Læknablaðið - 01.12.1974, Side 71
LÆKNABLAÐIÐ
201
(34%) fá mengisbólgu á aldrinum 1—11
mánaða en drengir (21%). Flestöll börnin
eða 91% voru innan 5 ára aldurs. 50%
voru innan 2 ára, 30% innan 1 árs og 4%
innan 1 mánaðar aldurs, allt miðað við
heildartölu.
Tafla IV sýnir tölu sjúklinga innan
hvers aldursflokks miðað við sýklateg-
und. Af 7 börnum með óalgengari sýkla
voru 5 innan 1 mánaðar aldurs. Tilfelli af
ókunnum uppruna voru hlutfallslega al-
gengust í aldursflokknum 1—11 mánaða
eða 56%. Samsvarandi tala var 35% hjá
börnum 1—5 ára.
Sjúklingar með fyrirlæga kvilla: Tveir
9 ára gamlir drengir voru lagðir inn tvisv-
ar hvor um sig með meningitis sem afleið-
ing af höfuðkúpubroti, er þeir höfðu hlot-
ið, annar 7 og hinn 15 mánuðum fyrn
innlagningu. Hjá öðirum fannst D.pneu-
moniae við fyrri innlagningu og enginn
sýkill í þeirri síðari, en hjá hinum
fannst H. influenzae í fyrri innlagningu
og D.pneumoniae í seinna skiptið. Aðeins
fyrri innlagning hvors sjúklings um sig
er talin með í uppgjöri.
Þriðji sjúklingurinn með höfuðkúpubrot
var 4 ára gamall drengur, sem lézt um 3
klukkustundum eftir komu á spitaiann. Ein-
um sólarhring áður hafði stungizt spýta ná-
lægt vinstra auga og eina áverkamerkið
var smávægilegt sár neðan innri augn-
króks. Við krufningu kom í ljós, að spýtan
hafði stungizt upp í gegnum þak augn-
tóftar og valdið mengisbólgu og ígerð. Þrír
sjúklingar höfðu opin myelomeningocele
og einn lokað. Tveir sjúklingar voru með
hydrocephalus congenita operata (Pudenz
ventill). Einn sjúklingur var með Fallot's
tetralogi. Hjá einum hafði verið gerð
splenectomia vegna thrombocytopenia.
Einn var með hydronephrosis bilateralis
og lélega nýrnastarfsemi allt frá fæðingu
og enn var einn með glomerulonephritis
chronica.
Einkenni: Tafla VI bregður upp yfirliti
yfir helztu sjúkdómseinkenni, en í henni
og einnig töflu VII eru ekki tekin með 3
börn með myelomeningocele: 2 stúlkur,
önnur með ps. pyocyanea og hin ósýkla-
greind og 1 drengur með str. haemolyticus.
Eins og tafla VI ber með sér eru fjögur
einkenni langalgengust: hár hiti, stífleiki í
Stu /Uur
I | Dreng//-
2. mynd. Fjöldi tilfella á þremur 5-ára
tímabilum:
1958—1962 samtals 31 tilfelli
1963—1967 — 56 —
1968—1972 — 45 —