Læknablaðið - 01.12.1974, Síða 31
LÆKNABLAÐIÐ
173
DÁNARTALA í ÖRUGGUM OG
LÍKLEGUM TILFELLUM
Á árunum 1946-1969 (1. október) höfðu
9 af 50 körlum dáið, eða 18%, og af 79
konum 22, eða 27.9%. Meðal dánartala á
ári á þessu tímabili var hjá körlum 0.75%,
hjá konum 1.16% og hjá báðum kynjum
0.9%. Þetta er lág dánartala, samanborið
við önnur lönd.47
UMRÆÐUR
Báðar síðustu ritgerðirnar um MS á ís-
landi-r' 28 vcru unnar eftir sömu greiningai'-
skilyrðum (reglum).3 38 Síðari rannsóknin
telst þó ábyggilegri, þar sem sjúkrasagan
nær ekki eins langt aftur í tímann. Meðal
tími milli byrjunar sjúkdóms og greiningar
hans var í fyrri rannsókninni um 12 ár, en
í þeirri síðari 5.6 ár. Síðari talan er í sam-
ræmi við niðurstöður annara höfunda.41’42
«8 50 38 57
Sjö-ára tímabilið frá algengisdegi 31.
desember 1965 til 31. desember 1972, þeg-
ar hætt var að safna tilfellum, verður að
að teljast fremur stutt vegna erfiðleika
við greiningu á MS. Margir telja að þurfi
minnst 10 ár til skráningar sjúklinga í
rannsókn sem þessa. Samt sem áður segir
Leibowitz,41 að 90% af MS sjúklingum í
ísrael hafi verið lagðir inn á spítala 7 ár-
um eftir byrjun sjúkdómsins.
Byrjunaraldur var mjög svipaður meðal
karla og kvenna. í fyrri rannsókn20 var
byrjunaraldur tiltölulega lágur, að meðal-
tali 27 ár. í síðari rannsókninni, fyrir tíma-
bilið 1956-1965, var meðal byrjunaraldur
32 ár, sem er í meira samræmi við niður-
stöður annara.2 47
Algengi MS á 100,000 íbúa var í árs-
lok
Karlar Konur Bæði kynin
1945 19.6 57.2 38.4
1950 27.7 64.1 45.8
1955 39.8 65.7 52.7
1960 42.8 62.1 52.4
1965 44.0 60.7 52.3
Þessar tölur eru líkar tölum í öðrum
rannsóknum frá Norður-Ameríku og Evr-
ópu, sjá töflur 14 og 15.72 4 2» «9 25 ísio eo ss
55 54 6 01 02 56 57
Undantekningar koma þó fram í Orkn-
eyjum, Shetlandseyjum, Norð-austur Skot-
landi og í Gautaborg, þar sem algengi
reyndist tvöfalt hærra.23 22 10
Algengi virðist orðið jafnt og stöðugt á
síðari hluta tímabilsins 1946-1965. Flestir
höfundar skýra frá hækkandi algengi.45
Algengistala er hærri hjá konum á báðum
tímabilunum, 1946-1955 og 1956-1965.
Þetta er í samræmi við niðurstöður flestra
höfunda.04 52 3 44 4 34 so 58 es 51 oe 10
Hlutfall milli algengi karla og kvenna
er þá um 0.7, og er þetta í samræmi við
niðurstöður annara.10 Algengi var hæst í
aldursflokkunum 30-39 og 40-49 á öllu
tímabilinu 1946-1965. Svo virðist sem al-
gengi sé að verða hæst í aldursflokknum
40-49. Þetta er í samræmi við hærri aldur
við byrjun sjúkdómsins á síðara tímabil-
inu 1956-1965. Flestir höfundar hafa fund-
ið hæst algengi í aldursílokknum 40-49
ára.40 10
Nýgengi á tímabilinu 1946-1965 virðist
heldur lækkandi a. m. k. hjá körlum. Þetta
má skýra sumpart með fremur stuttum
söfnunartíma og að nokkru leyti vegna
hækkandi aldurs við byrjun, eins og áður
var getið. Sama má segja um áhættu (ný-
gengi í aldurshópnum 10-50 ára). Meðai
árlegt nýgengi fyrir 1946-1955 var fyrir
bæði kynin 3.1 (90% vikmörk: 2.4-3.9). Á
tímabilinu 1956-1965 var nýgengi fyrir
bæði kynin 1.9 (90% vikmörk: 1.4-2.6).
Tilsvarandi tölur fyrir áhættuna voru 5.3
(4.0-6.8) og 3.4 (2.5-4.5). Kurland telur, að
engin sönnun sé fyrir breytingu til hækk-
unar eða lækkunar á nýgengi MS og því
sama heldur Broman fram.33 37 10
í ýmsum löndum Evrópu hafa fundist
svæði, þar sem algengi MS er óvenju
hátt.04 70 71 6 1 8 1 0 3 5 54 25 50 01 03 20 30 37
í ritgerðinni „Clinical studies of mul-
tiple sclerosis in Iceland“,26 reyndist ekki
marktækur munur á algengi milli lands-
hluta (tafla 13), en nokkrar líkur voru
taldar fyrir staðbundinni aukningu tilfella
af MS á 3 stöðum á landinu. Fyrsti stað-
urinn var í Húnavatnssýslu (Vatnsdalur),
þar sem riða er landlæg. Enginn af hinum
nýju 34 öruggu og líklegu MS sjúklingum
voru fæddir þar. Annar staður var Fljóts-
dalur. Aðeins 1 af 9 sjúklingum, sem bætt-
ust við með fæðingarstað á Austurlandi
var fæddur í Fljótsdal, hinir 8 voru fædd-