Læknablaðið - 15.12.1983, Blaðsíða 73
LÆKNABLAÐIÐ
375
lingar í fyrri hópnum sem lengst lifðu, fengu
annað hvort geislameðferð á allt kviðarholið
og/eða Treosulfan eitt sér í framhaldi að-
gerðar.
Mynd 3 sýnir mun á lifitíma þeirra 37
sjúklinga, sem greindust á stigi III og IV á
árunum 1978-80. Fengu 22 sjúklinganna með-
ferð samkvæmt áætlun og er meðal lifitími
peirra tæpur 21 mánuður, en í hópnum án
meðferðar er meðal lifitími aðeins 3 mánuðir
og eru allir sjúklingarnir látnir eins og fram
kemur á myndinni. Rétt er að geta pess að
hóparnir eru ekki sambærilegir, sjá töflu V.
Þeir sjúklingar er lengst lifðu í síðari hópnum,
voru þeir tveir er fengu Treosulfan eingöngu
eftir aðgerðina.
Mynd 4 sýnir lífslengd peirra tuttugu og
tveggja sjúklinga, sem fengu fyrirhugaða með-
ferð með tilliti til svörunar. Enginn rnunur fæst
fram á lífslengd peirra sjúklinga er fengu
annars vegar hlutasvörun og hinna, er
svöruðu með minna en helmings minnkun
æxlis. Af þeim sjúklingum er náðu fullkominni
svörun, eru einungis 2 sjúklingar látnir og hjá
einum sjúklingi til viðbótar er vitað um sjúk-
dóm í árslok 1981. Aðrir sjúklingar hafa pá
ekki einkenni um sjúkdóm (9 sjúklingar).
Fimrn peirra hafa lokið meðferð, 3 taka pá enn
inn Treosulfan og einn hefur ekki lokið
Treosulfan og Adriamycin meðferðinni.
Sýnir mynd pessi mikilvægi pess að náð sé
fullkominni svörun með samtvinnaðri meðferð
Mynd 2. Borinn er saman lifitími þeirra sjúklinga á
stigi III og IV sem greindust á tímabilinu 1972-77 (46
sjúklingar) og peirra sem greindust á árunum 1978-
80 (37 sjúklingar). Medaltími fyrir þá sem greindust
á fyrra tímabilinu eru 7 mánudir á móti 12 mánudum
í sídari hóþnum.
til pess að unnt sé að lengja lifitíma sjúk-
linganna.
UMRÆÐA
Breyting sú sem orðið hefur á meðferð á
krabbameini í eggjastokkum, stigi III og IV á
tímabilinu 1978-80 hefur bætt verulega með-
ferðarárangur þessa hóps sjúklinga sé miðað
við fyrri tímabil.
Reynsla höfunda bendir eindregið til pess,
að unnt sé að bæta árangur meðferðar enn
frekar, með pví að beita markvisst þeim
lækningaleiðum sem tiltækar eru, þ.e.a.s. skurð-
aðgerðum, lyfjagjöfum og ytri geislun.
Breyting sú sem orðið hefur á lifitíma
hópsins er greindist á árunum 1978-80 styrkir
% Lifandi Cancer ovarii
Mynd 3. Borinn er saman líftími þeirra 37 sjúklinga
sem greindust á stigi III og IV á árunum 1978-80.
Tuttugu og tvær konur fengu meðferd samkvæmt
áætlun og var medalaldur þeirra 62 ár, í seinni
hóþnum eru 15 konur, medalaldur 68 ár.
% Lifandi Cancer ovarii
Mynd 4. Borinn er saman líftími þeirra futtugu og
tveggja kvenna á stigi III og IV er fengu eftirmed-
ferd með Treosulfan og Adriamycin samkvæmt
áætlun. (C.R): Fullkomin svörun. (P.R.): Hlutasvörun
(> 50 % minnkun æxlis). (N.R.): Engin svörun (<
50 % minnkun æxlis).