Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.1977, Side 26

Læknablaðið - 01.10.1977, Side 26
196 LÆKNABLAÐIÐ NABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafclag íslands- og LlRl Læknafélag' Reykjavikur LbT 63. ÁRG. — SEPT.-OKT. 1977 UM STÖÐU ÁFENGISMÁLA Á ÍSLANDI í síðasta tölublaði Læknablaðsins birtist grein um delirium tremens.5 Þar kom m.a. fram, að tíðni þessa fylgikvilla drykkjusýk- innar hefur aukist, með aukinni heildar- neyslu áfengis á mann, á því 45 ára bili, sem rannsóknin tók til. Líklegt er, að tíðni ann- arra fylgikvilla drykkjusýki hafi aukist á sama hátt, þó að það hafi ekki enn verið kannað. Pó að tíðni fylgikvilla hafi vaxið og sjúkdómurinn hafi kannski tekið á sig alvar- legri mynd, er ekki þar með sagt, að tíðni drykkjusýkinnar sjálfrar hafi vaxið. Samkv. rannsókn,5 sem gerð var á fólki, sem lifði mesta áhættualdursbil drykkju- sýki og ofdrykkju á bannárunum voru líkur karla til að verða drykkjusýki að bráð 6,5%. Væru hins vegar reiknaðar líkur til að verða drykkjusýki eða ofdrykkju, samkv. skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar, að bráð, voru þær 9,8% fyrir karla en 0,5% fyrir konur. Ýmislegt bendir til, að tíðni drykkjusýki hafi auk- ist mjög meðal kvenna. Má þar helst benda á að fimmtungur þeirra áfengissjúklinga sem lögðust inn á Kleppsspítalann í fyrsta sinn á s.l. ári, voru konur.11 Ekki verður ráðið af innlagningum á spítalann um breytingu á tíðni sjúkdómsins meðal karla. Til slíks þyrfti nauðsynlega að gera nýja rannsókn sambærilega við hina fyrri. Mundi hún veita mikilvægar upplýsingar um tengsl heildar- áfengisneyslu þjóðarinnar og tíðni drykkju- sýkinnar. En drykkjusýki er aðeins eitt af fjölmörg- um vandamálum, sem fylgja neyslu áfengis. Mörg þeirra, svo sem slys og afbrot, virðast eins og fylgikvillar drykkjusýkinnar aukast með aukinni áfengisneyslu þjóðarinnar. Pekking á áfengisneyslu íslendinga hefur til skamms tíma verið takmörkuð við það, sem sjá hefur mátt á almannafæri, nefnilega að margir drykkju illa, og við það, sem fram kemur í innflutningsskýrslum. Af þeim hef- ur verið ráðið hver væri meðalneysla af vínanda á mann á ári. Nýlega hafa þessir út- reikningar verið betrumbættir með því að áætla á grundvelli innflutningsskýrslna hve mikið væri bruggað ólöglega af áfengu öli í landinu.1 Vegna vaxandi vandræða sem leiddi af drykkju unglinga lét Félagsmálaráð Reykja- víkur gera könnun á áfengisneyslu unglinga á aldrinum 13—17 ára.3 Kom þá í Ijós, að yfir 85% unglinga á þessum aldri höfðu neytt áfengis á næstu 6 mánuðum áður en könnunin fór fram. Á undanförnum árum hefur verið unnið að athugun á áfengisneysluvenjum íslendinga og tengslum þeirra við tíðni einkenna, sem benda til misnotkunar og við ýmis einkenni taugaveiklunar.4 010 Pessi athugun byggir á upplýsingum, sem fengnar eru frá 3,7% úr- taki fólks á aldrinum 20—49 ára. Niðurstöð- urnar veita mikilvægar upplýsingar um tengsl neysluvenja við ýmis félagsleg atriði, þar með talið útsölukerfi Áfengiseinkasöl- unnar. Rúmlega 90% karla og nærri 74% kvenna neyta áfengis, heldur fleiri meðal þeirra sem eru yngstir, en færri meðal hinna eldri. Langsamlega flestir neyta sterkra drykkja eingöngu. Þeir yngstu (20—29 ára) höfðu byrjað 3—4 árum fyrr að neyta á- fengis en þeir elstu (40—49 ára) í hópnum. Við samanburð á drykkjuháttum hér og á öðrum Norðurlöndum kemur í Ijós, að íslend- ingar drekka sjaldnar, en meira að meðal- tali í hvert skipti. Við lauslegan samanburð virðist ölvunartíðni þó vera svipuð hjá Reyk- víkingum og öðrum höfuðborgarbúum á Norðurlöndum. En afskipti lögreglu vegna ölvunar á almannafæri eru miklu tíðari í Reykjavík. Fleildarneyslan á mann á ári er hins vegar minni en á hinum Norðurlöndun- um. Áhrif dreifingarkerfisins á neyslu lands- manna og vandamál, sem henni eru samfara, eru flókin og margþætt. Læt ég nægja að geta þess, að á þéttbýlisstöðum með áfeng- isútsölu telja 12,5% þeirra, sem neyta áfeng- is, neysluna vera vandamál fyrir sig, á móti 8,3% þeirra, sem búa í sveitarfélögum án

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.