Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1983, Side 17

Læknablaðið - 15.12.1983, Side 17
LÆKNABLAÐID 331 Mynd 5. Flædirit fyrir Leitarstöd Krabbameinsfélagsins. öðrum hlutum kynfæra og í brjóstum kvenna. í þeim tilgangi að bæta þennan árangur enn frekar er stefnt að því að hóþskoðanir verði framkvæmdar á tveggja ára fresti. Er nú unnið að aukinni tölvuvæðingu á innköllunarkérfi stöðvarinnar, jafnframt því sem rekstur sjálfr- ar stöðvarinnar hefur verið endurskiþulagður. Nýgerðar starfsreglur (sjá fylgiskjal) stefna að því að samhæfa starf þeirra er þar vinna og ennfremur mun stöðin fylgja eftir árangri hóþ- skoðana, þar til greining fæst á hverju tilfelli þar sem grunur er um krabbamein eða forstig þess (sjá mynd 5). Þessi nýja stefnumörkun á starfsemi stöðvar- innar var kynnt á fundum með kvensjúkdóma- læknum, skurðlæknum og heilsugæslulæknum á höfuðborgarsvæðinu svo og stjórn Læknafé- lags Reykjavíkur í árslok 1982. Sviþaður fundur var haldinn í seþtember 1983 með heilsugæslulæknum utan Reykjavíkur, þar sem rætt var um tilhögun og framkvæmd hóþ- skoðana á landsbyggðinni. Markmið Leitarstöðvarinnar er nú eins og áður það eitt að greina krabbamein í kynfær- um og brjóstum kvenna á forstigi eða á fyrstu stigum sjúkdómsins þar sem árangur meðferð- ar er sem bestur. Er þar byggt á brautryðjenda- störfum Ölmu Þórarinsson, Guðmundar Jó- hannessonar (sbr. ritskrá í þessu hefti Lækna- blaðsins) og annarra þeirra sem lagt hafa stöðinni lið síðan starfsemin hófst á miðju ári 1964. Myndir 1-3 eru byggðar á tölum úr Krabba- meinsskránni fyrir árin 1955-1980 og úr dok- torsritgerðum Gunnlaugs Snædal og Ólafs Bjarnasonar að því er varðar eldri uþþlýs- ingar. Starfsreglur lækna sem starfa á vegum Leitarstöðvar Krabbameinsfélags íslands Reglur þessar voru settar af yfirlæknum Leit- arstöðvar og Frumurannsóknastofu Krabba- meinfélagsins. Þær voru staðfestar af stjórn Krabbameinsfélags íslands og kynntar á fundum með kvensjúkdómalæknum, skurð- læknum og heilsugæslulæknum. Reglurnar tóku gildi að flestu leyti í ársbyrjun 1983. 1. LEGHÁLSSKOÐUN 1.1. Tímabil milli skoðana Ef skoðun er eðlileg og frumusýni neikvætt skal skoða á tveggja til þriggja ára fresti allar konur á aldrinum frá 25 til 69 ára. 1.2. Staðbundin lyfjameðferð Ef sjúklingur er með útferð sem veldur óþæg- indum eða til staðar eru bólgueinkermi skal gefa staðbundna lyfjameðferð sem auðveldar úrlestur næsta frumusýnis. 1.3. Tilvísun á lækni utan Leitarstöðvar Vísa skal sjúklingi til slíks læknis ef eftirtalin atriði eiga við:

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.