Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1990, Page 47

Læknablaðið - 15.04.1990, Page 47
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76: 217-222 217 Guðmundur Rúnarsson, Haraldur Bjarnason, Jón Þór Sverrisson, Þorkell Guðbrandsson KRANSÆÐASTÍFLA Á LYFLÆKNINGADEILD FJÓRÐUNGSSJÚK RAHÚSSINS Á AKUREYRI ÁRIN 1984-1986 INNGANGUR Meðferð sjúklinga með kransæðastíflu er eitt af meginverkefnum lyflækningadeilda með bráðaþjónustu. Lyflækningadeildir þriggja stærstu sjúkrahúsa landsins hafa á undanfömum árum látið frá sér fara greinargerðir um kransæðasjúklinga, sem þar hafa vistast (1-7). Tilgangur þessarar könnunar var að athuga hvemig staðið hefði verið að greiningu, rannsóknum og meðferð sjúklinga með bráða kransæðastíflu sem vistuðust á lyflækningadeild FSA á árunum 1984-1986. Einnig voru kannaðir helstu áhættuþættir og fylgikvillar og hvaða áhrif þeir hefðu á afdrif sjúklinganna, en þeim var fylgt eftir til 1. desember 1987. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Könnunin var í meginatriðum afturvirk. Kannaðar vom sjúkraskrár allra sjúklinga á lyflækningadeild, sem höfðu fengið greininguna bráð kransæðastífla á árunum 1984 - 1986. Um var að ræða 166 tilfelli af kransæðastíflu hjá 145 sjúklingum. Varðandi afdrif sjúklinga var einnig stuðst við upplýsingar frá læknum, sem sáu um eftirmeðferð, en þeir voru í flestum tilvikum tveir af greinarhöfundum (J.Þ.S. og Þ.G.). Einnig var stuðst við upplýsingar frá Hagstofu íslands. Sjúklingamir urðu að standast skilgreiningu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar á bráðri kransæðastíflu (8). Þeir urðu þannig að uppfylla tvö af eftirtöldum þremur skilyrðum: 1. Dæmigerð einkenni. 2. Dæmigerðar hjartalínuritsbreytingar. 3. Hækkanir á efnahvatagildum. Auk þess var stuðst við krufningamiðurstöður, þar sem þær lágu fyrir. Frá lyflækningadeild FSA. Hjartabilaðir töldust þeir sem voru það samkvæmt sjúkraskrá og/eða samkvæmt niðurstöðum á röntgenmynd af hjarta og lungum. Sjúklingar voru taldir hafa farið í lost, ef þess var getið í sjúkraskrá. Háþrýstingur: Sjúklingar sem vom á meðferð við háþrýstingi eða þar sem endurtekin blóðþrýstingsgildi reyndust 160/100 mm Hg eða meira. Sykursýki: Greining lá fyrir samkvæmt venjulegum skilmerkjum (9). Blóðfituhækkun: Kólesteról hafði mælst hærra en 6,5 mmol/1. Reykingamenn vom þeir taldir, sem höfðu reykt að staðaldri, hvort sem þeir höfðu hætt reykingum eða ekki. Um önnur atriði varðandi ástand sjúklinga var stuðst við sjúkdómsmat samkvæmt sjúkraskrá og hjartalínuritsbreytingar. Sjúklingar vistuðust á lyflækningadeild í tveimur herbergjum, sérhönnuðum fyrir hjartasjúklinga eða á almennri gjörgæsludeild, ef ástæða þótti til eða fyrmefnd herbergi voru upptekin. Við tölfræðiútreikninga var notað kí-kvaðrat. NIÐURSTÖÐUR Bráð kransæðastíflutilvik reyndust alls 166, þar af 105 karlar og 61 kona. Kynjahlutfall var því 1.7:1. Meðalaldur sjúklinga reyndist 69 ár (karlar 67 ár, konur 73 ár). Alls létust 32 sjúklingar (19,3%) meðan á sjúkrahúsvist stóð. Dánarhlutfall karla var 15,2%, en kvenna 26,2%. Frá Akureyri voru 113 sjúklingar, meðalaldur þeirra var 69,3 ár og 22 (19,4%) þeirra létust. Frá Eyjafirði, Ólafsfirði og Fnjóskárdal voru 33 sjúklingar, meðalaldur þeirra var 73,2 ár og létust átta (24,2%). Frá öðrum landshlutum vom 20 sjúklingar, meðalaldur þeirra var 60,6 ár og létust tveir þeirra (10%). Fjöldi sjúklinga eftir árunum þremur var svipaður, en dánarhlutfallið heldur lægra fyrir árið 1986 en hin tvö árin (mynd 1) (ekki marktækur munur). Aldur sjúklinga virtist

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.