Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1983, Page 38

Læknablaðið - 15.12.1983, Page 38
348 LÆK.NABLADID 69,348-351,1983 Jón Þ. Hallgrímsson, Jens Kjartansson INNLAGNIR Á MEÐGÖNGUDEILD KVENNADEILDAR LANDSPÍTALANS 1981 INNGANGUR í ljósi pess að á Kvennadeild Landspítalans hefur verið rekin sérstök deild fyrir konur með meðgöngusjúkdóma síðan 1975, pótti ástæða til að lýsa nokkuð starfsemi deildarinnar og kanna sjúkdómsferil kvennanna, par sem hér er um brautryðjandi starf að ræða á íslandi. Þrátt fyrir að víða erlendis séu reknar deildir með svipuðu sniði, virðist lítið um pær skrifað. Ekki tókst að finna neina grein sem fjallaði um líkt efni, pótt víða væri leitað. Ætlunin var að kanna eftirfarandi: A. Samsetningu sjúklingahópsins m.t.t. aldurs, búsetu, fjölda innlagna og hvaðan sjúk- lingarnir komu. B. Áhættu á meðgöngusjúkdómum samfara aldri, lengd meðgöngu, tíðni fósturláta og barneigna. C. Gang meðferðar með hliðsjón af legutíma á deildinni, útskrift og fæðingarstað. D. Gang fæðingar kvenna með meðgöngu- sjúkdóma samanborið við gang fæðingar almennt á íslandi 1981. E. Ástand nýbura kvenna með meðgöngu- sjúkdóma samanborið við nýbura almennt 1981. F. Helstu sjúkdómsgreiningar og greiningar- nákvæmni fyrir innlögn á algengustu meðgöngusjúkdómum samanborið við út- skriftargreiningar. AÐFERÐIR OG EFNIVIÐUR Farið var yfir sjúkraskrár pungaðra kvenna, sem gengnar voru 16 vikur eða lengur, við innlögn á meðgöngudeild Kvennadeildar Landspítalans 1981, auk 14 kvenna með hype- remesis gravidarum, sem voru skemur gengn- ar. Aðrar konur, sem voru gengnar 16 vikur eða skemur, t.d. með hótandi fósturlát, eru yfirleitt lagðar inn á kvenlækningadeild en ekki á meðgöngudeild. Örfáar slíkar konur höfðu pó slæðst inn á deildina en pær voru útilokaðar frá rannsókninni. Höfð var hliðsjón af fæðingatilkynningum ársins 1981 til saman- burðar efnivið par sem purfa pótti. NIÐURSTAÐA OG UMRÆÐA Alls voru 514 konur með meðgöngusjúkdóma lagðar inn á meðgöngudeildina árið 1981. Af pessum 514 konum reyndust 326 (63.4 %) búsettar á Stór-Reykjavíkursvæðinu en 181 (36.6 %) á landsbyggðinni. Eins og fram kemur á súluriti um aldursdreif- ingu (mynd I) pá er langmestur fjöldi kvenna með meðgöngusjúkdóma 21 til 29 ára gamlar. Pegar athuguð var aldursdreifing kvenna með meðgöngusjúkdóma svo og allra kvenna sem fæddu á íslandi 1981, kom í Ijós að ekki var mikill munur á pessum tveimur hópum (tafla I) á aldrinum frá 20 til 35 ára, en hins vegar var hlutfallslega veruleg aukning peirra með meðgöngusjúkdóma eftir 35 ára aldur. Tafla II sýnir skiptingu sjúklingahópsins eftir pví hvaðan sjúklingar voru innlagðir, en í Tafla I. Aldursdreifing kvenna, sem fæddu á íslandi 1981 (A) og kvenna med medgöngusjúkdóma á Kvennadeild Landspítalans 1981 (B). A B Aldur Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall 20.................... 546 12.3 36 7.0 20-24 ............... 1488 33.5 154 30.0 25-29 ............... 1288 29.0 152 29.5 30-34 ................ 773 17.4 98 19.0 35-39 ................ 307 6.9 64 12.5 40-44 ................. 40 0.9 10 2.0 Samtals: 4442 100 514 100 Tafla II. Skipting sjúklingahóps eftir því hvadan sjúklingar eru innlagdir. Fjöldi Hlutfall Frá mæðraskoðun kvennadeildar .. 244 47.5 Frá mæðravernd Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur............. 116 22.5 Frá heilsugæslustöðvum ............ 141 27.5 Frá öðrum sjúkrahúsum .............. 12 2.3 Frá praktiserandi læknum ............ 1 0.2 Alls 514 100

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.