Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1974, Page 43

Læknablaðið - 01.12.1974, Page 43
LÆKNABLAÐIÐ 181 Þorkell Guðbrandsson og Snorri Páll Snorrason SVÆSINN HÁÞRVSTINGUR (III. og IV. stig) RANNSÓKN Á SJ LJKDÓMSFARI OG AFDRIFUM 117 SJÚKLINGA Á LYFLÆKNINGADEILD LANDSPÍTALANS 1957-1971 INNGANGUR Ekki er vitað til, að birzt hafi uppgjör um háþrýstingssjúklinga hérlendis. Þótti því ástæða til að rannsaka nokkur atriði varðandi sjúklinga með svæsinn háþrýst- ing, sem legið höfðu á lyflækningadeild Landspítalans og bera niðurstöður saman við erlendar rannsóknir. Athuguð var dreifing sjúklinga á tíma- bilinu og ýmis atriði varðandi ástand þeirra við greiningu, einkum í ljósi síðari afdrifa þeirra þ. e. fylgikvilla, dauðaorsaka og lífslengdar. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐ Farið var yfir skýrslur sjúklinga, sem vcru greindir með háþrýsting (hypertensio arterialis) á lyflækningadeild Landspítal- ans á tímabilinu 1957-1971. Sérstaklega voru athugaðar niðurstöður augnbotna- skoðana, en sami augnlæknir (Kristján Sveinsson) hafði skoðað nær alla þessa sjúklinga á tímabilinu. Af þessum sjúkl- ingahópi voru þeir sérstaklega teknir fyr- ir, sem töldust hafa fundus hypertonicus III og IV samkvæmt flokkun Keith & Wageners.8 í IV. stig háþrýstings eftir augnbotnaskoðunum flokkast þeir sjúkl- ingar, sem hafa papilluoedema (öðrum megin eða báðum megin) og auk þess áberandi háþrýstingsbreytingar í slagæð- um. í III. stig háþrýstings flokkast þeir sjúklingar, sem hafa blæðingar og/eða exúdöt og auk þess greinileg slagæða- þrengsli og Gunn’s einkenni. Þessir sjúkl- ingar með III. og IV. stigs breytingar eru sagðir hafa svæsinn háþrýsting. Áður en virk meðferð kom til sögunnar, höfðu flest- ir sjúklingar með slíkar breytingar afar slæmar lífshorfur.1 81012 Um vafatilfelli voru höfð samráð við Kristján Sveinsson og auk þess stuðst við grein, sem hann hefur ritað um augneinkenni við háþrýst- ing.‘J Þeir sjúklingar voru ekki taldir með, sem voru álitnir hafa augnbotnablæðingar og/eða papilluoedema af völdum annarra sjúkdóma en háþrýstings, t. d. sjúklingar með retinopathia diabetica á háu stigi eða hemorrhagia subarachnoidalis, enda voru önnur einkenni háþrýstings ekki áberandi í þeim tilvikum. Ekki var reynt að vinsa þá sjúklinga úr, sem höfðu sekúnder há- þrýsting, enda ekki framkvæmanlegt, þar sem ekki höfðu verið gerðar viðunandi rannsóknir m.t.t. orsaka nema hjá fáein- um sjúklingum, og ekki var samræming í rannsóknum á tímabilinu. í hópinn flokk- uðust m. a. 3 konur, sem fengu svæsinn háþrýsting í sambandi við toxemia gravid- arúm, en háþrýstingurinn hélzt síðan áfram. Allmargir höfðu svæsna nýrnasjúk- dóma, þótt ekki lægi ávallt fyrir, hvort um orsök eða afleiðingu var að ræða. Fyr- ir komu bæði glomerulonephritis og' pyelonephritis. Vitað er um tvo sjúklinga með renóvaskúler háþrýsting, einn sjúkl- ing með pólýcystisk nýru, og einn sjúkl- ing með mjög svæsinn lupus erythematos- us. Einn sjúklingur hafði hyperplasíu á nýrnahettuberki. Taugadeild Landspítalans tók til starfa í nóvember 1967. Sjúkraskýrslur tauga- deildar, þar sem greiningin háþrýstingur (hypertensio arterialis) kom fyrir, voru kannaðar fram til 31. desember 1971. 30 sjúklingar höfðu þessa greiningu, en eng- inn af þeim hafði III. eða IV. stigs há- þrýstingsbreytingar í augnbotnum. Þess ber að gæta, að augnlæknir skoðaði ekki þessa sjúklinga, en farið var eftir augn- botnaskoðunum lækna taugadeildar. Afdrif eins sjúklings, sem uppfyllti auð- kenni svæsins háþrýstings, tókst ekki að rekja, en hann var útlenzkur að uppruna og hafði flutzt af landi brott. Hann var ekki talinn með hópnum. Afdrif allra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.