Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.1961, Side 79

Læknablaðið - 01.03.1961, Side 79
LÆKN ABLAÐIÐ 47 — í 2. fl. hér. — 7.200—9.600 — i 1. fl. hér. — 6.000—7.800 Gjaldskráin er óbreytt frá 1943, þ. e. a. s. upphaflega gjald- skráin tvöföld. Dagsbrúnarkaup er árið 1945 frá kr. 6,69 í jan. til 6,96 í des. (vísit.273—284 st.). Árið 1950 er vísitalan orðin 300 stig miðað við 100 árið 1939, og er þá, í marz, táknuð með töl- unni 100, en útborgað tímakaup verkamanna, eins og það var þá, gert að grunnkaupi. Tveimur árum síðar, 1. marz 1952, var gjaldskráin hækkuð öðru sinni og nú um 50%, þ. e. þrefölduð. Það ár er Dagsbrúnarkaup kr. 13,31 í jan. og febr. og 14,60 í des. (vísitala 144—158 stig.7) Árið 1955 eru sett ný lækna- skipunarlög, nr. 16, 9. apríl.5) Læknishéruðin eru nú orðin 55 og 3 að auki óskipuð. Tvö þeirra, Súðavíkurhérað og Raufarhafn- arhérað, hafa nú, 1960, verið skipuð, svo að læknishéruðin eru orðin alls 57 að tölu. Gjald- skráin er hækkuð 1. marz sama ár um 66%%, þ. e. fimmfölduð. Þá er Dagsbrúnarkaup frá kr. 14,69 í jan.—febr. til 17,56 í des. (vísitala 159—171 stig). Sama ár eru einnig sett ný launalög, þau er enn gilda, nr. 92, 24. des. Héraðslæknum eru ákveðin laun samkv. VI., VII. og X. flokki, þ. e. kr. 40.200 3. fl. héruð, 28.500—37.800 2. fl. og 23.700—30.900 1. fl„ og öðr- um embættislæknum: landlækni III. fl. kr. 51.300, berklayfir- lækni og yfirlæknum á sjúkra- húsum IV. fl. 47.400, aðstoðar- læknum V. fl. 43.800. Loks er gjaldskrá héraðs- lækna hækkuð árið 1956 um 20%, þ. e. upphaflega gjald- skráin sexföld. Þegar sú gjaldskrá, er nú gildir sexföld, var sett árið 1933, var Dagsbrúnarkaup kr. 1,36 á tímann, og Iiélzt svo óbreytt til ársins 1937.7) Víða á landinu var verkamannakaup mun lægra. Mun láta nærri, að það hafi til jafnaðar verið um 1 kr. á tímann. Hafa því lægstu liðir gjaldskrárinnar verið í hlutfalli við tímakaup verka- manns og bænda, eins og 2:1, síðan hefur kaupgjald og verð- lag hækkað eins og rakið hefur verið og kunnugt er. Kaup verkamanna er nú kr. 22,67 á tímann, þ. e. hlutfallið hefur snúizt við og er sem næst 1:2. Enn fremur set ég hér til samanburðar gjaldskrá presta fyrir aukaverk, eins og hún var 1925 og 1960: 1925 1960 skírn kr. 5.00 kr. 50.00 gifting — 9.00 — 150.00 greftrun — 15.00 — 75.00 án ræðu í Rvik — 350.00 m. ræðu ferming — 18.00 — 175.00 Gjaldskrá þessi, eða öllu held- ur þær leifar af hinni upphaf- legu gjaldskrá, sem flestir hér- aðslæknar eiga nú við að búa, er allsendis úrelt orðin, þrátt fyrir

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.