Læknablaðið - 15.12.1983, Page 17
LÆKNABLAÐID
331
Mynd 5. Flædirit fyrir Leitarstöd Krabbameinsfélagsins.
öðrum hlutum kynfæra og í brjóstum kvenna.
í þeim tilgangi að bæta þennan árangur enn
frekar er stefnt að því að hóþskoðanir verði
framkvæmdar á tveggja ára fresti. Er nú unnið
að aukinni tölvuvæðingu á innköllunarkérfi
stöðvarinnar, jafnframt því sem rekstur sjálfr-
ar stöðvarinnar hefur verið endurskiþulagður.
Nýgerðar starfsreglur (sjá fylgiskjal) stefna að
því að samhæfa starf þeirra er þar vinna og
ennfremur mun stöðin fylgja eftir árangri hóþ-
skoðana, þar til greining fæst á hverju tilfelli
þar sem grunur er um krabbamein eða forstig
þess (sjá mynd 5).
Þessi nýja stefnumörkun á starfsemi stöðvar-
innar var kynnt á fundum með kvensjúkdóma-
læknum, skurðlæknum og heilsugæslulæknum
á höfuðborgarsvæðinu svo og stjórn Læknafé-
lags Reykjavíkur í árslok 1982. Sviþaður
fundur var haldinn í seþtember 1983 með
heilsugæslulæknum utan Reykjavíkur, þar sem
rætt var um tilhögun og framkvæmd hóþ-
skoðana á landsbyggðinni.
Markmið Leitarstöðvarinnar er nú eins og
áður það eitt að greina krabbamein í kynfær-
um og brjóstum kvenna á forstigi eða á fyrstu
stigum sjúkdómsins þar sem árangur meðferð-
ar er sem bestur. Er þar byggt á brautryðjenda-
störfum Ölmu Þórarinsson, Guðmundar Jó-
hannessonar (sbr. ritskrá í þessu hefti Lækna-
blaðsins) og annarra þeirra sem lagt hafa
stöðinni lið síðan starfsemin hófst á miðju ári
1964.
Myndir 1-3 eru byggðar á tölum úr Krabba-
meinsskránni fyrir árin 1955-1980 og úr dok-
torsritgerðum Gunnlaugs Snædal og Ólafs
Bjarnasonar að því er varðar eldri uþþlýs-
ingar.
Starfsreglur lækna sem
starfa á vegum Leitarstöðvar
Krabbameinsfélags íslands
Reglur þessar voru settar af yfirlæknum Leit-
arstöðvar og Frumurannsóknastofu Krabba-
meinfélagsins. Þær voru staðfestar af stjórn
Krabbameinsfélags íslands og kynntar á
fundum með kvensjúkdómalæknum, skurð-
læknum og heilsugæslulæknum. Reglurnar
tóku gildi að flestu leyti í ársbyrjun 1983.
1. LEGHÁLSSKOÐUN
1.1. Tímabil milli skoðana
Ef skoðun er eðlileg og frumusýni neikvætt
skal skoða á tveggja til þriggja ára fresti allar
konur á aldrinum frá 25 til 69 ára.
1.2. Staðbundin lyfjameðferð
Ef sjúklingur er með útferð sem veldur óþæg-
indum eða til staðar eru bólgueinkermi skal
gefa staðbundna lyfjameðferð sem auðveldar
úrlestur næsta frumusýnis.
1.3. Tilvísun á lækni utan Leitarstöðvar
Vísa skal sjúklingi til slíks læknis ef eftirtalin
atriði eiga við: