Læknablaðið - 15.04.1990, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ
1990; 76: 227-8
227
t
Benedikt Tómasson
Fæddur 6. desember 1909
Dáinn 10. janúar 1990
Benedikt Tómasson er látinn. Hann fæddist 6.
desember 1909 á Hólum í Eyjafirði. Foreldrar
hans voru hjónin Tómas Benediktsson
bóndi og oddviti í Eyjafirði, síðar á Öldu
og Sigurlína Einarsdóttir ljósmóðir og
húsfreyja. Benedikt lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri 1932 og
læknaprófi frá Háskóla íslands 1938 með
góðri fyrstu einkunn. Fyrstu árin eftir
embættispróf stundaði hann framhaldsnám í
geðlækningum á Kleppsspítalanum. Árið 1941
tók hann við skólastjóm Flensborgarskóla í
Hafnarfirði og gegndi því starfi til 1956. Þá
tók hann við nýstofnuðu skólayfirlæknisstarfi
og var því fyrstur manna til að gegna
því embætti. Hann mótaði þetta embætti,
umfang þess og skipulag svo að því hefur
enn ekki verið breytt. Hann lét af störfum
skólayfirlæknis 1972 að eigin ósk. Jafnframt
skólayfirlæknisembættinu var Benedikt
fulltrúi landlæknis frá 1960 til 1972 og síðan
ráðgjafi landlæknis og ráðinn til sérstakra
starfa við embættið og gegndi því starfi á
meðan heilsan entist. Benedikt var því náinn
starfsmaður þriggja landlækna og var oft
staðgengill þeirra. Benedikt var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Sigríður Guðbrandsdóttir,
f. 19. apríl 1915. Eignuðust þau tvær dætur:
Ragnhildi, lögfræðing, skrifstofustjóra á
biskupsstofu gift Ásgeiri Jónssyni lækni
og Þorgerði, lögfræðing, deildarstjóra í
félagsmálaráðuneytinu. Seinni kona Benedikts
er Maj-Lis fædd Ahlfors, hjúkrunarfræðingur
ættuð frá Finnlandi. Hún lifir mann sinn.
Hjónaband þeirra var farsælt og á heimili
þeirra ríkti heimafengin hamingja. I þungri
og langri sjúkdómslegu var hún stoð hans og
stytta.
Ég tók við embætti landlæknis haustið 1972.
Einn af starfsmönnum skrifstofunnar var
Benedikt. Fljótlega varð mér ljóst að þar fór
gjörhugull og víðlesinn íslenskumaður. Hann
var auk þess ritfær og vandvirkur og kunni
listina að segja sem mest í fæstum orðum.
Þekking hans á sögu og heilbrigðismálum
var traust. Margvísleg störf innti Benedikt af
hendi og þar á meðal vinnu við lagafrumvörp
og reglugerðasmíð sem eru fylgifiskar
embættismanna. Honum var ljósara en
flestum að lög og reglugerðir eru mannanna
verk og skrifuð fyrir fólkið. Á skrifstofu
embættisins var fámennt en góðmennt og er
svo enn. Verkefnin eru þó mörg og fjölgar
stöðugt. Flest þeirra snerta fagleg efni og
samskipti manna og oft á tíðum örlög þeirra.
Verkefnin eru því oft torleyst og jafnvel
óleysanleg. Það var því mikill fengur fyrir
landlæknisembættið, samstarfsmenn Benedikts,