Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.1990, Page 4

Læknablaðið - 15.09.1990, Page 4
létlirhmd Hver tafla inniheldur Mianserinum Inn, klóríð, 10 mg eða 30 mg. EIGINLEIKAR: Fjórhringlaga geðdeyfðarlyf, sem hefur ekki and- kólínerg áhrif. Lyfið blokkar alfa-adrenerg viðtæki í taugaendum og eykur umsetningu noradrenalíns í heila. Míanserín frásogast hratt og næstum algjörlega frá meltingarvegi. Ekki hefur tekist að sýna fram á samband milli blóðþéttni og verkunar. Próteinbinding er um 90%. Helmingunartími er um 10-17 klst. Stöðug blóðþéttni (steady-state) næst eftir u.þ.b. 2 vikna meðferð. Lyfið umbrýst í lifur, en ekki er vit- að hvort umbrotsefnin eru virk. Þau skiljast út með þvagi og saur. ÁBENDINGAR: Geðdeyfð, einkum innlæg (endogen depression). FRÁBENDINGAR: Meðferð með MAO-hemjandi lyfjum minna en 14 dögum fyrir upphaf meðferðar. AUKAVERKANIR: Syfja, sem yfir- leitt minnkar við áframhaldandi gjöf lyfsins. Lyfið getur valdið truflun á blóðsykurgildum sykursjúkra. Lyfið virðist hafa minni áhrif á hjarta en önnur sambærileg lyf. Rétt er að gæta fyllstu varúðar við gjöf lyfs- ins hjá sjúklingum með hjartsláttaróreglu. Blóðþrýstingslækkun hef- ur verið lýst, enn fremur svima og yfirliði, e.t.v. vegna blóðþrýstings- lækkunar. Neutropenia og agranulocytosis geta komið fyrir. Krömpum hefur verið lýst og verður því að gæta varúðar við gjöf lyfs- ins hjá sjúklingum með flogaveiki. MILLIVERKANIR: Varast ber að neyta áfengis samtímis töku lyfsins. VARÚÐ: Vara ber sjúklinga við því að aka vélknúnum ökutækjum eftir gjöf lyfsins. EITURVERK- ANIR: Míanserín hefur ekki eins alvarlegar eiturverkanir og þríhring- laga geðdeyfðarlyf. EINKENNI: Syfja, meðvitundarleysi, hækkun eða lækkun blóðþrýstings, of hraður eða of hægur hjartsláttur, vítt eða þröngt ljósop, uppköst, svimi og óregluhreyfingar (ataxia) hafa komið fyrir. Krampar og lífshættulegar hjartsláttartruflanir virðast ekki hafa verið eins mikið vandamál og eftir amítryptilín-eitranir. MEÐFERÐ: Magatæming og magaskolun. Lyfjaskol. Symtómatísk meðferð. SKAMMTASTÆRÐIR HANDA FULLORÐNUM: Venju- legur byrjunarskammtur er 30 mg á dag, sem aukinn er smám saman í 40-90 mg á dag. Lyfið má gefa í einum skammti að kvöldi eða skipta í tvo skammta, kvölds og morgna. Aldraðir þurfa oft minni skammta. SKAMMTA- STÆRÐ HANDA BÖRNUM: Lyfið er ekki ætlað börnum. PAKKNINGAR: Töflur 10 mg. 30 stk. (þynnupakkað); 100 stk. (þynnupakkað). Töflur 30 mg: 30 stk. (þynnupakkað); 100 stk. (þynnu- DELTA pakkað). REyKJAVIKURVEGI 78, 222 HAFNARFIRÐI

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.