Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1977, Síða 63

Læknablaðið - 01.10.1977, Síða 63
LÆKNABLAÐIÐ 219 Study no. UTI causative in: 1: 1 of 12 cases = ~ 8% 2: 6 of 18 cases = ~ 33% 3: 2 of 9 cases = ~ 20% 4: 16 of 48 cases = ~ 33% Total: 25 of 87 cases = ~ 29% TABLE II. — The part urinary infection plays as an underlying cause of acute epididymitis in boys in the few and small studies done on the subject. Meðferð: Flestir ráðleggja sýklalyf við bráðri eistalyppubólgu ásamt bólgueyð- andi lyfi einhverju, en aðrir halda því fram að ekki þurfi nein sýklalyf, þar sem aldrei ræktist frá bólgunni,14 og sé því nóg að lyfta undir punginn og láta sjúkl. liggja í rúminu. Ef vafi leikur á að um snúning á eista sé að ræða, á að gera könnunar-aðgerð eins og fyrr segir. Samanburður á tíðni bráðrar eistalyppu- bólgu og snúnings á eista: Eins og fyrr segir hafa menn talið snúning á eista vera mun algengari meðal sveinbarna en bráð eistalyppubólga. Þessu eru þó ekki allir sammála. í amerísku uppgjöri voru 18 tilfelli af eistalyppubólgu í sveinbörn- um á 10 árum, en 19 af snúningi á eistum hjá sveinbörnum á sama aldri.4 í upp- gjöri frá Glostrup-sjúkrahúsinu í Kaup- mannahöfn með 9 tilfellum af eistalyppu- bólu hjá drengjum yngri en 15 árar> segir, að á því 12 ára tímabili, er þessi 9 tilfelli af eistalyppubólgu komu til meðferðar, hafi 16 sveinbörn á sama aldri verið með- höndluð vegna snúnings á eista. Ein at- hugun til viðbótar greinir frá 9 tilfellum af snúningi á eista, en 12 tilfellum af hjá- eistalykkjubólgu í sveinum á sama tíma- bili.13 Þótt ekkert af þessu séu stór upp- gjör, er freistandi að álykta, að fyrri hug- myndir manna um hlutfallslega tíðni snúnings á eista og bráðrar eistalyppu- bólgu hjá sveinum séu rangar, þ. e. að eistalyppubólga sé talsvert algengari hjá sveinum en talið hefur verið. Málið er þó ekki einfalt, því sé litið yfir stór uppgjör um snúning á eista kemur í ljós, að höf- undar þeirra telja eistalyppubólgu sára- sjaldgæfa meðal barna.1 - 11 Eitt uppgjör er breskt með 58 tilfellum af snúningi á eista og álíka fjölda af eistalyppubólgu1 og sést það á mynd I. Þar eru 70% tilfella með snúning á eista á aldrinum 13-18 ára, en enginn með eistalyppubólgu er undir tvítugu. í annarri grein um snúning á eista með 101 tilfelli3 eru 45 tilfellanna yngri en 15 ára. 'Höfundar þessara og fleiri greina vara mjög við greiningunni á eista- lyppubólgu og telja hana aðal villuna í mismunagreiningu á snúningi á eista og eina helstu orsök til seinkunar á meðferð vegna snúnings, en seinkun getur verið mjög afdrifarík, þar sem eistanu verður vart bjargað ef seinkunin verður meiri en 20 klst. Einungis 30% af þeim sem seinkar um 10-12 klst. verður bjargað, þegar best lætur, en hægt er að bjarga allt að 100% eistna (með snúningi á eista) ef ekki líða meir en 10 klst. frá því að einkennin byrja.1 Ekki eru þó allir sammála þessu. Þannig birtist mjög stórt breskt uppgjör árið 1964 með 500 tilfellum af snúningi á eista og kom þá í ljós, að í um 90% til- fella varð að taka eistað eða það var ónýtt.2 Mismunagreining: Eins og fyrr segir er greiningin á milli snúnings á eista og á bráðri hjáeistalykkjubólgu ákaflega erfið. Menn verða að halda sig við þá almennu reglu, að ef minnsti vafi leikur á um greininguna, á að gera könnunaraðgerð eins fljótt og við verður komið. Við mis- munagreiningu getur verið gott að hafa eftirtalin atriði í huga: 1) Phrens próf, þ. e. pungnum er lyft og verkurinn í honum hverfur, er oft jákvætt við bráða eistalyppu- bólgu en ekki við snúning á eista. 2) Snúningur á eista er nær helmingi oftar vinstra megin en hægra megin.1 3) Nær helmingur sjúklinga með snún- ing á eista hafa sögu um skammæjan verk í pung.1 3 8 4) Stór hluti sjúkl. með eistalyppu- bólgu hefur einhver einkenni frá þvagfærum eða hefur gröft eða sýkla í þvagi.1 4 5 7 9 14 5) Hiti kemur oftast (95%) við eista- lyppubólgu en tiltölulega sjaldan við snúning á eista (20%).4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.