Læknablaðið - 01.12.1974, Síða 9
LÆKNABLAÐIÐ
159
Kjartan R. Guðmundsson, Sverrir Bergmann, Ottó J. Björnsson
MULTSPLE SCLEROSIS
(Heila- og mænusigg)
YFIRLIT UM RANNSÓKNIR Á MULTIPLE SCLEROSIS (M
Á ÍSLANDI. SAMANBURÐUR VIÐ ÖNNUR LÖND.
MS (heila- og mænusigg) dregur nafn sitt
af blettum víðsvegar í hvíta efni miðtauga-
kerfisins, þar sem slíður taugaþráða hafa
skemmst eða leyst upp. Myndast þar síðar
bandvefur (sigg). Þessar skemmdir geta
verið mjög útbreiddar og gefið margvís-
leg sjúkdómseinkenni. Þessar skemmdir
byrja kringum bláæðar miðtaugakerfis og
gefa því stundum svipuð einkenni báðum
megin.
Síðan Multiple Sclerosis (MS) var fyrst
lýst sem sérstökum sjúkdómi fyrir og um
miðja 19. öld,12 13 14 15 hefur um fáa neuro-
logiska sjúkdóma verið jafnmikið ritað.
Það hefur æ betur komið í ljós, hversu
erfið greining þessa sjúkdóms er. Ennþá er
ekkert ábyggilegt próf til, en aukning
gamma-globulins í mænuvökva er nokkuð
til hjálpar. Við greiningu M S hafa verið
settar vissar reglur og ber þar fyrst að
nefna skilyrði Allisons.4 Þar eru sjúkl-
ingar flokkaðir í líklega (probable) og
mögulega (possible) MS-sjúklinga. í lík-
lega (probable) flokkum eru þeir, sem
lítill vafi leikur á um MS greiningu. Það
verða að finnast neurologisk einkenni og
einhver örorka. Sjúkdómurinn þarf helst
að hafa komið í köstum og oft með algjör-
um eða nokkrum bata. Neurologisk skoð-
un þarf að benda til skemmda á tveimur
eða fleiri stöðum í hvíta efni miðtauga-
kerfisins. í mögulega (possible) flokkinn
koma þeir, sem hafa örugg neurologisk
einkenni frá hvíta efni miðtaugakerfis, en
þar sem sjúkdómurinn fer stöðugt versn-
andi án öruggrar vissu um fleiri en eina
skemmd.
Önnur þekkt flokkun á MS kennd við
Schumacher80 er þannig:
1. Það verða að finnast neurologisk ein-
kenni við skoðun, sem benda eindreg-
ið til skemmda á miðtaugakerfi. Kvart-
anir einar nægja ekki, þótt þær styðji
MS greiningu.
2. Við neurologiska skoðun eða sam-
k.væmt sjúkrasögu verður að vera vissa
um tvær eða fleiri skemmdir á mis-
munandi stöðum í miðtaugakerfi.
3. Neurologisk skoðun verður einkum
að benda til' skemmda í hvíta efni mið-
taugakerfis.
4. Einkenni frá miðtaugakerfi verða að
fylgja annarri hvorri af þessum regl-
um:
a) Koma í tveim eða fleiri köstum með
mánaðar millibili, og hvert kast
verður að standa í a. m. k. 24 klst.
b) Hæg eða óregluleg versnun í a. m.
k. 6 mánuði.
5. Útiloka verður alla aðra neurologiska
sjúkdóma af neurolog.
6. Sjúkdómurinn verður að byrja á aldr-
inum 10-50 ára.
Sjúklingur, sem uppfyllir þessi skilyrði,
er greindur með öruggt (definite) MS. All-
ir aðrir sjúklingar eru greindir með mögu-
legt (possible) MS.
Þrátt fyrir svo strangar reglur er MS oft
ranggreint, og frægur heila- og meina-
fræðingur hefur í grein lýst þessu þannig,
að MS sé nútímans mesta eftirherma allra
möguiegra neurologiskra sjúkdóma.8
Það hefur fyrir löngu komið í ljós, að
MS er algengast í tempruðu beltunum, og
ennfremur er nú nokkurn veginn sannað
með rannsóknum á innflytjendum til
ísrael40 og til Suður-Afríku,21 að MS er
barnasjúkdómur, er menn fá fyrir 15 ára
aldur.*)
*) Um orsök MS visast til greinar Margrétar
Guðnadóttur, sem mun birtast siðar.