Læknablaðið - 15.04.1990, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ
205
er síðan frystur og má geyma hann þannig
nærri endalaust. Hér þarf ekki að taka tillit til
blóðrauðamagns (sjá 1.1), en rétt er að fylgjast
með heildarmagni prótíns í blóði sjúklings (1,
6). Þessi aðferð þykir tilvalin til fyllingar þar
sem notað er blóð, sem unnið hefur verið í
aðgerð (samanber 1.2).
3. BLÓÐSÍUN (Hæmofiltration)
Sérhver skurðlæknir þekkir, að sjúklingar
með lágt blóðkomaskil hafa sterkari
blæðingartilhneigingu, heldur en sjúklingar
með eðlilegt eða hátt blóðkomaskil. Hjá
sjúklingum með lágt blóðkomaskil hefur
því verið tekin upp blóðsíun með þar til
gerðum síum, eða reynt að ná fram hærra
blóðkomaskili með því að auka þvagútskilnað
sjúklings í aðgerð með gjöf þvagræsilyfja.
Þessari aðferð er talsvert beitt samfara keyrslu
hjarta- og lungnavélar og þá einkum hjá
sjúklingum með hjarta- og/eða nýmabilun.
4. AÐRIR MÖGULEIKAR
Ef aðstæður leyfa skyldi sjúklingi
komið þannig fyrir á skurðarborðinu, að
aðgerðarstaður iiggi hærra en hjartað, þannig
að afrennsli aðgerðarsvæðis sé niður á
við en ekki upp í móti. Ennfremur skal
reynt að koma í veg fyrir utanaðkomandi
þrýsting á bláæðar aðgerðarsvæðisins, en öll
stasamyndun eykur blæðingar og þar með
blóðtap. Reynt skal að lækka blóðþrýsting
meðan á aðgerð stendur að svo miklu leyti
sem óhætt þykir, sé þess nokkur kostur án
þess að um aukna hættu fyrir sjúkling sé
að ræða. Með því móti má einnig draga úr
blóðtapi.
5. BLÓÐSPARNAÐUR MEÐ AÐSTOÐ
LYFJA
Um 1930 var prótínkljúfshemillinn (proteinase
inhibitor) aprótínín fyrst einangraður úr
líffærum nautgripa. A sjötta áratugnum var
hann framleiddur og settur á markað af Bayer
Leverkursen undir nafninu Trasylol. Lyf þetta
hefur síðan verið notað undir ýmsu yfirskini,
lengst og mest við bráðri briskirtilsbólgu. í lok
áttunda áratugarins sýndu rannsóknir, að gangi
þess sjúkdóms yrði ekki breytt með aðstoð
Trasylols og hefur notkun þess við bráðri
briskirtilsbólgu því stöðugt farið minnkandi.
A síðustu árum hefur aprótínín skotist aftur
upp á himininn og nú sem lyf til að draga úr
blæðingum við og eftir skurðaðgerðir og þar
með minnka þörf á blóðgjöfum (29). (The
Times, Friday January 22 1988; Drug may cut
transfusion).
Aprótínín telst til útbreiddra hópa hemla, sem
koma fyrir í jurta- og dýraríkinu og þjóna
þeim tilgangi að verja vefi lífverunnar fyrir
niðurbroti af völdum eigin og utanaðkomandi
prótínkljúfa. Ahrif þess eru hvað best þekkt á
trypsín-, kýmótrypsín-, plasmín- og kallíkreín-
hvatakerfin.
Eins og áður sagði hefur notkun þessa lyfs
aukist aftur, en núna í blóðspamaðarskyni.
Hefur það einkum verið notað við opnar
hjartaaðgerðir, það er að segja þar sem hjarta-
og lungnavél er notuð. En orðin »whole-
body inflammatory response« hafa verið
notuð til að lýsa ástandi sem oft verður
vart eftir notkun hennar, og er talið að það
megi að miklum hluta rekja til áðumefndra
hvatakerfa, sem virkjast við notkun hjarta- og
lungnavélarinnar.
Willem van Oeveren og félagar (30) sýndu
fram á verulega minnkun blæðingar við
opnar hjartaaðgerðir, þar sem aprótínín hafði
verið notað. Þeir telja að mestu máli skipti
varðveisla viðtækja á yfirborði blóðflaganna,
sem stuðla að viðloðun og samloðun þeirra.
Árið 1987 skýrðu Ware og félagar (31)
frá notkun desmópressíns við aðgerðir
(lokuskiptingar, sporgatslokun - lokun á
ASD, stýfingu á sleglagúl - ventricular
aneurysm resection og enduraðgerðir
kransæðaskammhlaups). I tvfblindri skoðun,
sem þeir framkvæmdu, kom í ljós minnkun á
meðaltals eftirblæðingu úr 2,2 1/sjúkl. í
1,3 1/sjúkl. með því að gefa 0,3 míkrógrömm
desmópressíns á hvert kíló líkamsþunga.
Árið 1988 birtu Collard og félagar (32)
niðurstöður tvíblindrar skoðunar, sem þeir
framkvæmdu með notkun desmópressíns
eftir kransæðaskammhlaupsaðgerðir. Skoðun
þessi var fyllilega sambærileg skoðun Ware
(31) og félaga nema, að hér var eingöngu um
frumaðgerðir á kransæðum að ræða. Collard
og félögum tókst hins vegar ekki að sýna
fram á nokkum mun eftirblæðinga eða minni
notkun á framandi blóði eða blóðhlutum með
gjöf desmópressíns. Epsílon-amínókapróik
sýra (33) og gjöf vítamíns-C (34) hafa og
verið til umræðu sem lyf til að draga úr