Læknablaðið - 15.09.1990, Blaðsíða 40
358
LÆKNABLAÐIÐ
breyting á svefntíma við 13 ára aldur (mynd
1).
Svefntími var eins og vænta mátti mjög
háður aldri og reyndist vera nokkum
veginn línulegt samband milli svefntíma
og aldurs á aldursskeiðinu 1-20 ára, eins
og sýnt er á mynd 1. Lína sem dregin
er í minnstu femingsfjarlægð frá aldurs-
og svefntímahnitum hefur hallatöluna 14
mínútur/ár og eftirfarandi formúla lýsir
áætluðum svefntíma miðað við aldur:
Svefntími (í mínútum) = 730 - (aldur x 14),
R2=0,754. Staðalfrávik frá aðhvarfslínu var
43,5 mínútur.
Ekki var marktækur munur á heildarsvefntíma
drengja og stúlkna (unpaired t test p=0,653).
Svefnmál vom einnig háð aldri (mynd 2),
en rismál (mynd 3) virðast nánast óháð
aldri, lárétt lína liggur innan óvissumarka
aðhvarfslínunnar (95% öryggismörk hallatölu
- 0,02 og 1,48). Meðalrismál eru kl 8:45
(staðalfrávik 53,8 mínútur).
Svefnmál eru breytileg eftir dögum vikunnar,
þannig fara böm seinna að sofa á föstudags-
og laugardagskvöldum. Hjá bömum innan 10
ára aldurs er þessi munur þó innan við hálf
klukkustund, en eftir það eykst munurinn
smám saman með aldri upp í um það bil
eina og hálfa klukkustund hjá 15 ára og eldri.
Meðal unglinga eru svefnmál nokkum veginn
jafn sein föstudags- og laugardagskvöld,
en hjá fullorðnum eru þau mun seinni á
laugardagskvöldum (8). Rismál fylgja nokkuð
náið svefnmálum, og seinkar um helgar
um svipaðan tíma og svefnmálum seinkar.
Ekki var marktækur munur á drengjum og
stúlkum að því er varðar svefnlengd, rismál og
svefnmál.
Svefnerfiðleikar. Af svörum kemur fram að
7% bama eiga oft erfitt með að sofna og
21,3% stundum. Um 1,3% unglinga eiga
oft erfitt með að sofna, en 15% stundum.
Mat á þessum þáttum er mjög huglægt og
líklega breytilegt eftir aldri og eftir afstöðu
foreldra til þess hvað telst vandamál. A mynd
4 sést hversu erfitt foreldrum reynist að koma
bömum í rúmið. Greinilegt er að þetta er mest
vandamál á aldrinum 5-9 ára.
Þungsvefn. Vandamálið að sofa of þungt,
þannig að erfitt sé að vekja mann, er algengt
Me&alsvefntími eftir aldri
Aldur
Mynd 1. Meðalsvefntími í einni viku, táknað með punkti
fyrir hvem einstakling og aðfallslínu sem dregin er í
minnstu femingsfjarlægð frá þeim.
Meöalsvefnmál eftir aldri
Mynd 2. Meðalsvefnmál í einni viku, táknað með punkti
fyrir hvem einstakling og aðfallslínu sem dregin er í
minnstu femingsfjarlægð frá þeim.
meðal unglinga og 13,9% þeirra telja að
þetta sé oft vandamál hjá sér, og er þetta
álíka algengt í öllum aldurshópum unglinga,
13,3% segjast oft vera syfjaðir á daginn. I
spumingalistunum kom fram að 16% bama
svæfu stundum eða oft svo þungt að erfitt
væri að vekja þau.
Vœta rúm. Tíðni þess að væta rúm (enuresis)
lækkar ört með aldri (mynd 5). Það er hins
vegar athyglisvert að nokkur hópur (5-