Læknablaðið - 01.04.1966, Síða 71
LÆKNABLAÐIÐ
93
við framhaldsnám í réttarlæknisfræði í Boston fjóra mánuði. Alm.
lækningaleyfi 21. jan. 1965. Sérfræðipróf í líffærameinafræði í Banda-
ríkjunum vorið 1965. Jónas starfar nú sem deildarlæknir við Rann-
sóknastofu Háskólans og er settur dósent í meinafræði við Háskóla
íslands. Sérfræðiritgerðir: Pulmonary Oil Emboli after Lymphography
(AMA Archives of Pathology) og Multiple Adenoma (Hamartoma) of
the Liver Treated by Subtotal (90%) Resection (Annals of Surgery).
★
Guðmundur Árnason var hinn 18. marz 1966 viðurkenndur sér-
fræðingur í lyflækningum. Hann er fæddur að Kjarna í Eyjafjarðar-
sýslu 28. nóv. 1925, stúdent frá M. A. 1945, cand. med. vorið 1953. Var
aðstoðarlæknir í Egilsstaðahéraði í sex mánuði, síðan námskandídat í
Reykjavík og þá aðstoðarlæknir við Rannsóknastofu Háskólans í nær
eitt og hálft ár. Var síðan við nám og störf í Kaupmannahöfn
í eitt ár. Sérnám í Svíþjóð og störf á ýmsum deildum, aðallega i
Vánersborg, í sjö ár, þar af á lyflæknisdeild fjögur ár og örorkusjúk-
dómadeildum tvö ár, en því næst við lungnadeild í Gautaborg í einn
vetur og síðan aðstoðaryfirlæknir þar. Alm. lækningaleyfi 23. apríl
1956. Alm. lækningaleyfi í Svíþjóð 1963 og viðurkenndur sérfræð-
ingur þar 1965. Guðmundur er nú 1. aðstoðarlæknir við lyflæknis- og
farsóttadeild Borgarspítalans í Reykjavík.
★
Ólafur Bjarnason hefur verið skipaður prófessor í meina- og
sýklafræði við Háskóla íslands frá 1. maí 1966.
★
Þorsteinn Sigurðsson hefur verið skinaður héraðslæknir í Álafoss-
héraði, og Ragnar Ásgeirsson hefur verið skipaður héraðslæknir í
Hafnarfjarðarhéraði, báðir frá 1. júní 1966.
★
Settir héraðslæknar: Þóroddur Jónasson, héraðslæknir í Breiðu-
mýrarhéraði, settur í Kópaskershéraði og Friðrik Sveinsson, héraðs-
læknir í Þórshafnarhéraði, settur í Raufarhafnarhéraði, báðir frá 11.
febr. 1966, jafnframt því, sem þeir gegna sínum eigin héruðum. ísak
Hallgrímsson cand. med. settur héraðslæknir í Kópaskershéraði frá
15. maí 1966 til jafnlengdar 1967, ásamt Raufarhafnarhéraði.
• ★
Ólafur Einarsson, héraðslæknir í Hafnarfirði, hefur fengið lausn
frá embætti frá 1. febr. 1966 vegna aldurs. Hann hefur verið settur
til að gegna embættinu til 1. júní 1966.
★
Guðmundur T. Magnússon, héraðslæknir í Kleppjárnsreykjahér-
aði, og Þórhallur B. Ólafsson, héraðslæknir í Vestmannaeyjum, hafa
fengið lausn frá embætti frá 1. júni 1966. Kristján Sigurðsson, héraðs-
læknir í Patreksfjarðarhéraði, hefur fengið lausn frá embætti írá
1. júlí 1966.