Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1983, Blaðsíða 21

Læknablaðið - 15.12.1983, Blaðsíða 21
LÆKNABLADIÐ 335 á skrá félagsráðgjafa, og hve mörg tilvik voru tilkynnt til K.ynsjúkdómadeildar Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur, eins og lands- lög mæla fyrir um. Upplýsingar um fjölda rekkjunauta fengust einnig úr skrám félagsráð- gjafa. í spjaldskrá Kynsjúkdómadeildar Heilsu- verndarstöðvarinnar var kannað, hversu oft náðist í þá karla, sem konurnar bentu á sem hugsanlega smitbera og félagsráðgjafar til- kynntu, og hve margir þeirra reyndust vera með lekanda. NIÐURSTÖÐUR Sjúklingahópurinn: Mynd 1 sýnir aldursdreif- inguna. Flestar kvennanna voru ungar, um 70 % 25 ára eða yngri. Sú yngsta var 15 ára en sú elsta 48 ára. Meðalaldurinn var 23.6 ár. Hvað búsetu snertir bjuggu 93 (81.6 %) á Stór-Reykjavíkursvæðinu, 20 (17.5 %) á lands- byggðinni, en 1 (0.9 %) erlendis. Tafla III sýnir atvinnu kvennanna. Nær priðjungur starfaði við verslun eða á skrif- stofu, næst á eftir komu nemar, síðan verka- konur. Samkvæmt töflu IV voru flestar ógiftar og ekki í sambúð, aðeins um fjórðungur gift- ar og/eða í fastri sambúð. Tafla V sýnir barneignir kvennanna. Tæpur helmingur var barnlaus. Samkvæmt töflu VI var þriðjungur kvenn- anna þungaðar, þegar sýni voru tekin. Þriðj- ungur notaði pillu eða lykkju og þriðjungur engar eða aðrar getnaðarvarnir. Nokkrar þeirra, sem voru þungaðar, kváðust hafa verið á pillunni þegar frjóvgun átti sér stað, og eru þær ekki taldar með þeim 17, sem voru á pillunni og voru ekki barnshafandi. Sýnitökur og ræktanir. Eins og áður er getið ræktuðust lekandasýklar í 183 sýnum. Tafla VII sýnir dreifingu jákvæðra ræktana eftir sýnitökustað. Jákvæðar ræktanir fengust frá fleirum en einum stað hjá 61 konu, en frá aðeins einum stað hjá 53. Tafla VIII sýnir dreif- ingu jákvæðra svara eftir tökustað hjá síðar- nefnda hópnum. Tafla IX sýnir ástæður sýnitöku hjá þeim konum, sem voru með lekanda. Sú algengasta var grunur um eggjaleiðarabólgu, þ.e.a.s. hjá 58 (50.9 %). Hjá 4 þeirra þótti klínísk greining örugg og kviðarholsspeglun því ekki gerð. Hinar 54 voru allar speglaðar og 46 (84 %) reyndust vera með rétta greiningu, 3 voru með samvexti, 2 með eggjastokkablöðrur en ekkert óeðlilegt fannst hjá 3 konum. Að auki fannst Mynd 1. Aldursdreifing kvenna með lekandasýk- ingu (n = 114). Tafla III. Atvinna samkvæmt starfsstödufiokkun Hagstofu íslands. Fjöldi Hlutfall (07) Verslunar eða skrifstofustörf . 36 31.6 (17) Nemar 22 19.3 (13) Verkakonur 19 16.7 (06) Opinberir starfsmenn 11 9.6 (15) Húsmæður 9 7.9 (19) Óupplýst 7 6.1 (16) Annað 5 4.4 (09) Iðnlærðar (04) Flugáhöfn 2 1 4.4 (02) Sjómaður (kokkur) (05) Stjórnandi fyrirtækis 1 1 Alls 114 100 Tafla IV. Hjúskaparstétt. Fjöldi Hiutfall Giftar 12 10.5 I sambúð (ógiftar) 19 16.7 Ekki I sambúð 77 67.5 Vantar upplýsingar 6 5.3 Alls 114 100 Tafla V. Barneignir. Fjöldi Hlutfall 0 börn............................... 55 48.2 1 barn .............................. 30 26.3 2 börn............................... 22 19.3 3 börn................................ 4 3.5 4 börn................................ 2 1.8 5 börn eða fleiri .................... 0 Vantar upplýsingar................. 1 0.9 Alls 114 100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.