tímakaup lækna í ferð- um því verið hið sama og kaup verkamanna, 30 aurar á tímann, en viðtal hið minnsta og aðgerð- ir kostað rúmar 3 vinnustundir og þætti dýrt nú, (um 70 kr.). En þess ber að gæta, að læknar voru þá og lengi síðan „notaðir" svo miklu minna en nú er orðið. Þessi gjaldskrá gilti óbreytt í 25 ár, til ársins 1933, er núgild- andi gjaldskrá var sett, þótt verðlag og kaupgjald breyttist og hækkaði verulega í sambandi við styrjöldina 1914—1918. T. d. er Dagsbrúnarkaup komið upp í 90 aura á tímann árið 1919, verður 1 kr. 48 aurar 1921, en er frá 1 kr. og 20 aur- um til 1 kr. og 40 aurum til árs- ins 1930.7) Sá kauptaxti gilti í Reykjavík, en annars staðar á landinu var kaupið lægra. Að sjálfsögðu rýrnar hlutur læknanna að sama skapi sem verðlag og kaup almennt hækk- ar, en það bætir hag þeirra nokkuð, að aðsókn að þeim fer smám saman vaxandi. Þess ber þó að gæta, að oft var greiðslu- geta manna lítil á þeim árum. Ástandið var orðið svo slæmt um 1919, að þáverandi formaður Læknafélags Islands óskaði eft- ir heimild til þess frá héraðs- læknum að mega segja lausum öllum héraðslæknisembættum á landinu í einu lagi.8) Til þess kom þó ekki, enda voru sett ný launalög árið 1919, nr. 71, 28. nóv.n) Héruðunum, sem nú eru 42 að tölu, var nú aftur skipt í 3 flokka, og byrjunarlaun eru: 1 fyrsta flokki 2500 kr. á ári, í öðrum fl. 3000 kr. og í þriðja flokki 3500 kr. Síðan hækka launin eftir hver 5 ár í sömu röð um 400, 300 og 300 upp í 3500, 4000 og 4500 kr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.