Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1983, Síða 27

Læknablaðið - 15.12.1983, Síða 27
LÆKNABLAÐID 69, 339-342, 1983 339 Jón Hilmar Alfreðsson, Páll Ágústsson, Jón t>. Hallgrímsson ÓFRJÓSEMISAÐGERÐIR Á KVENNADEILD LANDSPÍTALANS ÁRIN 1975-1979 INNGANGUR Um miðjan síðasta áratug fjölgaði mjög ófrjó- semisaðgerðum hér á landi. Einkum hafa konur hagnýtt sér þessa getnaðarvörn í auknum mæli. Ný lög (nr. 25, 1975) um ófrjósemisaðgerðir tóku gildi um mitt ár 1975. Með þeim eru þessar aðgerðir gefnar frjálsar og heimilar öllum, sem náð hafa 25 ára aldri og læknis- fræðilegar ástæður mæla þar eigi á móti. Heildarfjöldi ófrjósemisaðgerða á landinu öllu á árunum 1976 til 1979 er eins og fram kemur í töflu I (1). Ljóst er, að þessar aðgerðir eru hvorki fullkomlega öruggar sem getnaðarvörn né með öllu hættulausar. Því var gerð afturvirk (retrospective) könnun á Kvennadeild Land- spítalans til þess að meta árangurinn, hve oft þær hefðu brugðist og algengi áfalla (compli- cationes) og fylgikvilla. Auk þess var borinn saman árangur af mismunandi tegundum að- gerða. Hér verður gerð grein fyrir helstu niðurstöð- um þessarar könnunar og nokkur sjónarmið rædd með hliðsjón af þeim. EFNIVIÐUR OG ÚRVINNSLA Könnunin fór fram í lok árs 1982 og nær yfir fjögur og hálft ár, frá 1. júní 1975 til ársloka 1979. Meðal athugunartími eftir aðgerð er því rúmlega fimm ár, en stysti tími er um þrjú ár. Tvær meginaðferðir hafa verið notaðar við ófrjósemisaðgerðir á þessu tímabili. Annars vegar miðhlutun á eggjaleiðurum um lítinn holskurð (minilaparotomy), hins vegar hefur verið brennt fyrir og í sumum tilvikum einnig klippt á túburnar gegnum kviðarholssjá (lapa- roscope). Á umræddu tímabili voru gerðar 1048 ófrjó- semisaðgerðir á deildinni. Könnunin var tvíþætt. í fyrsta lagi var farið yfir allar þessar sjúkraskár og aflað upplýsinga úr þeim um tiltekin atriði, eins og fram kemur af niðurstöð- um. í öðru lagi voru send út bréf haustið 1982 til þeirra kvenna, sem farið höfðu í aðgerð á árunum 1975 til 1978, til þess að grennslast fyrir um afdrif þeirra og viðhorf til þessarar aðgerðar. Spurt var, hvort viðkomandi væri ánægð með aðgerðina og hvort breyting hefði orðið á andlegu ástandi og kynlífi eftir á. Alls var 830 konum sent bréf, 814 bréf virðast hafa komið til skila og af þeim var 515 svarað eða 63,3 o/o. Úrvinnsla aflaðra upplýsinga var tölvuunnin á Tölfræðideild Landspítalans. NIÐURSTÖÐUR Tafla II sýnir aldursdreifingu í þessum hópi kvenna, er kusu ófrjósemisaðgerð sem getn- aðarvörn. í ljós kemur, að flestar eru komnar yfir 35 ára aldur eða nær 65 %. Átján konur voru yngri en 25 ára. í þeim hópi voru læknisfræðilegar ástæður til aðgerðar hjá 17, en ein var þegar orðin mikil fjölbyrja og hafði ekki getað hagnýtt sér aðrar getnaðarvarnir. Barnakoma (parity) kvennanna er sýnd í töflu III. Nítján áttu ekkert barn. í þessum hópi eru þær 17 konur, sem fóru í aðgerð af Tafla I. Fjöldi ófrjósemisadgerda á íslandi árin 1976-1979. Ár Karlar Konur 1976 .............................. 4 437 1977 .............................. 16 396 1978 .............................. 30 448 1979 .............................. 40 413 Alls 90 1694 Tafla II. Aldursdreifing kvenna gerð. vid ófrjósemisað- Aldur Fjöldi Hlutfall 24 ára 18 1,7 25-29 ára 81 7,7 30-34 ára 260 24,8 35-39 ára .. 371 35,4 40-44 ára .. 268 25,6 45+ 50 4,8 1048 100
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.