Læknablaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
347
Table VI. Correlation between symptoms in hay dust and precipitin tests (M.faeni).
Numbers of pos Precipitin neg Percentage pos of symptomatic Percentage pos of non symtomatic
Cough 3 months per year 30 28 51.7 60.1 N.S.
Phlegm 3 months per year 29 26 52.7 59.8 N.S.
Dyspnea walking on level ground 38 13 74.5 57.0 <0,05
Wheezing most days 8 4 66.7 58.8 N.S.
Table VII. Correlation between symptoms in hay dust and
precipitin tests (M.Faeni).
No. precip % pos of symptomatic % pos of non symptomatic
pos neg P
Cough Shortness 57 23 71.3 56.3 <0.02
of breath 42 21 66.7 57.7 N.S.
Fever 57 13 81.4 54.9 <0.001
Table VIII. Smoking history
Area A (n=325) Area B (n=126)
n % n %
Non-smokers 177 54.5 68 54.0
Ex-smokers 58 17.8 25 19.8
Smokers 90 27.7 33 26.2
Total 325 100 126 100
Table IX. Correlation between smoking and positive
precipitin tests (M.faeni).
No pos No neg % pos P
Smokers 59 64 48.0
Non-smokers 153 92 62.5 <0.01
Total 212 156 57.6
Table X. Abnormal spirometry
Area A Area B
(n=323) (n=126)
No Percent No Percent p
FVC %<85% predicted 28 8.6 5 4.0 N.S.
FEV 1/FVC %<70% 80 24.8 12 9.5 <0.001
UMRÆÐA
Rannsókn þessi sýndi að tíðni jákvæðra
felliprófa gegn M. faeni meðal bænda í
Víkurumdæmi var hærri en áður hefur fundist
í faraldsfræðilegum könnunum (2). Tíðni
jákvæðra felliprófa í Strandasýslu var hins
vegar sambærileg við það sem áður hefur
verið lýst meðal sveitafólks (7). Það kemur
vel fram í þessari könnun að algengt er að
bændur hafi jákvæð fellipróf gegn M. faeni
en engin lungnaeinkenni og slík fellipróf ein
sér eru því gagnslaus við sjúkdómsgreiningar
(2, 7, 8). Það er þó greinilegt að bændur
á Suðurlandi hafa oftar áreynslumæði,
fá frekar hita eftir vinnu í þurrheyi og
hafa meiri lungnateppu (obstruction) en
starfsbræður þeirra í Strandasýslu og þetta
tengist jákvæðum felliprófum. Athyglisvert
er að fellimótefni gegn T. vulgaris finnst ekki
í þessari könnun og virðist þessi hitasækna
örvera ekki finnast í íslensku heyi (8). I
öðrum löndum er algengt að hún valdi hitasótt
(9,10).
Lagt hefur verið til að nota orðið heymæði
yfir öll lungnaeinkenni sem fylgja vinnu í
þurrheyi en orðið heysótt fyrir einkenni sem á
ensku nefnast »hypersensitivity pneumonitis«
eða »extrinsic allergic alveolitis« (8). Lítið er
vitað um tíðni heysóttar hér á landi, en giskað
hefur verið á að hún sé ekki meiri en 35
tilfelli á hverja 1000 starfsmenn í landbúnaði
(11). Ef gert er ráð fyrir að hiti eftir vinnu í
þurrheyi þýði að viðkomandi hafi heysótt, gæti
tíðni þessa sjúkdóms verið 185 á hverja 1000
bændur á svæði A, en 79 á hverja 1000 á
svæði B, sem er stórum hærri tíðni en nokkurs
staðar hefur fundist í heiminum (2).
Reykingamenn hafa síður jákvæð fellipróf
gegn M. faeni og hefur því áður verið lýst
(8,9,12). Hvað veldur því að reykingamenn
mynda síður fellimótefni og hvort það þýðir
að þeir njóti einhverrar vemdar gegn heysótt
er ekki vitað.