Læknablaðið - 15.12.1983, Page 40
350
LÆKNABLAÐIÐ
ræða 5024 legudaga, sem þýðir að fullnýtt
voru 14 legupláss yfir allt árið fyrir konur með
meðgöngusjúkdóma.
Tvö hundruð og níutíu konur útskrifuðust
beint af meðgöngudeild yfir á fæðingadeild
kvennadeildar. Eitt hundrað níutíu og ein kona
útskrifaðist heim og kom inn til fæðingar
seinna. Sautján konur misstu fóstur eftir 16.
viku og komu pví ekki til fæðingar. Alls fæddu
497 konur, p.e.a.s. 11.2 % af peim 4442 konum
sem fæddu á íslandi árið 1981. Flestar eða 481
fæddi á Kvennadeild Landspítalans en 15
konur fæddu á öðrum sjúkrahúsum og ein í
sjúkraskýli úti á landi.
Tafla VIII sýnir gang fæðinga hjá pessum
konum. Þar kemur í ljós að 25.8 % kvennanna á
meðgöngudeild purftu á aðstoð að halda við
fæðingu en sambærileg tala fyrir landið allt
var 14.4 %. Fjöldi sogklukkna er sambærilegur
en tangarfæðingar eru tæplega tvisvar sinnum
algengari meðal kvenna, sem lágu á með-
göngudeildinni samanborið við landið allt. í
keisaraskurð fóru 105 eða nærri 21 %
peirra kvenna sem lágu á meðgöngudeildinni
en pað er tvisvar sinnum algengara en gerist á
landinu öllu 1981, er tíðni keisaraskurða var
10.5 %.
Alls fæddu pessar 497 konur 517 börn, 271
dreng og 246 stúlkur. Meðalpyngd peirra var
3246 g, en meðalpyngd peirra 4480 barna
sem fæddust á öllu landinu á árinu 1981 var
3560 gr. Eðlileg voru 323 (62.4 %) en sjúkleg
fyrstu vikuna eftir fæðingu reyndust, sam-
kvæmt sjúkraskrá og útskriftargreiningu, 194
börn (37.5 %). Af peim 4480 börnum sem
fæddust á öllu landinu voru aðeins 670 börn
(ca. 15 %) sjúkleg samkvæmt fæðingartilkynn-
ingum.
Konur með meðgöngusjúkdóma fæddu 12
andvana börn eða 23 %o, en á öllu landinu
fæddust 23 andvana börn (5 %o). Burðarmáls-
dauði á meðgöngudeild var 28 %o, en á öllu
landinu 7,8 %o.
Tafla IX sýnir helstu meðgöngusjúkdóma
peirra sem lagðar voru inn á meðgöngudeild-
ina 1981. Margar konur höfðu fleiri en eina
sjúkdómsgreiningu. Langflestar voru lagðar
inn vegna meðgöngueitrunar og/eða hækkun-
ar á blóðprýstingi og allmargar vegna yfirvof-
andi fyrirburafæðingar. Allmargar konur, eða
101, falla undir »aðrir sjúkdómar«, p.e.a.s.
konur með legsamdrætti, pvagfærasýkingar,
einkenni frá meltingarfærum, slæmar félags-
legar aðstæður o.s.frv.
Greining við innlögn kom yfirleitt vel heim
og saman við útskriftargreiningu nema hvað
nokkurrar tilhneigingar gætti til að ofgreina
fósturvanproska (dysmaturitas) en 27 konur
voru lagðar inn með pá greiningu en útskrifað-
ar voru aðeins 15. Petta er ekki óeðlilegt par
Tafla VI. Fyrri fósturlát kverwa rrcð meðgöngusjúk-
dóma.
Fósturlát Fjöldi Hlutfall
0 ......................................... 388 85.4
1 ......................................... 85 16.5
2 ......................................... 26 5.0
3 ........................................ 12 2.3
4 ......................................... 3 0.5
Alls 514 100
TaflaV. Skipting sjúklingahóps eftir fjölda fyrri
fæðinga.
Fyrri fæðingar Fjöldi Hlutfall
0 193 37.5
1 154 30.0
2 93 18.0
3 50 9.7
4 19 3.8
5 4 0.8
>6 1 0.2
Alls 514 100
TaflaVII. Fjöldi innlagna.
Innlagnir Fjöldi Hlutfall
1 ....................................... 384 74.7
2 ....................................... 104 20.2
3 ........................................ 22 4.2
4 ........................................ 3 0.5
5 < ...................................... 1 0.2
Alls 514 100
Tafla VIII. Gangur fæðinga hjá konum sem fæddu á
íslandi 1981 (A) og hjá konum med meðgöngusjúk-
dóma á Kvennadeild Landspítans 1981 (B).
A B
Fjöldi Hlutfall Fjöldi Hlutfall
1. Eðlileg fæðing .. 3802 85.6 369 74.2
2. Tangarfæðingar 32 0.7 6 1.2
3. Sogklukka 142 3.2 17 3.4
4. Keisaraskurður . 466 10.5 105 21.2
Alls 4442 100 497 100