Læknablaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ
365
Mynd 2. Jón Steffensen prófessor viö Zeiss smásjá sem var upphaflega í eigu Bjarna Sæmundssonar
náttúrufræöings. (Safnnr.: NS-311) Fyrir milligöngu Árna Friörikssonar fiskifræöings og Steffensens keypti
Háskóli íslands gripinn af erfingjum Bjarna. Smásjáin var notuð á rannsóknastofu Steffensens í áraraöir.
Myndin er tekin í húsnæöi Heilsugæslustöðvarinnar á Seltjarnarnesi sem um tíma var notað undir muni
Nesstofusafns.
lengur fékk ég fýsíólógíu eftir Winton &
Bayliss frá Englandi. Eins fór með anatómíu.
Guðmundur kenndi hér Broesike og ég kenndi
þá bók fyrst, en þegar Þýskaland lokaðist tók
ég Grays anatómíu á ensku.
í tópógrafíu var notuð þýsk bók eftir Coming.
Hún var þýdd á ensku líka en við notuðum
þýsku útgáfuna. Bækumar entust dálítið því
þær gengu kaupum og sölum.
Stúdentum var bent á ákveðnar bækur í
kennslu, en þeir voru náttúrulega sjálfráðir
hvaða bækur þeir notuðu, svo framarlega að
þær væru frambærilegar. Flestar kennslubækur
eru þannig að þær fjalla um flest þau atriði
sem kennarinn fer í. Það var líka talsvert
breytilegt á mínum námsárum, hvaða
kennslubók stúdentar notuðu, til dæmis í
medisín. Að vísu fór kennarinn aðallega eftir
einhverri ákveðinni bók, en maður var ekki
bundinn við það sjálfur, gat lesið hvaða bók
sem var.
- Geturðu sagt okkur tildrögin að því að
þú gerðist prófessor í anatómíu ?
Það var óvænt. Eg var mikið til búinn að fá
það sem þurfti í sérfræðingsviðurkenningu
í medisín og sestur að á Akureyri. Ég
praktíseraði þar í tæpt ár.
Þá sagði Lárus Einarsson upp. Hann var búinn
að undirbúa sig undir anatómíu í Þýskalandi
og átti að taka við af Guðmundi Hannessyni
þegar hann hætti.
Lárus kom heim þegar Guðmundur var ennþá
í embætti og það var ekki þægilegt, því
prófessorslaun voru ekki mikil og aðstaða
faktískt engin, hvað þá að laun fengjust fyrir
aðstoðarkennara. Það var engin laboratorí
aðstaða og Lárus var aðallega að rannsaka
taugakerfið og litunaraðferðir í sambandi
við taugafrumur. Til að liðka til fékk hann
stöðu sem aðstoðarlæknir á Kleppi og dálitla
laboratorí aðstöðu. Þetta var ekki æskileg
aðstaða fyrir mann sem var búinn að fullnuma